Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 115
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 115
1. Hvernig metur þú
horfurnar á árinu 2013?
Það er erfitt að segja til um
horfur á næsta ári. Hagvaxtar
horfur í Evrópu eru ekki sérlega
góðar og ljóst að nokkurn tíma
mun taka að leysa úr þeim
mikla skuldavanda sem hvílir
á álfunni. Á móti vegur þó að
horfur í Asíu og Bandaríkjunum
virðast heldur fara batnandi.
Ytri skilyrði munu vega þungt
hvað hagvöxt varðar.
Aðstæður hér heima fyrir eru
einnig áhyggjuefni, en þróunin
hefur heldur verið niður á við.
Verulega hefur hægt á vexti
einkaneyslu eftir því sem áhrif
af ýmsum aðgerðum sem
grip ið hefur verið til, svo sem
út greiðslu séreignarsparnaðar,
hækkun vaxtabóta o.fl., fjara út.
Allt bendir því til að hagvöxtur
í ár verði umtalsvert minni en
ráð var fyrir gert í upphafi árs
og að sama skapi virðist sem
hagvaxtar spár fyrir næsta ár
séu of bjartsýnar miðað við
þróun undangenginna mánaða.
Auk veikari einkaneyslu hefur
atvinnuvegafjárfesting lítið
aukist og er enn í sögulegu
lágmarki sem hlutfall af lands
framleiðslu. Hins vegar eru
ákveðin teikn á lofti um að fast
eignamarkaður hafi náð jafn
vægi og horfur eru á aukningu í
nýbyggingum á næsta ári.
2. Hvaða mistök voru
gerð á árinu 2012?
Það er margt sem miður hefur
farið á árinu. Ég held að það
sem upp úr standi sé hversu
lítið hefur í raun miðað í lausn
helstu vandamála okkar. Við
erum litlu nær um lausn á þeim
vanda sem gjaldeyrishöftin
skapa okkur. Okkur hefur
mis tekist að fjölga störfum á
vinnumarkaði, fjárfesting er
enn í sögulegu lágmarki og lítil
sem engin aukning hefur orðið í
útflutningi, utan ferðaþjónustu.
Það sem verra er, við erum
engu nær um sátt um leiðir
út úr þessum vanda. Ég held
að stærsti vandi okkar liggi í
þeim hörðu átökum sem hafa
einkennt árin eftir hrun. Við
stöndum í hatrömmum hug
myndafræðilegum ágreiningi
um helstu atvinnugreinar okkar
á sama tíma og við þurfum á
kröftum þeirra að halda. Þar bera
allir sem koma að sína ábyrgð,
hvort sem um er að ræða stjórn
eða stjórnarandstöðu.
Við sem störfum á sviði
hags munasamtaka megum
þar einnig líta í eigin barm. Við
eig um við mikinn skuldavanda
að glíma, hvort heldur sem horft
er til ríkissjóðs, atvinnulífs eða
heimila. Við verðum að ná að
sameinast um lausn á þessum
vandamálum ef ekki á illa að
fara. Það karp sem einkennt
hefur umræðu undanfarinna
miss era hefur engu skilað.
3. Hvað var það jákvæða
á árinu 2012?
Við höfum séð mikinn og góðan
vöxt í ferðaþjónustu sem er vel.
Þá hefur gengið vel hjá ýmsum
fyrirtækjum í tækni og hugverka
greinum. Það er ánægjulegt að
sjá að vægi þessara atvinnu
greina í útflutningstekjum hefur
aukist umtalsvert á undanförn
um árum. Þá hefur verið mikill
áhugi fyrir frekari fjárfestingu í
orkuiðnaði.
Eitt stærsta fjárfestingaverk
efni frá hruni er langt á veg
komið í Straumsvík, unnið er
að því að ljúka samningum um
raforku til álvers í Helguvík og
nokkur skriður virðist kominn
á fjárfestingar í orkuiðnaði á
Húsavík. Þessar fjárfestingar
gætu skipt sköpum um hagvöxt
hér á landi á næstu tveimur til
þremur árum.
4. Hvaða fjögur skref er
brýnast að taka á árinu
2013
1. Hérverðuraðörva
fjár festingu. Verð mæta -
sköpuníatvinnulífinuer
það sem mun á endanum
standaundirhagvexti,
auknumkaupmættiog
bættriafkomuríkissjóðs.
Þaðerómögulegtað
skattleggjaríkissjóðútúr
skuldavanda sínum.
2. Við þurfum á kröftug um
hagvextiaðhaldaog
eigum til þess ýmis tæki -
færi,þráttfyriróhagstæð
ytri skilyrði nú. Það
verð ur að fá niðurstöðu
ípeningamálastjórnina
og afnám gjaldeyrishafta.
Hvort sem mönnum líkar
það betur eða verr mun-
um við þurfa að leysa
hagstjórnogafléttingu
gjaldeyrishafta á kom-
andi árum með íslenskri
krónu,hvaðsemsíðar
kann að verða.
3. Við þurfum að ná niður-
stöðu um með hvaða
hætti það verði gert.
4. Síðastenekkisístverður
að ná betri tökum á fjár-
hagsstöðuríkissjóðs.
Skynsamlegastværiað
selja eitthvað af eignum
ríkissjóðstilaðlækka
skuldabyrði hans.
Helstu vandamál óleyst
Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri Samáls:
Þorsteinn Víglundsson.
Gylfi Arnbjörnsson.
Hvernig metur þú
horfurnar á árinu 2013?
Efnahagshorfur hafa heldur
verið að batna, en batinn er
hægur. Atvinnuleysi verður
áfram mikið, gengið veikt og
verð bólga mikil. Fjárfestingar
eru litlar í hagkerfinu og ekki útlit
fyrir að þær aukist nægilega á
árinu. Blikur eru á lofti á okkar
helstu fiskmörkuðum sem gætu
slegið á veikan bata.
2. Hvaða mistök voru
gerð á árinu 2012?
Því miður hefur verið doði og
aðgerðarleysi í efnahags og
at vinnumálum sem kom í veg
fyrir styrkingu gengis og lækkun
verðbólgu. Ljóst er að mikið
stefnuleysi ríkir í peningamálum,
þar sem Seðlabankinn hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
grunnur peningastefnunnar og
stjórntæki hennar virka ekki. Við
þessar aðstæður ætti ríkisstjórn
í samstarfi við stjórnarandstöðu
og aðila vinnumarkaðarins að
hafa það sem forgangsmál að
sameinast um haldbærri stefnu
sem miði að stöðugu gengi, lágri
verðbólgu og lágum vöxt um.
3. Hvað var það jákvæða
á árinu 2012?
Í kjarasamningum tókst að verja
kaupmátt lægstu launa þótt
kaupmáttur almennt hafi minnk
að. Alþýðusambandinu hefur
tekist að umbylta allri hugsun í
virkum vinnumarkaðsaðgerðum,
en stórátak var gert í að koma
atvinnulausum í nám og nota
atvinnuleysisbótakerfið og virkar
vinnumarkaðsaðgerðir til þess að
koma í veg fyrir að stórir hópar
langtímaatvinnulausra stæðu
uppi án úrræða í árslok 2012.
4. Hvaða fjögur skref er
brýnast að taka á árinu
2013?
1. Festagengikrónunnartil
aðlækkaverðbólgu.
2. Lækkavexti.
3. Auka fjárfestingar.
4. Dragaúratvinnuleysi,
aukakaupmáttogtryggja
aðallirséumeð.
Doði og aðgerðarleysi
Gylfi arnbjörnsson, forseti aSÍ: