Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 67
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 67
sem þeim þyki vænst um hefðu aldrei
kom ist í gegnum hreinsunareld töflureikn-
is ins ef hann væri fyrir hendi. Egill á loka -
orðið um þetta hjálpartæki viðskiptalífsins:
„Þetta hefur verið reynt í útgáfu erlendis,
að ráða viðskiptafræðinga sem setja allar
útgáfuáætlanir í Excel og þeir sigla þeim
fyrir tækjum undantekningarlaust í þrot.
Ég tek undir það að ef við ættum að fara
að setja hverja einustu útgáfubók í Excel þá
væri útgáfa okkar miklu fátæklegri en hún
er. Það skiptir miklu máli í bókaútgáfu eins
og okkar að hafa nef fyrir rekstrinum og út -
gáfunni. Það verður að gilda að miklu leyti
í ákvarðanatökunni.“
Jóhann Páll bendir á að að baki þessu liggi
ákveðin sýn útgefandans á það hverju les -
endur eru að leita að hverju sinni. Sú tilfinn-
ing sé sérlega mikilvæg í bókaheiminum.
AðdráttArAfl bókAnnA
Jóhann Páll hóf útgáfustarfsemi með föður
sínum, Valdimari Jóhannssyni kenndum
við Iðunni. Jóhann Páll fagnaði sextugsaf-
mæli sínu fyrr á árinu og ekki er langt í að
hann hafi tilefni til að halda upp á fjörutíu
ára útgáfuafmæli. Að bókaútgáfa skyldi
verða ævistarfið ætti ekki að koma á óvart
enda lifði hann og hrærðist í bókaút-
gáfu sem barn vegna þess að á heimilinu
komst ekkert annað að en bókaútgáfa,
aðdráttarafl bókanna var sterkt. „Það var
ekki rætt um neitt annað en bækur,“ segir
Jóhann Páll og skimar um eftir kettinum
sem gerir sig heimakominn á skrifstofunni.
Á þeim tíma var allt lagt undir og Jóhann
Páll rifjar upp sögu af því þegar faðir hans
kom heim á aðfangadag og lokaði sig af
örþreyttur. Jafn vel svo að hann var varla fær
til starfa fyrr en með vorinu. Sjálfur segist
hann reyndar vera eins og undin tuska eftir
jóla vertíðina en hafi sem betur fer tækifæri til
að slaka á. Þau hjónin grípi gjarnan til þess
ráðs að fara í ferðalög á suðrænar slóðir og
hann sé þá með ljósmyndavélina við höndina
enda ljósmyndun eina áhugamál hans utan
vinnunnar. Hann hefur reyndar í ríkum mæli
sameinað ljósmyndaáhugann og vinnuna og
tekur margar myndir fyrir útgáfuna.
Þrátt fyrir að það hafi ekki verið ætlunin
tók Jóhann Páll til óspilltra mála hjá Iðunni
fljótlega að loknu stúdentsprófi. Hann
hóf nám í bókmenntum í Háskólanum en
skömmu síðar hætti lykilstarfsmaður á
Iðunni sem varð til þess að hann hvarf frá
námi og hellti sér út í útgáfustarfsemina
með föður sínum. Þegar Jóhann Páll, tók
við taumunum á Iðunni 1974-1984 varð
ævintýralegur vöxtur. Iðunn breyttist úr
litlu eða meðalstóru forlagi í öflugasta
útgáfufyrirtæki landsins á þeim tíma.
„Kann ski er það mesta afrekið á ferlinum,“
segir Jóhann Páll þegar hann rifjar upp þessi
ár sem hann starfaði með föður sínum.
Hann starfaði hjá Iðunni í tíu ár en þá skildu
leiðir og hann stofnaði eigið útgáfufélag,
nafnið var ekki sótt langt. Það hét einfald-
lega Forlagið og mörgum fannst kveða
við nýjan og ferskan tón í útgáfumálum.
Hafa verður í huga að bókaútgáfa á þeim
tíma mótaðist af þeim hugmyndafræðilegu
átökum sem kaldastríðið skóp. Valdimar í
Iðunni náði að mörgu leyti að sneiða fram-
hjá þeim og Jóhann Páll hefur fylgt þeirri
línu – að vera ekki á neinni línu!
