Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2007, Side 194
JAMES CLIFFORD
Sagnfræðirannsóknir Alax Weinreichs hafa sýnt að varðveisla gt'ðing-
leika (yidishkeyt) Ashkenazy-gyðinga var ekki fyrst og ffemst afleiðing að-
skilnaðar, hvort sem hann var þvingaður eða sjálfviljugur, í ákveðnum
hverfum eða gettóum. Hin tiltölulega nýlega „gettógoðsögn“ er smðn-
ingur við etníska alræðishyggju (eins og Gilroy gæti orðað það) sem hafn-
ar því ferh víxlverkunar og aðlögunar sem hefur mótað sjálfsmynd
gyðinga í gegnum aldimar.
Raunveruleika Ashkenazy-gyðinga er að finna milli tveggja póla
algerrar samsvörunar \ið og algerrar fjarlægðar frá samfélögum
þeirra sem ekki eru gyðingar og deila landinu með þeim. Dreg-
ið saman í eina setningu: Það sem gyðingarnir stefndu að var
ekki aðskilnaður frá kristnum mönnum heldur einangrun frá
kristinni trú. Enda þótt gera megi ráð fyrir því að margir gyð-
ingar hafi yfirgefið söfnuðinn í gegnum aldimar tókst sam-
félaginu sem heild að hfa af og þróast. A hinn bóginn komu hin
nánu og óslitnu bönd gyðinga við nágranna sína, sem vom að-
eins shtin í stutta stund á tímum ofsókna, ffarn í venjum og
þjóðtrú, í þjóðsögnum og söngvum, í bókmenntasköpun o.s.frv.
Menningarmynstur þau sem vom útbreidd meðal Ashkenazy-
gyðinga verður að flokka sem gyðingleg en mjög mörg þeirra
em einstök fyrir Ashkenazy-gyðinga. Þau em framsetning á
meðalvegi eins og þeim sem finnst hvar sem menningar mætast
við landamæri, á jaðarsvæðum eða á svæðum þar sem íbúar af
ólíkum uppruna búa.85
Helsta dæmi Weinreichs tun mæramenningu Ashkenazy-gyðinga er jidd-
íska, „bræðingstungumálið“, en hann er manna ffóðastur um sögu þess.
Hann leggur einnig mikla áherslu á hið opna ferli túlkunar á Talmúð sem
lög (dinirn) og venjur (minhogivi) em stöðugt löguð að og skýrð upp á nýtt
í Ijósi Tórunnar (sem, eins og segir í jiddísku máltæki, „hefur allt að
geyma“). Lykiltryggðin hér er við opinn texta, röð reglna sem má túlka,
ekki við „heimaland/ættjörð“ eða jafhvel „forna“ hefð. Eg hef vitnað hér
til yfirlitsgreinar frá árinu 1967 þar sem Weinreich lýsir tvíheimasögu
Ashkenazy-gyðinga án þess að nefha nokkurs staðar endurkomu, Landið
85 Max Weinreich, „The Reality of Jewishness versus the Ghetto Myth: The Socio-
linffuistic Roots of Y3ddish“, To Honor Ronran Jakobson, The Hasue: Mouton,
1967, bls. 2204.
192