Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 97
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 97
stjórn un og verkefnastýringu.
Bók in er unnin í samvinnu við
tvo árganga nemenda í meist
ara námi í verkefnastjórnun
(MPM nám). Haukur Ingi og
Helgi Þór nýttu svo það efni
sem grunn í bókina ásamt
sín um eigin skrifum auk þess
að taka út hluta efnisins með
það fyrir augum að úr yrði
heildstætt verk. Fyrir vikið
verður verk ið yfir gripsmikið og
vandað þar sem fram koma
mörg áhugaverð sjónarhorn á
þetta mikilvæga efni. Nokkur
áhersla er lögð á fræðilega
nálgun í bókinni en engu að
síður er hagnýti hennar mikið
sem endur speglast verkefnum/
umhugs unarefnum sem fram
koma í lok hvers kafla. Einnig
eru í bókinni fjölbreyttar æfingar
sem miða að því að auka sam
skiptafærnina.
Viðjar vanans …
Hvernig hægt er að brjótast
úr viðjum vanans og þannig
ná meiri árangri er viðfangs
efni bókarinnar The Power of
Habits, eftir Charles Duhigg. Á
mjög áhugaverðan hátt fjallar
Duhigg um þann árhrifavald
sem vaninn er í lífi og starfi
okk ar flestra, hvernig við þróum
með okkur venjur og hvað
þarf að gera til að brjótast úr
viðj um vanans. Rannsóknir
sýna að meira en 40% þeirra
aðgerða sem við framkvæmum
dag hvern eru ekki byggðar
á meðvituðum ákvörðunum
held ur vana. Vana sem við
höf um ekki alltaf tamið okkur
með vitað. Þessi bók er fyrir alla
þá sem vilja skilja mannlegt eðli
betur og hvað veldur því að
við bregðumst við eins og við
gerum við ákveðnar aðstæður.
Fyrsta skrefið í að brjótast úr
viðjum vanans er að gera sér
grein fyrir hverjar venjur okkar
eru og brjóta þær niður svo við
getum tekist á við áskoranir
dagsins með aukinni meðvitund
og síður hrokkið í sjálfstýringu
með þeim hættum sem því
fylgja. En það eru ekki ein asta
einstaklingar sem festast í
viðjum vanans. Fyrirtæki gera
það líka og með sama hætti má
brjóta upp mynstur í fyrirtækj
um og liðsheildum og þannig
stuðla að auknum árangri.
leyndarmál tekjuhárra
kvenna
Launamunur kynjanna er áber
andi umræðuefni í jafnréttisbar
áttunni. Ástæður þessa munar
eru margar en ein þeirra er
örugglega viðhorf okkar kvenna
til peninga og hvernig við um
göngumst þá eins og Barbara
Stanny, höfundur bókar innar
Secrets of six Figure Women,
heldur fram. Bókin er byggð
á viðtölum við konur sem juku
tekjur sínar umtalsvert á skömm
um tíma og eins þær sem höfðu
um langt skeið haft háar tekjur.
Sameiginleg einkenni þessara
kvenna eru dregin saman í
fjögur megineinkenni: markmið
um að hagnast og hafa jákvætt
viðhorf til þess að eiga pen
inga, dirfska, vilji og þor til að
fara út fyrir þægindahringinn,
þrautseigja og vilji til að halda
áfram þó að á móti blási og
að síðustu eiga þessar konur í
hvetjandi samböndum við sína
nánustu sem gefa þeim orku og
kraft. Þessu til viðbótar tiltekur
höfundur þrjú einkenni sem ekki
eru skilyrði fyrir auknum árangri
en hjálpa til. Þau eru: Góð
sjálfs þekking, að eiga auðvelt
með að sleppa tökum af því
sem ekki virkar eða heldur aftur
af og að síðustu fjármálalæsi,
þ.e. flestar konurnar sem náð
hafa góðum árangri eru læsar á
fjármál og vita hvernig peningar
hegða sér.
markaðssetning
skæruliða
Bókin Guerilla Marketing
eftir Jay Conrad Levinson er
ein þeirra klassísku bóka sem
fjallað var um á árinu. Hún kom
fyrst út árið 1983 og hefur síðan
þá reynst fjölmörgum fyrirtækj
um vel til að nýta markaðsfjár
magnið sem best en mikilvægi
þess er ekki síður mikið í dag
en árið 1983. Í bókinni leiðir
höfundur lesandann í gegnum
það ferli sem hann heldur
fram að sé farsælast þegar
sett er saman markaðsáætlun.