En bókaútgáfa var erfið á þessum árum og eftir sex ár keypti keppi-nauturinn í Máli og menningu
meirihlutann í Forlaginu og Jóhann Páll hóf
störf innan vébanda Máls og menningar,
sem líklega lifði sinn mesta uppgangstíma
á þeim árum. Og það þrátt fyrir að margir
teldu að sú hugmyndafræði lega stoð sem að
baki félaginu stóð ætti í miklum erfiðleik-
um á sama tíma. Vegur Jóhanns Páls hjá
sameinuðu Forlagi og Máli og menningu
óx þegar hann tók að sér markaðsmál beggja
eininganna og í kjölfar áframhald andi
samruna fyrirtækj anna endaði hann yfir
sölu- og markaðssviði Forlagsins og Máls og
menningar. Árið 1994 kom Egill til starfa en
hann stóð þá á tvít ugu. Egill var ekki ókunn-
ugur bókaútgáfu þótt ungur væri því að hann
hafði áður unnið í bókabúðum. Egill hóf störf
inni á lager Máls og menningar en gekk þess
utan í ýmis störf. Honum var fljótt treyst
til vanda meiri verka og var innan skamms
orðinn sölu stjóri Máls og menningar.
Aftur á eigin vegum
En breytingar voru handan við hornið. Árið
2000 yfirgaf Jóhann Páll Mál og menn ingu og
Forlagið og réð sig sem fram kvæmdastjóra
hins nýstofnaða ættfræðifyrir tækis Genea-
logia Islandorum eftir að eigendur þess
höfðu sóst ákaft eftir kröftum hans. Egill
kaus að fylgja honum þangað. Jóhann
Páll setti upp JPV forlag innan félagsins
og fljótlega streymdu út fagurbókmenntir
og fræðibækur frá þessu nýja forlagi. En
ævintýrið stóð stutt. Fjármálaheimurinn
hrundi þá einu sinni sem oftar, netbólan
sprakk og sama má segja um eitt lítið ætt-
fræðifyrirtæki sem barst inn á útfararstofu
íslensks fyrirtækjarekstrar.
Jóhann Páll hafði hraðar hendur og náði
að bjarga útgáfurétti og útgáfusamning-
um með samkomulagi við skiptastjóra og
stofnaði Forlagið ehf. í kjölfarið í upphafi
ársins 2001. Jóhann Páll segir að þetta hafi
verið erfiðir tímar, sér hafi fundist hann
bera ábyrgð á þeim höfundum sem höfðu
fylgt honum í gegnum ferðalag milli ólíkra
útgáfumerkja. Miklu hafi skipt að geta stýrt
þeim í heila höfn. Samskipti við höfunda
er nokkuð sem ekki er tekið af léttúð og í
útgáfuheiminum er gjarnan rætt um hið
sérstaka og nána samband sem Jóhann
Páll á við höfunda sína. Þegar tilfinningar
blandast við vonir og væntingar og jafnvel
efnahagslega velferð þarf að gæta margs.
Þessar tilfinningar virðast endurgoldnar.
Þegar Jóhann Páll hélt upp á sextugsafmæli
sitt síðasta vor skrifaði Ólafur Gunnarsson
rithöfundur grallaraleg en einlæg skilaboð
í boðskortið þar sem hann tjáði hug sinn til
forleggjarans með orðunum: „… málið er
ósköp einfalt; ég elska hann“.
Ekki skipti síður máli að feðgarnir fluttu
með starfsemi sína á Bræðraborgarstíginn,
í sama hús og Iðunn hafði keypt þegar
Jóhann Páll stýrði Iðunni. Þar eru höfuð-
stöðvarnar – þó að lagerhúsnæði og bóka-
verslunin séu úti á Granda. Jóhann Páll,
Guðrún og Valdimar búa reyndar í húsinu,
og geta þess vegna gengið niður á skrif-
stofu í inniskóm og slopp kjósi þau svo.
Hann tekur reyndar fram að það geri þau
ekki! En nálægðin er mikil og þeir feðgar
játa að þeir og aðrir fjölskyldumeðlimir séu
nánast alltaf í vinnunni. Það þarf meira að
segja að setja ákveðnar samskiptareglur til
að takmarka umræðuna við matarborðið.
Þegar Jóhann Páll,
tók við taumunum
á Iðunni 1974
-1984 varð ævin-
týralegur vöxtur.
Iðunn breytt ist úr
litlu eða meðal-
stóru for lagi í
öfl ugasta útgáfu-
fyrirtæki landsins
á þeim tíma.