Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 144
144 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
Landvernd eru rótgróin umhverfis og náttúruverndarsamtök sem stofnuð voru árið 1969.
Í upphafi snerist starf sam
takanna mikið um gróður og
jarðvegsvernd, ekki síst með
landgræðslu. Í dag er megin
hlutverk samtakanna skil
greint mun víðar sem verndun
íslenskrar náttúru og umhverfis.
Samtökin eru virkur þátttak
andi í stefnumótun, fræðslu
og upp lýstri ákvarðanatöku í
málum sem varða landnotkun,
auðlindir og umhverfi. Guð
mundur Ingi Guðbrandsson er
framkvæmda stjóri Landverndar.
„Stærsti hlutinn af starfsemi
Landverndar eru umhverfis
menntaverkefni og almenn
náttúruvernd. Af umhverfis
menntaverkefnum má nefna hið
svokallaða Grænfánaverkefni
í skólum landsins, þar sem
skólasamfélagið leitast við að
draga úr óæskilegum umhverf
isáhrifum. Þá reka samtökin
umhverfismenntaverkefnið
Bláfánann, sem er alþjóðleg
umhverfisviðurkenning fyrir
baðstrandir og smábátahafnir.
Í fyrra ýtti Landvernd svo úr
vör nýju verkefni um sjálfbæra
ferðamennsku og náttúru
vernd á háhitasvæðum sem
hefur vernd og skynsamlega
umgengni þessara einstöku og
viðkvæmu svæða að markmiði.
Starf mitt sem framkvæmda
stjóri Landverndar felur í sér allt
í senn að sleikja frímerki, svara í
síma, skipuleggja fyrirlestra um
umhverfismál, afla samtökunum
fjár, sinna þátttöku samtakanna
í ákvarðanatöku í samfélaginu,
m.a. með álitsgerðum á þing
málum, skipulagsvinnu sveitar
félaga, gæta hagsmuna náttúru
og umhverfis gagnvart þingi,
sveitarfélögum og fyrirtækjum,
ekki síst með ströngu aðhaldi
og eftirliti. Ég legg mikla áherslu
á þetta mikilvæga hlutverk sam
takanna, að vera málsvari og
málpípa náttúrunnar, sem ekki
getur talað en myndi án efa tjá
sig ef hún gæti. Þessu reynum
við að ná fram í gegnum um
hverfismenntaverkefnin og með
þátttöku í ákvarðanatöku og
þjóðfélagsumræðunni. Og ég
tel það forréttindi að fá að vinna
við það sem ég hef áhuga á, þó
svo að ég vildi að við hefðum
fjárhagslega getu til að hafa
mun fleira fólk í vinnu.
Ég er einhleypur og barnlaus,
en á fimm ára bróðurdótt ur,
Dóru Karólínu, sem er auga
steinn fjölskyldunnar. Mamma
og pabbi búa á Brúarlandi á
Mýrum, rétt vestan við Borgar
nes. Pabbi byrjaði með svín árið
1966, og nú búa hann og eldri
bróðir minn, Brynjúlfur Steinar,
ásamt Theresu mágkonu, með
svín og sauðfé. Mamma mín er
vefnaðarkennari að mennt og
rekur sitt eigið gallerí þar sem
hún selur handunna muni úr
íslensku hráefni.“
Guðmundur Ingi er með
stú dentspróf frá MA og hús
stjórnar fræðipróf frá Hús
mæðra skólanum í Reykjavík.
„Ég er með BS í líffræði frá
Háskóla Íslands, þar sem ég
lagði áherslu á svokallaða stíg
vélalíffræði (andstætt sloppa
líffræði), það er að ég lagði
áherslu á vistfræði plantna og
ferskvatnsfiska og þróunarfræði
þeirra. Er einnig með MS í um
hverfisfræðum frá Yaleháskóla í
Bandaríkjunum. Þá hef ég verið
stundakennari við HÍ frá 2006 í
umhverfisfræði og vistfræði og
einnig kennt vistfræði í háskóla
setrinu á Ísafirði.
Áhugamál eru fyrst og fremst
útivist og útivera, helst göngur
úti í friðsælli náttúru Íslands.
Þannig að áhugamál og vinna
samtvinnast afar mikið, það er
verndun íslenskrar náttúru. Ég
er einnig mikill áhugamaður um
leikhús og fólk almennt. Síðan
eru fjölskyldan og vinahópurinn
mér afar mikilvæg og ég reyni
að verja sem mestum frítíma
með því góða fólki.
„Passionið“ mitt er að hálendi
Íslands verði griðastaður þjóð
arinnar, svæði sem við höldum
utan frekari orkunýtingar og
byggjum ferðaþjónustu upp
án of mikilla áhrifa á náttúruna.
Við eigum lítt snortin víðerni
á hálendinu sem við verðum
að bera gæfu til að standa
vörð um. Þau eru einstök á
evrópskan mælikvarða, ein af
fáum sem eftir eru. Þá tel ég
mikilvægt að vinna að endur
heimt víðerna á hálendinu.“
Þegar viðtalið var tekið var
Guðmundur Ingi á leiðinni í
jólafrí. „Ég tek mér langt jólafrí
og ætla í eina viku til hinnar afar
fögru eyju Tenerife, þar sem
hæsta fjall Spánar er. Stefni á
að ganga á fjallið og dvelja svo
í Lundúnum með vinum.“
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
– framkvæmdastjóri Landverndar
Nafn: Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Fæðingarstaður: Akranes,
28. mars 1977
Foreldrar: Guðbrandur Brynjúlfsson
bóndi og Snjólaug Guðmundsdóttir
vefnaðarkennari
Menntun: BS í líffræði frá Háskóla
Íslands. MS-próf í umhverfisfræðum
frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum
„Við eigum lítt snortin víðerni á hálendinu sem við verðum að bera gæfu til að standa
vörð um. Þau eru einstök á evrópskan mælikvarða, ein af fáum sem eftir eru.“
fóLk
TexTi: HilMAr KArlsson