Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 103
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 103
Hver er stefnumótun Iceland-
air Cargo?
„Megináhersla okkar verður
áfram sú að byggja enn frekar
undir fraktflutninga til og frá
Íslandi. Við erum með stærra
leiðar kerfi en nokkru sinni áður
í sögu Icelandair Cargo, en við
munum bjóða upp á beint flug
með systurfélagi okkar, Ice-
landair, til 37 áfangastaða árið
2013. Það þýðir að við bjóðum
upp á beint flug á flesta staði þar
sem mestu við skiptahagsmunir
Íslands liggja. Öflug tenging
okkar við um heiminn er mjög
mikilvæg fyrir viðskiptavini
okkar og við leggjum áherslu á
að veita þeim framúrskarandi
þjónustu og tengingu við lykil-
markaði þeirra.“
Hvaða nýjar vörutegundir og
vörulínur komu fram á árinu?
„Við erum sífellt að bæta
vöru framboðið okkar með fleiri
áfangastöðum bæði í N-Ameríku
og einnig í Evrópu. Við erum
einnig að vinna í alls kyns
verk efnum og eitt af því sem
við höfum sér staklega lagt
áherslu á upp á síðkastið, og
munum halda áfram að gera, er
kælikeðjan í flutningakerfinu
okkar. Það er mikilvægt fyrir
okkur að vörumeðferðin sé allt-
af fyrsta flokks og nú mælum
við og fylgjumst með ferskum
vörum sem fara í gegn um
kerfið okkar og reynum að
tryggja að þær séu alltaf í
bestu mögulegum aðstæðum
hvað varðar hitastig, til að
tryggja hámarksgæði vörunnar
í flutn ingaferlinu. Það er mjög
mikil vægt þegar við erum með
ferskan fisk og grænmeti, vörur
sem hafa stuttan líftíma og þola
illa hitabreytingar.“
umhverfisstefna og samfé
lagsleg ábyrgð
Hver er stefna fyrirtækis-
ins varðandi samfélagslega
ábyrgð? Hefur Icelandair Cargo
komið sér upp ákveðnu gildis-
mati til að starfa eftir?
„Félagið gerir sér grein fyrir
samfélagslegri ábyrgð og mikil -
vægi þess að sýna ábyrga fram -
komu hvort sem um er að ræða
í samskiptum við viðskipta vini,
starfsmenn eða aðra sem varðar
samfélagið sem við vinnum
í. Við leggjum áherslu á að
fylgja reglum um jafnræði, bæði
gagnvart viðskiptavinum og
starfsmönnum.“
Hver er umhverfisstefna
fyrirtækins?
„Umhverfið er okkur mjög
mikilvægt og við leggjum mik-
ið upp úr að umgangast það
af nærgætni og tryggja að við
lágmörkum öll umhverfisáhrif
frá starfsemi félagsins. Við
leggj um áherslu á að taka upp
vinnubrögð sem stuðla að sjálf-
bærni með því að nýta eins vel
og kostur er allar auðlindir sem
félagið notast við.“
„Við vonumst til
þess að botninum sé
náð í Evrópu og við
munum sjá flutn
inga fara upp á við á
evrusvæðinu í kom
andi framtíð.“
Fjölnir Þór Árnason, forstöðumaður fjármálasviðs, Mikael tal Grétarsson, forstöðumaður útflutnings, ingunn Guðmundsdóttir, forstöðumaður
leiguflugs- og rekstrarsviðs, Sigurgeir Már Halldórsson, forstöðumaður innflutnings, og Gunnar Már Sigurfinnsson framkvæmdastjóri.