Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 49
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 49
róttækrar byltingar í upplýsingatækni,
líf tækni og á fleiri sviðum sem skapar
mikla þörf fyrir háskólamenntað fólk. Það
er einnig mikilvægt að efla verkmennt í
landinu og gera veg hennar meiri en nú er,
flytja hana meira en gert hefur verið í vel
búna tækniháskóla sem fylgjast náið með
þróun tækninnar. Ýmislegt bendir til að
Íslendingar hafi vanrækt verk- og tækni -
menntun.
Í ríkjum sem lengst eru komin í tækni bylt-
ingu samtímans, svo sem Banda ríkjunum,
hefur atvinnuleysi meðal starfs fólks í
verksmiðjuiðnaði farið vaxandi en til
skamms tíma bjó þetta fólk við ágæt efni
og taldist til millistéttar. Hér er oft um að
ræða launþega sem áður störfuðu í hefð-
bundum iðnaði, í greinum þar sem sjálf -
virkur tölvustýrður búnaður kemur nú í
stað starfsfólks eða þá að starfsemin hefur
flust til láglaunasvæða erlendis. Eftir standa
stjórnendur og tæknifólk sem sér um
sjálfvirka búnaðinn.
Erik Brynjolfsson, prófessor í MIT, segir
í nýlegri grein að flutningur framleiðslu
frá Vesturlöndum til láglaunasvæða, t.d.
í Asíu, sé aðeins fyrsti áfanginn í langri
þróun. Í næsta áfanga taka tölvur yfir fram-
leiðslustörf í mjög stórum stíl. Þeir sem segja
tölvunum fyrir verkum eru vel launaðir.
Þeir sem tölvurnar segja fyrir verkum eru
láglaunamenn. Símenntun er nauðsynleg
þegar miklar tæknibreytingar ríða yfir.
Og svo hefur góð menntun margskonar
gildi umfram launahækkanir. Vel menntað
fólk gætir yfirleitt heilsu sinnar betur en
þeir sem minni menntun hafa, taka betri
ákvarðanir um rekstur heimilisins auk þess
sem þekking á lögmálum náttúrunnar og
þjóðfélagsins, tungumálakunnátta og alls
konar fróðleikur um sögu og landafræði
bætir mannlífið.
uM BJÖrGun BAnKA
Mótmæli kennd við Occupy-Wall Street
settu svip sinn á árið, þ.e. mótmæli við
því að skattgreiðendur borgi tapið af
bönkum en eigendur bankanna og stjórn-
endur hirði gróðann. – Hvernig sérðu
stjórnvöld bregðast við þessum mót mæl-
um? Verður t.d. minna um að bönk um
verði bjargað og hvaða áhrif hefði það á
bankarekstur í heiminum?
Margir hagfræðingar eru andsnúnir því að
ríkið bjargi einkabönkum í stað þess að láta
eigendur bankanna taka skellinn og bera
ábyrgð gerða sinna. Til dæmis var Mervyn
King, yfirmaður Englandsbanka, andsnúinn
björgunaraðgerðum þegar kreppan 2007-8
reið yfir, en hann virðist síðan hafa skipt
um skoðun. Vandinn við bankabjörgun er
þessi: Ef stjórnarmenn banka treysta því að
ríkið bjargi fyrirtækinu ef illa fer verða þeir
oft hættulega áhættusólgnir – vegna þess að
þeir græða ef allt gengur vel en ríkið borgar
(við borgum) þegar fífldjarfar fjármálafléttur
misheppnast.
Yfirleitt (en ekki alltaf) er þeirri megin-
stefnu fylgt í nálægum löndum að láta litlar
fjármálastofnanir rúlla en bjarga bönk um
sem sagðir eru of stórir til að hrynja. Þá
er átt við að hrun stórbanka geti lamað
hagkerfið. Það er vond stefna að láta
fjármálastofnanir vaxa uns þær hafa náð
þeirri stærð að þjóðarbúskapurinn stend -
ur og fellur með þeim. Reyndar er ekki
alltaf fyllilega ljóst, fyrr en eftir á, hvenær
bankahrun ógnar þjóðarbúskapnum.
Ég las nýlega grein þar sem höfundurinn
hélt því fram að fjórar fjármálastofnanir í
Bandaríkjunum hefðu náð þeirri stærð að
hrun þeirra væri ógnun við þjóðar búskap-
inn en jafnframt væru þessir bankar svo
stórir í sniðum að ríkið hefði ekki bolmagn
til að bjarga þeim. Too big to fail, too big to
save, sagði höfundurinn.
Það þarf að hugsa skipulag fjármála-
stofn ana upp á nýtt. Við höfum lært í
fjár mála kreppunni að eftirlitsstofnanir,
bæði hér og erlendis, hafa ekki roð við
fjár mála fyrirtækjunum. Vanmáttur
eftirlits stofnana stafar meðal annars af
tvennu: tölvuvæðingu fjármálakerfisins
og uppfinningu nýrra flókinna fjárfest -
ingarkosta, samanber títtnefnda vafn-
inga. Einnig skiptir máli, að venjulegir
viðskiptabankar höfðu í aðdraganda
kreppunnar fengið heimild til að reka
„spilavíti“ – þ.e. starfa sem fjárfest ingar-
bankar – en opinberir aðilar tryggðu eftir
sem áður innstæður í bönkunum. Við
þessar aðstæður er daglegt eftirlit illfram-
kvæmanlegt. Umbætur kalla ekki eingöngu
á eflingu eftirlitsstofnana, það nær skammt.
Það er nauðsynlegt að breyta umhverfi
bank anna, breyta leikreglunum og þar
með hvata fjármálamanna og endurskoða
einnig tölvutæknina sem bankar og eftirlits-
stofnanir nota.
uM VAndAnn á eVrusVÆðinu
Skuldavandinn á evrusvæðinu hefur
verið helsta fréttaefnið í álfunni frá
krísunni haustið 2008. Telur þú að
vandinn í Suður-Evrópu, eins og Grikk-
landi, Ítalíu og Spáni, hafi smit ast á lönd
eins og Frakkland og Þýska land en þau
ráða úrslitum um hvort evrusvæðið
fellur eða nær sér á strik? Nýlega var
t.d. lánshæfismat Frakka lækkað vegna
hræðslu um að þeir nái ekki árangri í
niðurskurði í ríkisfjármálum. – Hvernig
er annars hægt að auka hagvöxt og
fram leiðslu í Evrópu án þess að gengi
evrunnar lækki gagnvart öðrum
gjaldmiðlum?
Fréttir úr fjármálaheiminum eru fram reidd-
ar í smábitum með löngum hléum á milli
réttanna svo að erfitt er í miðjum klíðum
að dæma um máltíðina í heild. Sennilega
hefur vandinn í Suður-Evrópu smitað
frændurna í norðri en svo virðist einnig
sem fjármálamenn í Þýskalandi og víðar í
Norðvestur-Evrópu hafi hjálparlaust misst
stjórn á sér í aðdraganda kreppunnar og
Grikkir og Spánverjar ekki komið þar við
„Ég óttast sér stak-
lega slæmar afleið-
ingar af verðbólgu-
vænt ingum og
óstýrilæti Íslend-
inga, ef við tökum
upp alþjóðlega
mynt. Í Þýska landi,
til dæmis, er verð
á vöru og þjónustu
stöðugt eða það
hækkar eftir langt
hlé um 1-3 prósent.
Á Íslandi, svo sem
á þessu ári, hækka
einka aðilar taxta
sína hiklaust um
20-25 prósent og
sama gildir um
opin bera þjónustu.
Al menn laun fylgja
á eftir.“