Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 118
118 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
Hjá TM starfar um 130 manna samhentur hópur sem hefur það markmið að veita góða þjónustu á
mannlegum nótum þar sem þörfum hvers og eins er mætt af sanngirni.
Metnaðarfullt og
framsækið fyrirtæki
Sigurður Viðarsson er
for stjóri TM.
Hvaða árangur fyrirtækis þíns
ert þú ánægðastur með á árinu?
„Ég er fyrst og fremst ánægð-
ur með hversu vel hefur gengið
að viðhalda þeim góða árangri
sem við höfum náð á undan-
förnum árum, bæði hvað
varðar daglegan rekstur en ekki
síður hvað varðar þjónustu við
viðskiptavini.“
Skráning í kauphöll
framundan
Hvað bar hæst á árinu hjá TM?
„TM-dagurinn 2012, sem
hald inn var í september sl.,
er mér ofarlega í huga. Þar
komu allir starfsmenn, umboðs-
menn og starfsmenn umboða
saman til þess að vinna að
þjónustumálum TM. Mér fannst
það heppnast frábærlega.
Kaup lífeyrissjóða og annarra
innlendra fjárfesta á 60% hlut í
félaginu voru kláruð í nóvem-
ber og setti söluferlið svip á
starfsemina á árinu. Þá eru
spennandi tímar framundan
þar sem stefnt er að skráningu
félagsins í Kauphöll á fyrri
helmingi næsta árs.“
Hvernig metur þú horfurnar á
næsta ári?
„Ég hef væntingar til þess
að við munum halda okkar
striki hvað varðar góða afkomu
og framúrskarandi þjónustu
við viðskiptavini. Það verður
einnig spennandi að sjá hvernig
fjármálamarkaðir þróast bæði
hér heima og erlendis, mikil
óvissa er ríkjandi sem gerir
okkur sem fagfjárfesti erfitt um
vik. Það er mikil áskorun í því
falin að finna góða fjárfestinga-
kosti á Ísland í gjaldeyrishöft-
um. Það er þó fagnaðarefni að
endurreisn hlutabréfamark-
aðarins er hafin og fjárfestingar-
kostunum fjölgar.“
Stefnumörkunin mjög
virkt ferli
Hver er stefnumótun fyrir-
tækisins?
„Stefna TM er að veita við-
skiptavinum sínum afburða-
þjónustu ásamt því að skila
eigendum sínum góðum arði.
Við stefnum að því að innleiða
bestu aðferðir í öllu því sem
við tökum okkur fyrir hend-
ur, hvort sem um er að ræða
úrlausn tjónamála, ráðgjöf til
viðskiptavina eða fjárfestinga-
ákvarðanir. Stefnumörkun TM
er mjög virkt ferli og við setj-
u mst vel yfir þau mál, a.m.k.
árlega. Við horfum til fimm ára
í senn og erum með mjög vel
skilgreind verkefni og mark-
mið, a.m.k. 12-18 mánuði fram
í tímann.“
Hvaða nýjar vörutegundir og
vörulínur komu fram?
„Við hófum sölu á barna-
trygg ingu TM á árinu en
tryggingin veitir góða vernd
gegn afleiðingum sjúkdóma og
slysa sem börn kunna að verða
fyrir. Þá settum við á laggirnar
vefsíðu, bornogforeldrar.tm.is,
sem gerir fólki kleift að átta
sig vel á þörf sinni fyrir líf- og
heilsutryggingar.“
Á hvað leggur TM áherslu í
Upplýsingar Um fyrirtækið:
Velta: Rúmir 11 milljarðar (2011) Fjöldi starfsmanna: 132 Forstjóri: Sigurður Viðarsson Stjórnarformaður: Elín Jónsdóttir Stefnan:
„Ef eitthvað kemur fyrir þá vilt þú vera hjá TM.“
TexTi: Hrund HAuKsdóTTir / Mynd: Geir ólAfsson
uM áraMót
TM