Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 48
48 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
uM sKuldir rÍKJA, KrePPu
oG fJárlAGAHAllA
Flestar viðskiptafréttir á árinu 2012
hafa gengið út á að hagkerfi heimsins
spóli og að minni eftirspurn sé í heims-
versluninni. – En hvað hefur að þínu
mati verið efst á baugi á meðal fræði-
manna í hagfræði á árinu 2012?
Hagfræðin skiptist í undirgreinar, eins
og til dæmis læknisfræðin þar sem augn -
lækningar, innkirtla- og efna skipta lækningar
og þvagfæraskurð lækn ingar eru sjálfstæður
vettvangur sérfræðinga enda þótt ýmsar
sér greinar eigi margt sameiginlegt. Kreppan
alþjóðlega, sem fyrst gætir 2007-2008,
hef ur einkum komið róti á fræðaheim
þjóð hag fræðinga og fjármálasérfræðinga.
Við fangsefni þjóðhagfræðinnar (macro -
ec onomics), hagsveiflur og jafnvægi hag -
kerfa, er flókið mál og erfitt úrlausnar. Enda
þótt flestir þjóðhagfræðingar séu á einu
máli um fjölmörg fræðileg atriði er meiri
ágreiningur í þjóðhagfræði um mikil væg
mál en í flestum öðrum greinum hag fræð -
innar. Sumir þjóðhagfræðingar kenna sig
við fræði J. Maynards Keynes og segjast
vera ný-keynesistar, aðrir segjast vera ný
-monitaristar og byggja að hluta á kenn -
ing um Miltons Friedmans og ýmis önnur
blæ brigði þekkjast.
Mikil vandi blasir við þeim sem um þessar
mundir bera ábyrgð á stjórn efnahagsmála.
Mörg vestræn ríki eru stórskuldug, meðal
annars vegna bankahruns, og jafnframt
hrjáir þau kreppa og mikið atvinnuleysi.
Hvað er til ráða? Er brýnast að jafna
ríkis fjármálin með skattahækkunum og
niður skurði ríkisútgjalda og greiða niður
skuldirnar eða er farsælast að vinna fyrst
bug á atvinnuleysinu með því að auka
ríkisútgjöldin og lækka skatta – og þar með
dýpka skuldirnar?
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur jafnan
mælt með skattahækkunum og niðurskurði
við þessar aðstæður en nú eru ýmsir for -
ystumenn sjóðsins á báðum áttum. Vegna
þess að mörg ríki voru afar skuldsett við
upphaf kreppunnar getur hallarekstur
endað með greiðsluþroti, einkum ef efna -
hagsbatinn lætur á sér standa.
Efnahagsbati er yfirleitt háður því að út -
flutni ngsgreinar kreppuríkja séu vel reknar
og geti keppt á erlendum mörkuðum. Víða
standa útflutningsfyrirtæki illa og þörf er
á umbótum á vinnumarkaði og endur -
skipu lagningu á viðskiptaumhverfinu
til að viðreisn geti heppnast, en slíkar
aðgerð ir eru yfirleitt erfitt pólitískt mál.
Hag fræðinga greinir á um það hver hin
raunverulega staða er: Er brýnt að endur -
skipuleggja atvinnulífið? Er líklegt að
hag vöxtur taki snarlega við sér og létti
sjálfkrafa skuldabyrðina? Er hætt við að
kröftug innspýting leiði til verðbólgu? Er
verð bólga kannski af hinu góða og lausn
vand ans (eins og Paul Krugman heldur
fram í lausbeisluðum greinum sínum í New
York Times)?
uM Horfur Í HeiMinuM
nÆsTu 20 árin?
Annað stærsta hagkerfi heims, Kína,
hefur verið að kólna og útlitið er ekki
bjart í Bandaríkjunum og Evrópu. Hag-
vöxtur í Þýskalandi er meira að segja
að minnka. – Hvaða ríki verða það sem
munu rífa hagkerfi heimsins upp úr
farinu og auka heims eftirspurnina?
