Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 90
90 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
„Þetta eru stór verkefni sem öll tengjast markmiðum Thule Investments um að byggja upp grunn
fyrirtæki nýrra atvinnugreina og nauðsynlegar stoðir fyrir þau. Thule vinnur m.a. markvisst að því
að gera að veruleika nýjan sæstreng til Íslands sem hluta af streng Emerald Networks,“ segir dr.
Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Thule Investments.
Uppbygging grunnfyrirtækja
nýrra atvinnugreina
Gísli Hjálmtýs-son segir að þau hafi mörg verið spenn-andi verkefnin
sem unnið var að á árinu og
starfsmenn fyrirtækisins eru
stoltir af. Á meðal verkefnanna
er undirbúningur og vinna við
mótun nýrrar fjárfestingarhug-
myndar sem hefur það að
mark miði að hvetja til frekari
tækifæra í nýjum greinum
íslensks atvinnulífs.
„Við lögðum á árinu einmitt
veru lega mikla vinnu í slík
verkefni,“ segir Gísli. „Eitt
þeirra snýr að fjárfestingu í
nýj um sæstreng til Íslands sem
er nauðsynlegur til að treysta
grundvöll fyrir rekstur gagna-
vera. Vísir að gagnaversiðnaði
hefur þegar myndast en til þess
að hann geti eflst og dafnað
fyrir alvöru er nauðsynlegt
að leggja nýjan afkastamikinn
sæstreng til Íslands og jafn-
framt að fá beina tengingu til
Bandaríkjanna.“
Gísli vill líka nefna annað
mjög ánægjulegt verkefni en
það snýr að fyrstu umtalsverðu
endurgreiðslu félagsins til fjár-
festa úr fagfjárfestingasjóðnum
Brú II Venture Capital Fund.
Sjóðurinn var stofnaður haustið
2005 og starfar undir eftirliti
fjármálaeftirlits Lúxemborgar.
Flestir stærstu lífeyrissjóðir
landsins, tryggingafélög og
aðrir fagfjárfestar eru meðal
fjár festa í sjóðnum.
nýr sæstrengur
Gísli metur horfur góðar á
næsta ári og segir að starfsmenn
fyrirtækisins hafi miklar vænt -
ingar til þeirra verkefna sem
unnið er að og verða fyrir ferðar-
mikil í rekstrinum á nýju ári.
„Þetta eru stór verkefni sem
öll tengjast markmiðum Thule
Investments um að byggja upp
grunnfyrirtæki nýrra atvinnu-
greina og nauðsynlegar stoðir
fyrir þau. Thule vinnur m.a.
markvisst að því að gera að
veruleika nýjan sæstreng til
Íslands sem hluta af streng
Emerald Networks. Þá erum
við að vinna með aðilum sem
hafa áhuga á gagnaverum
hér á landi. Við trúum því að
grunnstoðir efnahagslífins
styrkist á árinu og að í kjölfar
alþingiskosninga í vor leysist
úr læðingi frekari kraftur til
nýrrar sóknar í efnahagsmálum
þjóðarinnar.“
Meginmarkmið Thule Invest-
ments er að fjárfesta í ungum
fyrirtækjum sem starfa á sviði
nýrra atvinnugreina, einkum
þeirra þar sem verð mæta sköp-
un er mikil fyrir hvern starfs-
mann og miðað við fjárfestingu.
„Við viljum stuðla að frekari
áhuga á stofnun slíkra fyrir-
tækja þannig að nýjar greinar
at vinnu lífs nái fótfestu á
Ís landi. Ísland þarf fjölbreytt at-
vinnulíf útflutningsgreina sem
er samkeppnishæft alþjóðlega.
Við horfum sérstaklega til fyrir-
tækja þar sem ungt, menntað
og sérhæft starfsfólk er innan-
borðs, einkum í þekkingar- og
hátækniiðnaði. Við teljum að
í þessum greinum felist mikil
tækifæri hér á landi og þar með
einnig fyrir fjárfestingarstefnu
Thule Investments.“
Upplýsingar Um fyrirtækið:
Velta: 87 milljónir fjöldi starfsmanna: Átta (6FTE) stjórnarformaður: Gísli Hjálmtýsson Stefnan: „Meginmarkmið Thule Investments er
að fjárfesta í ungum fyrirtækjum sem starfa á sviði nýrra atvinnugreina.“
TexTi: sVAVA JónsdóTTir / Mynd: Geir ólAfsson
uM áraMót
Thule Investments