Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2007, Qupperneq 157
TVIHEIMAR
um að vera á verði gagnvart því að móta vmnuskilgreiningu okkar á hug-
taki eins og „tvíheimar“ með því að grípa til „frummyndar“, þar sem af-
leiðingin verður sú að hópar fá merkimiðann tvíheima þótt þeir sýni að-
eins tvö, þrjú eða fjögur af grundvaUareinkennunum sex. Jafnvel hinar
„hreinu“ birtingarmyndir eru, eins og ég hef gefið í skyn, tvíbentar gagn-
vart grunnatriðunum, jafnvel þandsamlegar. Samfélög, á óKkum tímum í
sögu sinni, geta ennfremur sýnt sterkari eða veikari einkenrd tvíheima
efdr því hvemig möguleikamir breytast - hindranir, gáttir, átakasambönd
og tengsl - í gestgjafalöndum þeirra sem og milli þjóða
Við ættum að geta viðurkennt hversu rík áhrif saga gyðinga hefur haft
á tungumál tvíheima án þess að gera þá sögu að frumlíkani þeirra. Líta má
á tvíheima gyðinga (og Grikkja og Armena) sem upphafspunkt en ekki
forskrift að orðræðu sem ferðast eða blandast í nýjum heimsaðstæðum.
Hvort sem okkur líkar betur eða verr hefur tvíheimaorðræðan víða verið
tekin til gagns. Hún er á frjálsri ferð um heiminn í kjölfar falls nýlendu-
stefhunnar, með auknum straumi innflytjenda, hnattrænum samskiptum
og flutningum - margvíslegum fyrirbærum sem ýta undir tengsl við marga
staði, dvöl og ferðalög innan þjóða og milli þeirra. Skilgreining sem tekur
mið af fleiri kenningum en skilgreining Safrans13 gæti haldið tál haga
einkennunum sex frá honum og tekið inn fleiri. Eg hef til dæmis þegar lagt
áherslu á að sambönd sem eru til staðar þvert á þjóðir og tengja tvíheimana
þurfi ekki endilega að birtast fýrst og ffernst í raunverulegri eða táknlegri
ættjörð - að minnsta kosti ekki í þeim mæli sem Safran gefur til kynna.
Sambönd til hliðar við miðjuna og fjarri henni geta verið jafnmikilvæg og
þau sem mótast í kringum uppruna- eða endurkomumarkhyggju. Og
sameiginleg, óslitin saga brottflutninga, þjáninga, aðlögunar eða andspyrnu
getur verið jaflunikilvæg og hugmyndin um ákveðinn uppruna.
Hver svo sem vinnulistinn er yfir einkenni tvíheima er þess ekki að
vænta að nokkurt samfélag uppfylh öll atriðin þegar saga þess er rakin, og
orðræðu tvíheimanna verður óhjákvæmilega breytt við þýðingu hennar og
aðlögun. Nú er til dæmis rætt afdráttarlaust um kínverska tvíheima.14
13 Rodney Needham, „Polythetic Classification“, Man 10/1975, bls. 349-369.
14 Sjá til dæmis Lynn Pan, Sons ofthe Yellotv Emperor: A History of the Chinese Dia-
spora, Boston: Little Brown, 1990; einnig Rey Chow, „Between Colonizers: Hong
Kong’s Postcolonial Self-Writing in the 1990s“, Diaspora 2,2/1992, bls. 151-170;
Aiwah Ong, „On the Edge of Empires: Flexible Citizenship among Chinese in
Diaspora“, Positions 1,3/1993; og Xiaoping Li, „New Chinese Art in Exile“,
Border/Lines 29-30/1993, bls. 40-44.
x55