Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 119
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 119
auglýsingum og kynningum?
„Langtímasamband, traust og
ánægju.“
Skýr jafnréttisstefna
Uppfyllir fyrirtækið lög um
kynja hlutfall í stjórn fyrirtæk-
isins?
„Ekki ennþá, í dag eru í
stjórn inni fjórir karlar og ein
kona sem er jafnframt stjórnar-
formaður. Ég geri hins vegar
fastlega ráð fyrir því að kyn-
jahlutfallið verði lagað á næsta
hluthafafundi.“
Hver er jafnréttisstefna
fyrirtækisins?
„Hún er skýr, við mismunum
fólki ekki út frá kyni, aldri,
kynhneigð, trú o.s.frv. Trygg-
ingabransinn hefur í gegnum
tíðina verið frekar karllægur
bransi en hjá TM hefur konum
í ábyrgðarstöðum fjölgað um -
talsvert á síðustu árum. Ég er
mjög ánægður með það og
tel nauðsynlegt að hafa sem
mestan fjölbreytileika meðal
starfsfólksins.“
Hver er stefna fyrirtækisins
varðandi samfélagslega ábyrgð?
„Stefna TM um samfélagslega
ábyrgð er í endurskoðun enda
er ætlunin að gera umhverfis-
málum þar hærra undir höfði.
Við höfum unnið mjög ötullega
að íslenskri kvennaknattspyrnu
á síðustu árum, m.a. með því
að halda tvö knattspyrnumót
fyrir yngstu stelpurnar sem hafa
gengið vel og við erum ein stak-
lega stolt af. Síðan verð ég að
nefna forvarnarmál sjó manna.
Við höfum náð frábærum árangri
á því sviði og það hefur verið
einstaklega ánægjulegt að fylgj-
ast með því verkefni.“
Hefur TM komið sér upp
ákveðnu gildismati til að starfa
eftir?
„Gildi TM eru einfaldleiki,
heið arleiki, sanngirni og fram-
sækni.“
Hver er stefnan í starfsmanna-
málum?
„Við leggjum áherslu á að
félagið sé eftirsóknarverður
vinnustaður. Til að svo megi
verða er mikilvægt að hafa
skýra stefnu og markmið,
miðla markvisst upplýsingum
um árangur og vera fljótur að
bregðast við ef eitthvað óvænt
kemur upp á.“
Allt sorp flokkað
Hver er umhverfisstefna TM?
„Við höfum innleitt vinnu-
aðferðir sem miða að því að
minnka þann úrgang sem
kemur frá daglegri starfsemi,
t.d. eru starfsmenn ekki með
ruslatunnur hver fyrir sig
heldur er allt sorp sem fellur
til flokkað. Við höfum einnig
gert samning við endurvinnslu-
aðila varðandi endurvinnslu
á tjónuðum raftækjum eins og
t.d. símum og tölvum.“
Hvers vegna ættu viðskipta-
vinir að velja þitt fyrirtæki?
„TM hefur mælst með ánægð-
ustu viðskiptavini trygginga-
félaga skv. ánægjuvoginni í
ellefu skipti af þrettán síðan
mælingar hófust. Það segir allt
sem segja þarf um þjónustuna:
Ef eitthvað kemur fyrir þá viltu
vera hjá TM.“
„Við stefnum að
því að innleiða
bestu aðferðir í öllu
því sem við tökum
okkur fyrir hendur
hvort sem um er
að ræða úrlausn
tjónsmála, ráðgjöf
til viðskiptavina
eða fjárfestinga
ákvarðanir.“
Sigurður Viðarsson, forstjóri tM.