Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 85
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 85
„MP banki hefur
þá sérstöðu að vera
eini bankinn sem
er að fullu í eigu
einkaaðila s.s. líf
eyrissjóða, fyrir
tækja og einstakl
inga og hefur enga
ríkisaðstoð þegið
og engan kostnað
bakað skattgreið
endum.“
innlánsform með mismunandi
binditíma en jafnframt hærri
vöxtum. Við höfum einnig bætt
við nýjum útfærslum í íbúða-
lánum. Við bjóðum verðtryggð
og óverðtryggð íbúðalán þar
sem hægt er að velja á milli
breytilegra vaxta og fastra vaxta
með endurskoðun. Lántakend-
ur eiga kost á því að skipta
lánsfjárhæðinni í tvö lánsform;
annars vegar verðtryggt og
hins vegar óverðtryggt.
Við stofnuðum jafnframt
Fast eignasjóð Íslands á árinu
sem fjárfestir í atvinnuhúsnæði
og sjóðafélagið okkar Júpíter
stofnaði á vormánuðum hluta-
bréfasjóðinn ÍS 6 sem náð hefur
mjög góðum árangri í ávöxtun
frá stofnun.
Mikilvægasta vöruþróunin
var stofnun eignaleigusviðs MP
banka sl. vor þegar Lykill tók til
starfa. Lykill er sérstakt vöru-
merki, en að öðru leyti hluti
af MP banka. Lykill hefur náð
miklum árangri á eignaleigu-
markaðnum á þessum stutta
tíma og skiptir þar mestu máli
að við fengum til liðs við okkur
sterkan hóp starfsmanna sem
áður störfuðu hjá SP fjármögn-
un. Lykill býður fjármögnun
fyrir einstaklinga og fyrirtæki
og hefur skipt miklu máli sem
óháður keppinautur á markaðn-
um. Lykill hefur komið fram
með nýjungar í þjónustu og
upplýsingagjöf til viðskiptavina
auk þess að bjóða t.a.m. fasta
vexti fyrstu 24 eða 36 mánuði
bílasamnings.“
engin ríkisaðstoð
Hver er stefna MP banka varð -
andi samfélagslega ábyrgð?
Hefur fyrirtækið komið sér upp
ákveðnu gildismati til að starfa
eftir?
„Ábyrgð bankans gagnvart
samfélaginu er fyrst og fremst
að reka bankann af ábyrgð
með hliðsjón af hagsmunum
við skiptavina, starfsmanna
og eigenda. Við höfum mótað
okkur þá sýn að vera öflugt
fyrirtæki sem skiptir máli fyrir
við skiptavini okkar, íslenskt
atvinnulíf og samfélag. MP
banki hefur þá sérstöðu að vera
eini bankinn sem er að fullu í
eigu einkaaðila s.s. lífeyris sjóða,
fyrirtækja og einstaklinga , og
hefur enga ríkisaðstoð þegið
og engan kostnað bakað
skattgreiðendum. Við áætlum
að við munum greiða yfir 300
milljónir á þessu ári til samfé-
lagsins í formi ýmissa skatta
og gjalda. Við höfum jafnframt
fjölgað um átján stöðugildi
á árinu og höfum lánað yfir
sextán milljarða til atvinnulífs-
ins frá því að nýir eigendur
tóku við vorið 2011. Við höfum
einnig sinnt samfélagsmálum
af ýmsum toga, bæði beint en
einnig á vettvangi samtaka sem
við erum aðilar að, svo sem
Samtaka fjármálafyrirtækja. Þá
erum við styrktaraðili UNICEF
á Íslandi.
Við höfum jafnframt mótað
gildi bankans með starfsmönn-
um og hefur sú vinna strax haft
mikil og góð áhrif á fyrirtækja-
menningu okkar. Gildin okkar
eru fagmennska, metnaður
og drifkraftur. Þessi gildi hafa
mikla þýðingu fyrir okkur og
við munum vinna mikið með
þau efnislega í starfseminni á
næsta ári. Við höfum skilgreint
þessi gildi í stuttu máli þannig
að fagmennska okkar felst í
vönduðum vinnubrögðum og
þjónustu sem byggist á trausti
og trúnaði. Metnaður okkar
felst í viljanum til að takast á
við áskor anir og ná árangri.
Drifkraft ur okkar felst í frum-
kvæði til að koma hlutum af stað
og úthaldi til að klára þá.“
Hildur Þórisdóttir, forstöðumaður mannauðs- og markaðsmála, Ólafur Haraldsson, framkvæmdastjóri viðskiptabanksviðs, Sigurður Atli Jónsson,
forstjóri MP banka, Benedikt Gíslason, framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs.