Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 36
LEIÐBEININGAR Hvernig er fræðigrein send til Læknablaðsinsl Greinar til blaðins eru sendar með tölvupósti til ritstjórnarfulltrúa blaðsins á netfang ritstjorn@lis.is. Efni til blaðsins má þó einnig senda í pósti með utanáskriftinni: Læknablaðið, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi. Með fræðigrein þarf að fylgja a. Bréf til ritstjórnar. b. Handrit að grein með töflum og myndum. c. Höfundayfirlýsing þar sem allir höfundar staðfesta að efni greinarinnar hafi ekki birst annars staðar og að þeir afsali sér birtingarrétti að texta og myndefni til Lækna- blaðsins. d. Yfirlýsing um hagsmunatengsl höfunda við efni greinar- innar. e. Staðfesting á því að tilskilin leyfi séu til staðar fyrir rannsókninni frá Vísindasiðanefnd og eftir atvikum Persónuvernd og hlutaðeigandi sjúkrastofnunum. Ef um sjúkratilfelli er að ræða þarf skriflegt leyfi sjúklings fyrir birtingu tilfellisins. Mikilvægt er að allir höfundar skrifi undir höfundayfirlýsing- una og staðfesti um leið að þeir hafi tekið þátt í gerð rannsóknar- innar/greinarinnar og á hvaða hátt, til dæmis aflað gagna, skrif- að handrit, unnið úr gögnum og svo framvegis. Almennt gildir sú regla að allir höfundar hafi tekið það mikinn þátt í gerð vís- indagreinar að þeir geti borið ábyrgð á öllu efni hennar og rætt það opinberlega. Höfundar að grein ættu því einungis að vera þeir sem lagt hafa mikið af mörkum til greinarinnar, það er grunnhug- mynd, hönnun og skipulagningu rannsóknar eða túlkun og fram- setningu niðurstaðna. Flestir höfundar hafa einnig safnað gögnum eða unnið rannsóknarvinnu, og tekið þátt í ritun uppkasts og lesið yfir handritið. Yfirmenn deildar eða rannsóknarstofu sem hafa ekki að öðru leyti komið að rannsóknarvinnunni, styrktaraðilar og þeir sem einungis hafa tekið lítinn þátt í rannsókninni, ættu ekki að teljast höfundar greinar. Þeim er hins vegar hægt að færa þakkir í lok handrits (sjá síðar). í höfundayfirlýsingu verða höfundar einnig að staðfesta að efni greinarinnar hafi ekki birst í öðru vísindariti og að þeir afsali sér birtingarrétti á efni greinarinnar (bæði texta og myndefni) til Læknablaðsins. Bréftil ritstjórnar í bréfinu skal koma fram titill greinarinnar og nöfn höfunda. Æski- legt er að greina í stuttu máli frá tilurð rannsóknarinnar, niður- stöðum og sérstöðu, borið saman við aðrar greinar sem birst hafa um efnið. Skýra þarf fyrir ritstjórn af hverju þessi grein á erindi í Læknablaðið. Tilgreina þarf leyfi til rannsókna með númerum, til dæmis frá Persónuvernd og Vísindasiðanefnd (sjá síðar). Einnig er æskilegt að fram komi hvort leitað hafi verið aðstoðar tölfræðings og hvort sérfræðingur í ensku hafi lesið yfir enskt ágrip, töflu- og myndatexta. Stundum kjósa höfundar að nefna aðila sem koma til greina sem ritrýnar og er þá tilvalið að gera það í bréfi til ritstjórnar, helst með netfangi viðkomandi aðila. Aðalábyrgðarmaður greinar í ritstjórn tekur ákvörðun um hvort hann nýtir slíkar uppástungur eða ekki. Undir bréf til ritstjórnar skrifar yfirleitt sá höfundur sem annast bréfaskipti við blaðið. Höfundayfirlýsing Mikilvægt er að höfundayfirlýsing fylgi með handriti greinar þegar það er sent til blaðsins. Eyðublaðið má finna á heimasíðu Læknablaðsins. Einfaldast er að skanna eyðublaðið með undir- skriftum höfunda og senda til blaðsins með tölvupósti, en einnig má senda það í pósti til ritstjórnar. Eyðublað um hagsmunatengsl Þetta eyðublað er hægt að nálgast á heimasíðu Læknablaðsins og verða allir höfundar að tiltaka hvort þeir hafi tengsl við fyrirtæki eða einstaklinga sem gætu haft áhrif á rannsóknina, annaðhvort framkvæmd hennar eða túlkun niðurstaðna. í vafatilvikum er betra að tilgreina ákveðin hagsmunatengsl og er ritstjórn síðan látið eftir að meta hvort nefna þurfi þessi tengsl með greininni eða ekki. Dæmi um fjárhagsleg tengsl sem höfundar þurfa að tilgreina eru ferðastyrkir frá fyrirtækjum, laun fyrir fyrirlestra, greiðslur fyrir ráðgjöf eða einkaleyfi og er miðað við þrjú ár frá því hand- ritið er sent til Læknablaðsins. Tekið er hart á því ef höfundar láta hjá líða að tilgreina hagsmunatengsl og getur þá komið til þess að að Læknablaðið birti sérstaka yfirlýsingu. Ef engin hagsmunatengsl eru til staðar þarf einnig að tiltaka það á eyðublaðinu. Undir liðnum Þakkir (sjá síðar) er tilvalið að tilgreina þá sjóði og einstaklinga sem styrktu rannsóknina. Leyfi í bréfi til ritstjórnar verður að koma fram hvort tilskilin leyfi til rannsóknarinnar liggi fyrir, til dæmis frá Vísindasiðanefnd eða Siðanefnd Landspítala, Persónuvernd og yfirmanni eða lækninga- forstjóra viðkomandi stofnunar þar sem rannsóknin var unnin. í Efnisflokkar og hámarkslengd talin í orðum Megintexti Leiðari 750 Vísindagrein 3000 Sjúkratilfelli 2500 Tilfelli mánaðarins 150 + 650 Yfirlitsgrein 5000 Bréf til blaðsins 500 *hægt er að birta fleiri heimildir i í netútgáfu blaðsins Ágrip Myndir og töflur Heimildir - 0 5 250 8 30 100 5 15 - 2 8 200 10 60* - - 5 700 LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.