Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 59
UMFJÖLLUN O G GREINAR
EURD2012
POLAND-UKRAINE
Ekkert tóbak á EM 2012
Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA,
hefur ákveðið að banna alla notkun
tóbaks á leikjum Evrópukeppninnar, EM,
í knattspyrnu sem fer fram í Póllandi og
Úkraínu í júní 2012. Ákvörðunin er tekin
í samráði við Evrópudeild Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunina og undirstrikar svo
ekki verður um villst hversu mikla áherslu
knattspyrnuyfirvöld leggja á að skapa al-
þjóðaknattspyrnunni ímynd heilbrigði og
hreysti.
Bannið felur í sér að engar auglýsingar,
sala eða notkun á tóbaki verða leyfð á
knattspyrnuleikvöngum keppninnar.
Gildir bannið bæði innan- og utandyra,
á áhorfendasvæðum sem og á vellinum
sjálfum. Hefur tekist víðtækt samstarf um
að framfylgja banninu meðal alþjóðaheil-
brigðisstofnana á borð við WHO, World
Heart Federation, European Healthy Stadia
Network og heilbrigðisyfirvalda í Póllandi
og Úkraínu.
„Tóbakslaus Evrópukeppni í knatt-
spyrnu 2012 sýnir virðingu okkar fyrir
heilsu áhorfenda og keppenda," segir Mic-
hel Platini forseti UEFA. „Við viljum setja
heilsu, öryggi og þægindi allra í efsta sæti
og tóbak á þar ekki heima."
Talsmenn Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
uninnar í Evrópu segja þetta mikilvægan
áfanga í tóbaksvörnum á heimsvísu þar
sem augu alls heimsins munu beinast að
keppninni. „Forvarnargildið er gríðarlegt
og sem fyrirmynd fyrir ungt fólk er þetta
ómetanlegt," segir Zsuzsanna Jakab for-
stjóri WHO í Evrópu.
Ewa Kopacz heilbrigðisráðherra Pól-
lands tekur í sama streng og segir
þetta mikilvægan áfanga í baráttu heil-
brigðisyfirvalda í Póllandi gegn tóbaki.
„Árlega deyja 60 þúsund Pólverjar vegna
tóbaksreykinga og þetta hefur gríðarlegt
forvarnargildi."
Heilbrigðisyfirvöld í Úkraínu eru á
sama máli en þar eru tóbaksreykingar karla
með því mesta sem gerist í heiminum og
ein helsta ástæða ótímabærra dauðsfalla.
Yfirvöld binda vonir við að tóbaksbannið á
EM hjálpi til við að snúa þeirri þróun við.
Tóbaksbannið á EM 2012 er til marks
um stefnu UEFA þar sem öll áhersla í fram-
tíðinni verður lögð á að knattspyrnuiðkun
sé eftirsóknarverður hluti af heilbrigðum
lífsstíl.
o
REGION^^^^
SKANE
Specialistlákare
Válkommen till Region Skáne, vars verksamhet bedrivs i Södra Sverige.
Vi söker en specialistlákare i allmán medicin/annan specialitet.
Várdcentralen Vittsjö ár en liten 2-lákarbemannad enhet belágen i den natursköna
delen av Norra Skáne.
Vi ár en liten tát personalgrupp med stor arbetsgládje, nára till beslut.
Lás mer pá www.skane.se/jobb
Er ráðstefna framundan?
Alhliða skipulagning ráðstefna og funda
Engjateigur 5 1105 Reykjavík | 585-3900 | congress@congress.is | www.congress.is
REYKJAVIK
LÆKNAblaðið 2011/97 723