Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2011, Síða 59

Læknablaðið - 15.12.2011, Síða 59
UMFJÖLLUN O G GREINAR EURD2012 POLAND-UKRAINE Ekkert tóbak á EM 2012 Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, hefur ákveðið að banna alla notkun tóbaks á leikjum Evrópukeppninnar, EM, í knattspyrnu sem fer fram í Póllandi og Úkraínu í júní 2012. Ákvörðunin er tekin í samráði við Evrópudeild Alþjóðaheil- brigðismálastofnunina og undirstrikar svo ekki verður um villst hversu mikla áherslu knattspyrnuyfirvöld leggja á að skapa al- þjóðaknattspyrnunni ímynd heilbrigði og hreysti. Bannið felur í sér að engar auglýsingar, sala eða notkun á tóbaki verða leyfð á knattspyrnuleikvöngum keppninnar. Gildir bannið bæði innan- og utandyra, á áhorfendasvæðum sem og á vellinum sjálfum. Hefur tekist víðtækt samstarf um að framfylgja banninu meðal alþjóðaheil- brigðisstofnana á borð við WHO, World Heart Federation, European Healthy Stadia Network og heilbrigðisyfirvalda í Póllandi og Úkraínu. „Tóbakslaus Evrópukeppni í knatt- spyrnu 2012 sýnir virðingu okkar fyrir heilsu áhorfenda og keppenda," segir Mic- hel Platini forseti UEFA. „Við viljum setja heilsu, öryggi og þægindi allra í efsta sæti og tóbak á þar ekki heima." Talsmenn Alþjóðaheilbrigðismálastofn- uninnar í Evrópu segja þetta mikilvægan áfanga í tóbaksvörnum á heimsvísu þar sem augu alls heimsins munu beinast að keppninni. „Forvarnargildið er gríðarlegt og sem fyrirmynd fyrir ungt fólk er þetta ómetanlegt," segir Zsuzsanna Jakab for- stjóri WHO í Evrópu. Ewa Kopacz heilbrigðisráðherra Pól- lands tekur í sama streng og segir þetta mikilvægan áfanga í baráttu heil- brigðisyfirvalda í Póllandi gegn tóbaki. „Árlega deyja 60 þúsund Pólverjar vegna tóbaksreykinga og þetta hefur gríðarlegt forvarnargildi." Heilbrigðisyfirvöld í Úkraínu eru á sama máli en þar eru tóbaksreykingar karla með því mesta sem gerist í heiminum og ein helsta ástæða ótímabærra dauðsfalla. Yfirvöld binda vonir við að tóbaksbannið á EM hjálpi til við að snúa þeirri þróun við. Tóbaksbannið á EM 2012 er til marks um stefnu UEFA þar sem öll áhersla í fram- tíðinni verður lögð á að knattspyrnuiðkun sé eftirsóknarverður hluti af heilbrigðum lífsstíl. o REGION^^^^ SKANE Specialistlákare Válkommen till Region Skáne, vars verksamhet bedrivs i Södra Sverige. Vi söker en specialistlákare i allmán medicin/annan specialitet. Várdcentralen Vittsjö ár en liten 2-lákarbemannad enhet belágen i den natursköna delen av Norra Skáne. Vi ár en liten tát personalgrupp med stor arbetsgládje, nára till beslut. Lás mer pá www.skane.se/jobb Er ráðstefna framundan? Alhliða skipulagning ráðstefna og funda Engjateigur 5 1105 Reykjavík | 585-3900 | congress@congress.is | www.congress.is REYKJAVIK LÆKNAblaðið 2011/97 723

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.