Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2007, Síða 159
TVIHEIMAR
En er tvíheimamenningm ávallt and-þjóðernissinnuð? Hvað um löng-
un eftir eigin þjóðerni? Andóf gegn aðlögun getur tekið á sig þá mynd að
endurheimta aðra horfna þjóð, sem er annars staðar í tíma og rými, en er
kraftmikil pólitísk mynd hér og nú. And-þjóðernissinnuð þjóðernishyggja
er að sjálfsögðu til og ég vil ekki gefa í skyn að menningarpólitík tvíheima
sé á einhvern hátt laus við þjóðernisleg markmið eða þjóðrembingslegar
fyrirætlanir. Raunar kemur sum ofbeldisfyllsta tjáningin á hreinleika og
útilokun kynþátta frá íbúum tvíheima. En slík orðræða er yfirleitt vopn
þeirra sem eru (tiltölulega) veikburða. Alikilvægt er að greina helstu þrá
þjóðernissinna, og nostalgíska sýn eða sýn sem gengur út ffá heimsslitum,
frá raunverulegri uppbyggingu þjóðar - með hjálp herafla, skóla, lögreglu
og fjölmiðla. „Þjóð“ og „þjóðríki“ eru ekki eitt og hið sama.16 Akveðin
forskriftar-andþjóðernishyggja, í brennidepli nú vegna hryllingsins í
Bosníu, þarf ekki að byrgja okkur sýn á ólíkar kröfur hinna ríkjandi og
hinna þrúguðu. Tvíheimar hafa sjaldan stofnað þjóðríki. Helsta dæmið er
Israel og slíkar „heimkomur“ eru, samkvæmt skilgreiningurmi, andstæða
tvíheimanna.
Burtséð frá því hver hugmyndafræði þeirra er um hreinleika geta birt-
ingarmyndir tvíheimamenninga, þegar til kastanna kemur, aldrei fyrst og
síðast verið þjóðernissinnaðar. Þeim er beitt í tengslanetum sem ná þvert
á þjóðir og eru fléttuð úr margöldum tryggðarböndum og tákngera að-
ferðir við aðlögun í gestgjafalöndum og að venjum þeirra sem og
mótspymu gegn þeim. Tvíheimar eru frábrugðnir ferðalögum (þótt þeir
markist af ferðavenjum?) að því leyti að þeir eru ekki tímabundnir. I þeim
felst dvöl, varðveisla samfélaga, að eiga sameiginlegt heimili fjarri heima-
högum (og í þessu eru þeir frábrugðnir útlegð, þar sem einstaklingurinn
og síðar, þegar nýir hópar koma inn og varðveita tengsl við ættjörðina og síðari
kynslóðir endurheimta þau. Tvíheimahópar „missa“ reglulega meðHmi yfir til
ríkjandi menningar.
16 Um gyðinglegan and-Zíonisma má til dæmis lesa í riti „tvíheima þjóðemissinn-
ans“ Simons Dubnows, „Diaspora“, Encyclopedia of the Social Sciences, New York:
Macmillan, 1931, bls. 126-130 og Nationalism and History: Essays in Old and Neiv
Jndaism, Philadelphia: Jewish Publicatíon Society of America, 1958, en veraldleg
hugsjón hans um „sjálfsforræðishyggju“ dró upp menningarlega/sögulega/and-
lega „þjóðemis“-sjálfsmynd sem var óháð landsvæði eða póhtík. I (ó)réttrúnaðar-
anda hafa Jonathan og Daniel Boyarin fært rök fyrir því að ströng heimsslitasýn,
sem snýst um „endurkomu“ í lok sögulegs tíma, geti leitt af sér róttæka gagnrýni
á bókstafstrú Zíonista („Diaspora: Generational Ground of Jewish Identity“,
CriticalInqziiry 19,4/1993, bls. 693-725).
r57