Máli sínu til stuðnings tek
ur hann dæmi, raunveruleg
sem tilbúin, sem eru til þess
ætluð að renna styrkari stoð
um undir hugmynda fræðina
sem og kveikja hugmyndir hjá
lesandanum. Jafnframt vísar
hann í rannsóknir sem gefa
bókinni aukið vægi. Höf undur
eyðir miklu púðri í að bera
saman „hefðbundn ar“ mark
aðs aðgerðir og skæruliða
mark aðssetningu en það sem
einkennir hið síðarnefnda hefur
mikil líkindi við skæruhernað.
Skæru liða markaðsmaðurinn
hefur úr minna fjármagni að
moða en stóru fyrirtækin sem
eyða oft ómældu fjármagni í
mark aðs setningu og nýtir því
óhefðbundnar og fjölbreyttar
leiðir sem koma viðskiptavinum
á óvart og vekja athygli.
bókin the Edge
Bókin The Edge eftir Michael
Heppel er tvímælalaust ein
athyglisverðasta nýja bókin
sem fjallað var um á árinu.
Undirtitill bókarinnar er „hvernig
þeir bestu verða betri“ og má
segja að sú setning sé rauður
þráður í gegnum bókina,
hvernig hægt er að gera enn
betur í dag en í gær. Höfund
ur fjallar á skemmtilegan hátt
um niðurstöðu fjölmargra
samtala sem hann hefur átt
við einstaklinga sem náð hafa
árangri, hvað þessir aðilar eiga
sameiginlegt, hvað þeir gera
og gera ekki sem hugsanlega
skýrir hvers vegna þeir ná
árangri. Grunnhugmyndafræði
bókarinnar er einföld, skýr og
beint í mark.
Höfundur gengur út frá árang
urshring sem er það sem helst
einkennir þá sem árangri ná og
eru „með’etta“. Hringinn mynda
fjórir þættir; árangur, óánægja,
lausn og aðgerðir. Samspil
þess ara fjögurra þátta er það
sem einkennir þá sem ná
árangri og innan hvers þáttar
rúm ast fjölmargir aðrir sem
bókin í sinni einföldustu mynd
fjallar um. Hægt er að byrja
hvar sem er en oftar en ekki
byrjar ferlið á óánægjustiginu,
þ.e.a.s. einstaklingar sem ná
árangri eru líklegir til að spyrja
spurninga eins og „hvernig er
hægt að gera þetta betur“ og
sætta sig ekki við núverandi
ástand. Viðkomandi leitar þá
lausna, grípur til aðgerða og
nær þannig árangri.
Hefur þú setið
gagnslausa fundi?
Síðasta bók ársins er líklega
með þeim hagnýtari sem fjallað
var um á árinu. Allir stjórnend
ur og starfsmenn fyrirtækja
þekkja þann tíma sem fundir
taka frá daglegum verkefnum
og mikilvægum störfum. Flestir
eru sammála um að fundir
inn an fyrirtækja séu of margir
og of fáir þessara funda skili
tilætluðum árangri. Rannsóknir
sýna að stjórnendur verja allt
að 23 klukkustundum á viku
í fundi. 7,8 klukkustundir af
þess um 23 fundaklukkustund
um eru ónauðsynlegir fundir
eða fundir sem illa er stjórnað.
Samtals á ári reiknast það sem
2,3 mánuðir sem sóað er með
þessum hætti.Það er því mikill
ávinningur í því fólginn að bæta
fundamenningu fyrirtækja.
Í bókinni The Modern Meet
i ng Standard ræðst Al Pittam
palli til atlögu við gagnslitla fundi
og leggur til leið sem fyrir tæki
geta farið til að nýta þá fjár muni
sem fara í fundi í formi tíma
þátt takenda með sem besta
móti. Í forgrunni í þessari atlögu
Pittampalli eru sjö lögmál um
markvissa fundi, e.k. leiðarvís ir
til þess að gera fundi markviss ari
og hagkvæmari fyrir fyrirtækið.
Nokkur þessara lögmála eru
t.d. að árangursríkir fundir
styðja ákvörðun sem þegar hef
ur verið tekin, þeir ganga hratt
fyrir sig og lýkur á réttum tíma,
þeir hafa takmarkaðan fjölda
þátttakenda og hafna efni sem
ekki hefur verið undirbúið.