Læknablaðið - 15.12.2013, Side 3
Landspítalinn í Fossvogi í upphafi aðventu 2013.
Með eða á móti
Framtíð íslenskrar heilbrigðisþjónustu ræðst á aðventunni. Þetta eru stór orð en líklega nærri sanni ef
marka má orð forstjóra Landspítalans. Loforð um auknar fjárveitingar til heilbrigðiskerfisins og sérstak-
lega Landspítalans í aðdraganda Alþingiskosninganna í vor kveiktu vonir um viðreisn á næsta ári sem
síðan urðu að engu þegar fjárlagafrumvarp ársins 2014 var lagt fram í byrjun október. „Misskilningur"
var það fyrsta sem Páll Matthíasson forstjóri sagði um fjárlagafrumvarpið og gefin hafa verið fyrirheit
um leiðréttingar og auknar fjárveitingar til spítalans. Prófessorar, yfirlæknar, framkvæmdastjórar og
forstjóri Landspítalans hafa sagt skoðun sína umbúðalaust á því hvert stefnir að óbreyttu.
Allir eru á einu máli um augljóst mikilvægi heilbrigðiskerfisins en ekki virðist jafn augljóst hvernig
eigi að viðhalda því, endurnýja og manna. „Læknar greiða atkvæði með fótunum," segir Sigurveig
Pétursdóttir formaður samninganefndar Læknafélags íslands um afstöðu fjölda lækna til launakjara.
Þingmenn aftur á móti munu greiða atkvæði sitt sitjandi með höndunum, hvort sem þeir eru með eða á
móti fjárlagafrumvarpinu 2014.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Þór Sigurþórsson (f. 1977) gerði Ijósmyndaverkið á for-
síðu Læknablaðsins að þessu sinni. Verkið er án heitis
en var sýnt á sýningunni Ripped from Something
Bigger á Seyðisfirði árið
2010. Á sýningunni mátti sjá
sambærilegt myndbandsverk
Þórs þar sem svart/hvíta línan
var á stöðugri hreyfingu, hring
eftir hring. Ekki ósvipað því
þegar unnið er að breytingum
í myndvinnsluforriti eins og
Photoshop. Þá er viðfangs-
efnið umkringt iðandi brotalínu
sem afmarkar það svæði sem
unnið er með. Á vissan hátt
kallar verkið því fram samslátt
á milli raunveruleikans og hins
stafræna veruleika þar sem
maður tekur að horfa á umhverfi sitt þeim augum sem
maður hefurvanist við daglega iðju við tölvuskjá. Skynjun
okkar á náttúrunni er fjarri því að vera alltaf hrein og bein
úti í hinni guðs grænu. Við höfum ekki síður tengsl við
hana í gegnum myndir. Þessi víxlverkun er þekkt við-
fangsefni myndlistarmanna, sambærileg því þegar list-
málarar mótuðu hugmyndir okkar um landslag hér áður
fyrr. Þór nam myndlist við Listaháskóla (slands þaðan
sem hann útskrifaðist árið 2004. Framhaldsmenntun sótti
hann í Listaakademíuna í Vínarborg og lauk meistaranámi
frá School of Visual Arts í New
York árið 2008. Síðasta einka-
sýning Þórs var í GalleríÞoku
sem er sýningarrými í kjallara
hönnunarbúðarinnar Hrím á
Laugavegi. Sýning hans hét
Skjáblinda og kölluðu verkin
flest fram truflun í sjónsviðinu
eða einhvers konar missýn
þegar yfirborð brenglar það
sem leynist á bak við það.
I verkum sínum styðst Þór
mjög gjarnan við hluti sem
hann finnur, ýmsa nytjahluti
sem hann meðhöndlar á þann
hátt að þeir missa notagildi sitt og verða að sjálfstæðum
skúlptúrum. I Ijósmyndaverki sínu hér virðist hann einmitt
í þann veginn að taka grjóthnullung úr náttúrulegu sam-
hengi sínu til notkunar á öðrum vettvangi.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Pórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Pórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@iis.is
Upplag
1750
Áskrift
12.400,- m. vsk.
Lausasala
1240,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðíð áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2013/99 551