Í Bandaríkjunum var nýlega gefin út
skýrsla sem Öryggisráð ríkisins (National
In tell igence Council) vann að í fjögur
ár. Í skýrslunni eru metnar horfurnar í
heim inum næstu 18-20 ár með áherslu á
efnahagsmál og stöðu Bandaríkjanna. Þar
segir að mikilvægasta breytingin næstu tvo
áratugina verði upprisa voldugrar milli -
stéttar á heimsvísu – væntanlegir neyt endur
með þokkalega menntun og tekjur. Rúss -
land er sagt vera á niðurleið og almennt
þau ríki sem eru mjög háð útflutningi á olíu
og jarðgasi. Kínverska hagkerfið mun vaxa
hratt og verða stærra en það bandaríska.
Helmingur jarðarbúa mun glíma við
vatns skort. Árásir á tölvukerfi verða fyrir -
ferðar miklar og ógna daglegu lífi til dæmis
í Bandaríkjunum og Evrópu og mikil hætta
stafar af líklegum efnavopnaárásum öfga -
hópa. Hækkandi meðalaldur Evrópuþjóða
og þjóða í Suðaustur-Asíu mun draga úr
hagvexti þar um slóðir og vegur ríkjanna
mun minnka hlutfallslega.
Skýrslan er bjartsýn um framtíð
Banda ríkjanna einkum vegna þess að
nýfundnar jarðgas- og olíulindir munu
gera landið óháð innflutningi orku gjafa.
Heimshagkerfið verður minna háð Vestur-
löndum en áður og hag vöxtur á heims -
vísu mótast töluvert af efnahags ár angri
þróunarríkja sem eru á uppleið, svo sem
árangri Brasilíu, Kólumbíu, Ind lands,
Indónesíu, Nígeríu, Suður-Afríku og
Tyrk lands. Ekkert eitt ríki mun gegna for -
ystuhlutverki í heiminum, eins og Banda -
ríkin hafa gert, en ríkjabandalög gætu ráðið
ferðinni, einkum ef Kínverjar og Bandaríkja -
menn ná að vinna saman.
En þú spyrð um horfurnar næstu eitt til
fimm ár, ekki tuttugu ár. Ég útiloka ekki að
Bandaríkin, Kína og Þýskaland eigi eftir að
leiða uppsveiflu á næstu árum en margt
getur breytt þeirri spá. Mannkynssagan er
skrifuð eftirá en ekki fyrirfram.
uM fJárfesTinGu Í MennTun
Hagfræðin fjallar mikið um ævitekjur
og að sterk fylgni sé á milli menntunar
og efnahags fólks. Mörgum Íslendingum
finnst þessi kenning ekki eiga við á
Íslandi þar sem viðbótartekjur af við -
bótar menntun séu ekki nægilega miklar
hér á landi. – Hver er þín skoðun á
menntun í dag sem fjárfestingu þegar
sífellt fleiri eru með langskólanám og
fram boð af háskólamenntuðu fólki hefur
stóraukist?
Í framhaldsnáminu var mín upphaflega
sérgrein vinnumarkaðurinn og mannauður,
fjárfesting í menntun. Á ensku er talað um
human capital og ég þýddi það hugtak
sem mannauður, þegar ég kom heim frá
námi. Fjárfesting fólks í háskólamenntun
er framboðsmegin á vinnumarkaðnum
en ávöxtunin er háð eftirspurninni eftir
starfskröftum með viðkomandi menntun.
Ég á von á því að eftirspurn eftir háskóla-
menntuðu fólki verði mikil á næstu
ára tugum. Við erum stödd í fyrsta áfanga
„Eðli svokallaðrar
um ræðu hefur
versnað, margir
hafa sýnt sínar
verstu hliðar og
eitur ský neðan úr
dýpstu holræsum
net heima hvílir
yfir land inu. Hvar
sem ég kem kvarta
nær allir meira
undan eitr aðri um -
ræðu en efnahags -
vandanum.“
efnaHagsMáL