Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2007, Qupperneq 153
TVIHEIMAR
menrúngarlegu form sem lýst er og settar eru ffam kenningar um í marm-
fræði og fjölmenningarfræðum samtímansJ
Aguililla-fólkið, sem ferðast milli Kaliforníu og Michoacán-fylkis, er
ekki tvíheimabúar, en venjur þess og menning brottflutningsins bera þó
merki um tvíheima, einkum hjá þeim sem dvelja um lengri tíma í Red-
wood-borg eða til frambúðar. Þegar á heildina er litið býr það Aguililla-
fólk sem á heimib á tveimur stöðum á mœmm, vettvangi kerfisbundinna
og umbyltandi ferða yfir landamæri. Rouse gengur út frá þessari þver-
þjóðlegu forsendu í allri grein sinni og gefur henni sérstakan táknsögu-
legan kraft með því að birta ljósmynd af hinu ffæga brúðkaupi Guillermo
Gómez-Pena og Emily Hick, sviðsettu af Border Arts vinnusmiðjunni í
San Diego-Tijuana þar semfrontera Bandaríkjanna ogMexíkó molna nið-
ur í Kyrrahafið. Fræðimenn sem fjalla um mæramenningu hafa nýlega
haldið því ffam að sögur og menning farandfólks, sem fyrrum voru á jaðr-
inum, skipi nú þýðingarmikla miðlæga stöðu.5 6 Slíkar nálganir eiga sitt-
hvað sameiginlegt með frumforsendu tvíheimarma. En landamærasvæði
eru sérstök á þann hátt að þar er gengið út ffá landsvæði sem afmarkað er
af landfræðilega pólitískri línu; tvær hliðar sem aðskildar eru af geðþótta
og sæta gæslu en tengjast einnig með löglegum og ólöglegum ferðum og
samskiptum yfir landmærin. Þegar um tvíheima er að ræða er yfirleitt
gengið út frá lengri fjarlægðum og aðskilnaði sem minnir meira á útlegð:
bann við endurkomu er irmbyggt eða henni ffestað til fjarlægrar fram-
5 ítarlega er fjallað um sambærilega braut sem tengir Dóminíska lýðveldið og New
York hjá Sherri Grasmuck og Patricia R. Pesar, Between Two Islands: Dominican
Intematicmal Migration, Berkeley: University of Califomia Press, 1991. Sjá einnig
Karen McCarthy Brown, Mama Lola: A Vodou Priestess in Brooklyn, Berkeley:
University of Cahfomia Press, 1991; Michael M.J. Fischer og Mehdi Abedi,
Debating Muslims: Cultural Dialogues in Postmodemity and Tradition, Madison:
University of Wisconsin Press, 1990; George Marcus og Michael M.J. Fischer,
Anthropology as Cidtural Critique: An Experimental Moment in the Human Sciences,
Chicago: University of Chicago Press, 1986, bls. 94 þar sem finna má etnó-
grafiska texta sem snúast um fleiri en einn stað.
6 Gloria Anzaldúa, Borderlands/La Frontera: The New Mestiza, San Francisco: Spin-
sters/Aunt Lute, 1987; Critiásm in the Borderlands: Studies in Chicano Literature,
Culture and Ideology, ritstj. Hector Calderon og José Saldívar, Durham: Duke
University Press, 1991, Juan Flores og George Yúdice, „Living Boarders/Bus-
cando America“, Social Text 24/1990, bls. 57-84; Emily Hicks, Border Writing: The
Multidimensional Text, Minneapolis: University of Minnesota Press, 1991; Renato
Rosaldo, Culture and Truth: The Remaking ofSocial Analysis, Boston: Beacon Press,
1989.