Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 29
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 29
3APPLEMACBOOkPrOMEðrETInASkjá
Fartölva (verð frá 349.900 kr., t.d. hjá www.epli.is). MacBook Pro
fartölvan skrapp ansi hressilega saman á þessu ári. Í sumar var
kynnt ný 15 tommu útgáfa af fartölvunni með einstaklega skörpum og
flottum skjá, þökk sé Retinaskjátækninni. Tölvan var 25% þynnri en
fyrirr ennararnir og öflugri, þökk sé vélbúnaðaruppfærslum. Nú í vetur
kom svo út enn minni 13 tommu útgáfa fyrir þá sem þurfa ekki fullar
15 tommur. Einstaklega flott og öflug fartölva, en verðið er líka eftir því
og makkaunnendur þurfa hér sem annars staðar að vera tilbúnir til að
borga talsvert meira fyrir sín tæki en PCnotendur.
4SAMSUnGES8000LCDHDTV
Flatskjár (verð frá 449.900 hjá www.samsungsetrid.is). Samsung hefur
tekið stórt skref fram á við í þróun sjónvarpa með 8seríunni. Þessi
sjónvörp eru ekki bara einstaklega flott með skarpri og bjartri mynd,
heldur er hægt að nettengja þau til að sækja ýmiss konar afþreyingar
efni á netið. Þeim má bæði stjórna með raddskipunum og handa
hreyfingum og ljóst að þarna sjáum við forsmekkinn að því hvernig
sjónvörp framtíðarinnar verða. Verðið er þó talsverð hindrun enn sem
komið er, enda ekki á allra færi að greiða hátt í hálfa milljón króna fyrir
flatskjá, þótt flottur sé.
5SOnyCyBErSHOTDSCrX100
Smærrimyndavél (verð 129.990 kr. í www.netverslun.is). Þetta er mögulega
besta vasamyndavél allra tíma að mati blaðamanna PC World – titill sem Canon
Power Shot S100 skartaði áður. Þetta má þakka myndflögu sem er umtalsvert
stærri en áður hefur þekkst í svo smáum myndavélum. Hún hefur einnig mjög
vítt ljósop (F1,8), sem m.a. bætir myndir sem teknar eru í litlu ljósi. Vídeótakan
er jafnframt framúrskarandi – vélin getur tekið 1080p háskerpuvídeó með 60
römmum á sekúndu. RX100 hefur verið kölluð vasaljósmyndavél atvinnumanns
ins – og ekki að ástæðulausu. Gæðin skila sér líka í verðið, sem er umtalsvert
hærra en fyrir hefðbundnar myndavélar í þessum stærðarflokki.
6APPLEIPAD(FjórðAkynSLóð)
Spjaldtölva (verð frá 89.990 kr., t.d. hjá www.epli.is). iPad frá Apple var fyrsta
spjaldtölvan sem virkilega sló í gegn og hefur verið í fararbroddi síðan. Nýj
asta útgáfan, iPad 4, kom á markað í nóvember og var í sjálfu sér ekki mjög
frábrugðin þriðju útgáfunni, sem var kynnt í mars á þessu ári. Sú var hins vegar
stórt stökk fyrir iPad, en þá var Retinaskjátæknin notuð í fyrsta sinn í spjaldtölv
unni. Hún skilar miklu skarpari mynd en áður (2.048 x 1.536 dílar á 9,7 tommu
skjá) og setur iPadinn skör hærra en keppinautana á þeim vettvangi. Eins og
með svo margar Applevörur er verðið því svo til það eina sem er Apple í óhag.
Neytendur virðast ekki láta það á sig fá, því iPad var áfram vinsælasta spjald
tölvan á heimsvísu á þessu ári.
7nOkIALUMIA920
Snjallsími(verð 124.990 kr. hjá helstu símafyrirtækjum). Lumia 920 er flaggskip
nýjustu kynslóðar Nokiasíma og skartar Windows Phone 8stýrikerfi. Eitt helsta
einkenni Lumia 920 er einstaklega góð 8,7 megapixla Pureviewmyndavél,
sem virkar mjög vel við myndatöku þegar birta er lítil. Skjárinn er jafnframt afar
bjartur og skýr, síminn styður þráðlausu NFCtæknina, sem margir telja að
verði greiðslumáti framtíðarinnar, og þar að auki verður hægt að hlaða hann
þráðlaust með þar til gerðum hleðslutækjum.
MacBookProretinaermeðfrábæranskjá.
SamsungES8000erekkibarasjónvarp
heldur líka afþreyingarmiðstöð.
DSCrX100fráSonyer
einbestasmámyndavél
sem gerð hefur verið.
nýjastaútgáfanafiPad
kom út í byrjun vetrar.
nokiaLumia920ermeð
einstaklegagóðamyndavél.
3
4
5
6
7