Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 145
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 145
Regína Ásvaldsdóttir er framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð
fyrirtækja, en tekur við starfi
bæjarstjóra Akraness um miðj
an janúar. Regína hefur byggt
upp starfsemi Festu en félagið
er í eigu sex fyrirtækja. Festa
opnar fyrir ný fyrirtæki nú um
áramótin en áhugi á starfsem
inni hefur farið vaxandi og segir
hún ákveðna vitundarvakningu
í gangi á Íslandi varðandi sam
félagsábyrgð fyrirtækja. Regína
leiðir einnig faghóp hjá Stjórn
vísi um samfélagsábyrgð og
hafa sjötíu aðilar skráð þátttöku
sína í hópnum.
„Erlendis er hugtakið mjög vel
þekkt og það eru oft er
l endir stjórnarmenn íslenskra
fyrirtækja sem kalla eftir stefnu
um samfélagsábyrgð. Svo er
töluvert af ungu fólki að snúa
heim sem hefur lært í góðum
viðskiptaháskólum og er með
mikla þekkingu á viðfangsefninu.“
Það leggst mjög vel í Regínu
að taka við starfi bæjarstjóra
Akraness en hún er fyrsta
kon an sem gegnir starfinu í
sjötíu ára sögu kaupstaðarrétt
inda bæjarins. Regína hefur
langa starfsreynslu á vett
vangi sveitarstjórnarmála. Hún
starfaði lengi sem stjórnandi
hjá Reykjavíkurborg, síðast sem
skrifstofustjóri og staðgengill
borgarstjóra.
„Bæjarstjórastarfið heillar mig
enda er Akranes flott sveitar
félag með frábæra íþróttastarf
semi og hefur einnig verið að
gera mjög góða hluti í mannrétt
indamálum með því að taka
mjög vel á móti flóttafólki. Sjálf
starfaði ég meðal annars sem
framkvæmdastjóri Miðgarðs í
Grafarvogi í fimm ár – það var
eins konar hverfisstjórastarf
sem var mjög skemmtilegt.
Þessi nálægð við íbúa og það
að vera með puttann á púlsin um
í hverfinu átti mjög vel við mig.“
Eiginmaður Regínu er
Birgir Pálsson, deildarstjóri
hjá Advan ia. „Dætur okkar
eru samtals þrjár. Ég á Ernu
Maríu, sem er flugmaður og
flugrekstrar fræðingur og starfar
sem sérfræð ingur hjá Wow air,
og Ýri, sem er fatahönnuður.
Maðurinn minn á Auði Kolbrá,
sem er laganemi.
Birgir, eiginmaður minn, er
mjög spenntur því Garðavöll
urinn er í miklu uppáhaldi en við
munum búa nálægt golfvellin
um. Ég er aftur á móti byrjandi
í golfíþróttinni og ekki ein af
þessum forföllnu, það er nóg
að einn í fjölskyldunni sé með
bakteríuna. Ég hef meiri áhuga
á fjallgöngum og hlakka til að
takast á við Akrafjallið. Svo er
Langisandur og svæðið þar í
kring einstaklega fallegt og gott
til útivistar.“
Þegar viðtalið var tekið fyrir
jól var Regína að undirbúa að
eyða jólunum á Kanaríeyjum
ásamt eiginmanni sínum. „Þetta
er í fyrsta sinn sem ég held jól
án dætranna og það er svolítið
skrýtin tilfinning. En þetta
er mjög góð leið til að hlaða
batteríin fyrir nýju vinnuna. Við
tökum jólapakkana með okkur –
allavega þá hörðu en ég er með
einar tíu bækur á óskalistanum
þetta árið. Auður Ava, Auður
Jónsdóttir og Kristín Eiríksdóttir
skipa þar efstu sætin. Við kíkj
um kannski í golf. Svo væri ekki
verra að finna eins og eitt fjall til
að klífa.“
Regína Ásvaldsdóttir
– framkvæmdastjóri Festu og verðandi
bæj arstjóri á Akranesi
Nafn: Regína Ásvaldsdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík, 30.
júní 1960
Foreldrar: Ásvaldur Andrésson og
Erna María Jóhannsdóttir
Maki: Birgir Pálsson
Börn: Erna María, Ýr og Auður Kolbrá
Menntun: M.Sc. í breytingastjórnun og
nýsköpun frá Háskólanum í Aberdeen.
Cand.mag. í félagsráðgjöf og afbrota-
fræði frá Háskólanum i Osló
„Bæjarstjórastarfið heillar mig enda er Akranes flott sveitarfélag með frábæra íþrótta
starfsemi og hefur einnig verið að gera mjög góða hluti í mannréttindamálum með því að
taka mjög vel á móti flóttafólki.“
fóLk