Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 66
66 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
Feðgarnir jóhann Páll valdimarsson og egill örn jóhannsson í Forlaginu
eru menn ársins í atvinnulífinu 2012 að mati Frjálsrar verslunar
Það er hægt að hagnast á bókaútgáfu. Feðgarnir jóhannPállValdimarsson og EgillÖrnjóhannsson
stýra Forlaginu, langstærsta útgáfufélagi landsins, af miklum myndarbrag og hefur árangur fyrirtækisins
vakið mikla athygli. Það velti 1.267milljónum á síðasta ári og hagnaðist um 104milljónir eftir skatta.
Eigið féð var tæplega 1,1milljarður og heildareignir metnar á 1.749milljónirkróna. Forlagið gefur út
bækur undir merkjum JPV, Máls og menningar, VökuHelgafells og Iðunnar og rekur auk þess metnaðar
fulla kortaútgáfu. Þá er Heimskringla háskólaútgáfa einnig innan vébanda félagsins.
Jóhann Páll og fjölskylda eiga 50% í Forlaginu á móti Máli og menningu Bókmenntafélagi,
sem er sjálfseignarstofnun.
Heimur bókaútgáf-unnar er óneitan-lega margbreyti-legur. Sem gefur að skilja snýst hann ekki aðeins um debet og kredit
og hann snýst heldur ekki um að fram-
leiða vöru sem rennur í gegnum hendur
kaup andans sem stundarneysla. Og það
er ekkert línulegt við það ferli að gefa út
bók. Á bak við hverja bók er hugmynd og
á bak við hverja bókaútgáfu er hugmynda-
heimur. Það er því vonlegt að það hafi
nokkurn aðdraganda að hefja umræðu um
viðskiptahlið útgáfufélags eins og Forlags-
ins ehf. Sérstaklega þegar viðmælendurnir
eru útgefendur í annan og þriðja ættlið og
þekkja þar af leiðandi útgáfusögu Íslands
eins og hún leggur sig, eða því sem næst!
Feðgarnir Jóhann Páll Valdimarsson og
Egill Örn Jóhannsson stýra Forlaginu,
langstærsta útgáfufélagi landsins. Þeir eru
menn ársins í íslensku viðskiptalífi þetta
árið. Þar sem ég sit á móti þeim í skrifstofu
Jóhannns Páls á Bræðraborgarstíg 7, undir
taktföstum slætti loftpressunnar fyrir utan,
virðast þeir feðgar ekkert mjög uppnumdir
yfir þessari upphefð, taka þó fram að sér
þyki vænt um tilnefninguna. Viðskipti eða
„business“ eru þó ekki endilega það sem
þeir vilja ræða, játa meira að segja að þeir
hafi ótrú á Excel, þessum töflureikni sem
Microsoft færði okkur og allt virðist velta á
í vel reknum fyrirtækjum. En ekki þar fyrir,
rekstur Forlagsins er til fyrirmyndar, nú
sem áður. Félagið hefur alltaf verið rekið
með hagnaði, eða allt síðan það var stofnað
2001. Síðustu ár hefur Forlagið státað af 10
til 15% hagnaði af veltu. Eiginfjárstaðan er
traust og skuldir litlar sem engar. Þetta er
líklega staða sem margir myndu öfundast
yfir og það jafnvel í starfsgreinum sem að
öllu jöfnu væru taldar ábatasamari.
Forlagið er ekki mikið félag í hinu stærra
samhengi, með söluveltu upp á um 1.250
milljónir króna á síðasta ári og hagnað upp
á 104 milljónir króna. Hluthafar eru ekki
margir en hafa notið þokkalegra arðgreiðslna
undanfarin ár. Hjá félaginu starfa um fjörutíu
fastráðnir starfsmenn og fjölskyldu böndin
eru sterk. Feðgarnir koma sem einn maður
að rekstri félagsins en játa að ákveðin verka-
skipting sé á milli þeirra, hver hún hins
vegar nákvæmlega er getur verðið misjafnt
milli daga. Oft er annríkið það mikið að
þeir ná ekki að hittast til að ræða málin, þá
verður að treysta á að fjölskyldutakturinn
tryggi það samræmi sem þarf. Fyrir fund-
inn með þeim feðgum hafði mér verið tjáð
að þeir styddu vel hvor við annan; Jóhann
Páll væri funi, kappsfullur og léti stýrast af
tilfinningum umfram rökhyggju. Á sama
tíma væri Egill rólegur og yfirvegaður, liti
á taflstöðuna heildstætt áður en hann mæti
hvort leggjast skyldi í vörn eða sókn. Þegar
faðirinn vildi prenta meira segði sonurinn
að nóg væri komið. Þeir verða kankvísir
þegar þessi lýsing er borin undir þá en Jó -
hann Páll játar að þetta sé ekki fjarri lagi. Að
hluta til sé þetta fullkomið fyrirkomulag.
Báðum verður þeim tíðrætt um að innsæi
skipti miklu máli, að finna það með nefinu
hvort bók er líkleg til að ná árangri. Slíkt
geti aldrei orðið reiknanleg niðurstaða. Og
þeir hafa engan áhuga á að finna reiknan-
lega niðurstöðu í útgáfu sinni. Það taki
sjarmann í burtu. Framkvæmdastjórinn
Egill hefur meira að segja fágæta vantrú á
töflureikninum góða: „Excel er algerlega
bannaður í rekstri þessa fyrirtækis og áætl-
anagerð í Excel kemur ekki til greina enda
er hann að okkar mati tæki til að búa þér til
niðurstöður sem þú ákveður fyrirfram og allt
sem kemur þar á milli er bara óskhyggja.“
Jóhann Páll segist hjartanlega sammála
þessu og segir að mörg af þeim verkum
Menn ársins
ViðTAl: siGurður Már Jónsson
Myndir: Geir ólAfsson
feðgarnir í
forlaginu