Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 138
138 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
HLjóMSVEIT
nÚtíðar og
FrAMTÍðAr
Hljómsveitin Retro
Stefson var stofnuð í
byrj un ársins 2006 og
hefur starfað í ýms-
um myndum síðan.
Árið 2008 kom fyrsta
breiðskífa sveitarinnar
út en hún bar nafnið
Montana. Hljómsveit-
in hefur alls fimm
sinnum leikið á iceland
airwaves, þrátt fyrir
ungan aldur. Nýlega
kom þriðja hljóðvers-
plata bandsins
út á Gogoyoko og
heitir hún Retro
Stefson.
Á
plötunni, sem státar af tíu frum
sömdum lögum, hafa lögin
Qween og Glow þegar slegið í
gegn. Einstaklega skemmtilegt
mynd band við lagið Glow hefur
vakið mikla lukku og farið víða. Hljómsveitin
hélt upp á útgáfu nýju plötunnar með pomp
og prakt á tvennum tónleikum í Iðnó og
í kjölfarið var svo brunað í Borgarnes og
til Akureyrar í þeim tilgangi að kynna nýju
plöt una.
Þroskuðdanstónlist
Bræðurnir Unnsteinn og Logi gáfu sér tíma
frá annríkinu til að spjalla við blaðamann
sem lék forvitni á að vita hvernig sveitin skil
greinir tónlist sína. Tónlistin á nýju plötunni
er fjölbreytt og virðast áhrifavaldar vera í
ætt við stefnur eins og futurebeats, garage,
halfstep og nur’n’b.
En hvað segja bræðurnir sjálfir?
Unnsteinn og Logi:
Við viljum ekki beinlínis skilgreina tónlistina
okkar en vissulega eigum við ýmsa áhrifa
valda allt frá því að við vorum unglingar.
Þá hlustuðum við á alls konar tónlist, þó
ekki breska eða bandaríska, en mikið á t.d.
reggí. Það er þó óhætt að segja að Retro
Stefson spilar yfirleitt alltaf danstónlist.
Tónlistarsmekkurinn þróaðist með árunum
og var mismunandi á hverjum tíma, eins og
gengur og gerist. Það urðu t.d. ákveðnar
breytingar á áhrifavöldum innan tónlistar
geirans þegar við fórum í menntaskóla og
út frá því að fara í klúbbana.
Nýja platan okkar er þroskaðri en þær
fyrri og við fáum nokkra frábæra gesti eins
og Örvar Þóreyjarson Smárason (Múm, Fm
Belfast), söngkonuna Sigríði Thorlacius
(Hjaltalín) og Sigtrygg Baldursson (Sykur
molunum). Við takkaborðið er svo Svein
björn Thorarensen (Hermigervill) og Styrmir
Hauksson sá um tónjöfnun.
Á geisladisksútgáfunni verða sjö mismun
andi kápur þar sem Ari Magg sá um ljós
myndunina en Halli Civelek um liststjórnun.
RETRo STEfSoN
Myndir: Geir ólAfsson / TexTi: Hrund HAuKsdóTTir
sveit ársins