Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 129
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 129
hVernig kemur Þú
fram á Vörusýningum?
vörur eða þjónustu. Þú mátt ekki
undir nokkrum kringumstæð um
láta viðmælandann draga þig
niður á sitt stig.
Að vera sýningaraðili felur oft
í sér mikla fjárfestingu fyrir lítil
fyrirtæki. Það krefst líka mikils
og góðs undirbúnings. Til að
auka líkur á að fjárfestingin
borgi sig ber að nota tímann vel
og læra að þekkja þá sund
ur sem líklegir eru til að verða
viðskiptavinir þínir og þá sem
eru staðráðnir í að eyða tíma
þínum til einskis. Þetta er lær
dóm ur sölumannsins sem oft
kemur með tímafrekri reynslu
af mannlegum samskiptum.
Líkamstjáning getur til dæmis
sagt mikið án orða. Fylgstu
með hverfulu augnaráði og fasi
sem gefur áhugaleysi til kynna.
Mundu að náunginn með
poka fullan af bæklingum og
kynn ingarefni er líklegast ekki
fjár hagslegur hvalreki, heldur
penna safnari.
TEnGSLAnETIðSTyrkT
Þetta er staðurinn til að byggja
upp tengslanetið. Nafnspjöld
eru mikilvægur hluti þess að
mynda tengslin. Hafðu þín
spjöld aðgengileg, til dæmis í
nafn spjaldaöskju sem auðvelt
er að opna. Ekki rétta það fram
eins og þú sért að dreifa spilum
á pókerborði og alls ekki með
vinstri hendinni, því í mörgum
löndum er það talinn argasti
dónaskapur. Ef þú venur þig á
að nota þá hægri ertu um leið
að koma í veg fyrir að gera
alvarleg samskiptamistök, sama
hvar þú ert í heiminum.
Passaðu samt að þau séu
ókrumpuð og alfarið laus við
hundseyru. Þegar þú tekur
við spjaldi frá viðmælanda
skaltu lesa á það og veita því
athygli um leið og þú færð það
í hendur. Það sýnir virðingu og
kurteisi. Ókurteisi væri að setja
það beint í rassvasann, heldur
skaltu setja það á öruggan
stað, jafnvel í veskið þitt eða
fyrir aftan þín eigin nafnspjöld í
öskjuna.
Gott ráð er að skrifa aftan á
nafnspjaldið frekari upplýsingar
til að rifja upp seinna meir, til
dæmis upplýsingar um hvað
var rætt. Þegar heim er komið
skaltu fylgja tengingunni eftir
með því að senda viðkomandi
tölvupóst, þakka fyrir ánægju
leg kynni og vísa með nokkurri
nákvæmni í samtalið sem fór
ykk ur í millum. Gott er til þess að
vita að flestir snjallsímar bjóða
upp á innskönnun nafnspjalda.
Passaðu bara upp á að upplý s
ingarnar fari rétt inn í tölvuna.
HInGÖMLUkynnI
GLEyMASTEI
Fagsýningar snúast ekki bara
um það að ganga milli bása
eða taka á móti gestum í þá.
Oftast eru viðburðir haldnir
utan sýningarsalarins, svo sem
kvöld verðir, kokteilboð eða
jafnvel stutt ferðalög. Stund um
eru þeir haldnir áður en sýn
ing in er formlega opnuð. Ef þú
kemst hjá því skaltu forðast að
nota sömu fötin á þess konar
við burðum og á sýningunni
sjálfri, sérstaklega ef þú ætlar
að klæðast fötum með lógói
vinnu veitandans. Þetta eru tveir
aðskildir staðir – umhverfið
annað og frjálslegra. Notaðu
tæki færið til að nálgast fólk með
öðr um hætti og skiptu niður úr
sölu gírnum.
Ef þú drekkur eitthvað áfengt,
gættu þess þá að drekka ekki
of mikið, ekki of hratt og alls
ekki á tóman maga. Það á
reynd ar ekki að þurfa að segja
þetta við fullorðið fólk. Víða í
Asíu er hefð fyrir því að láta
gesti drekka vel og mikið undir
borðhaldi. Það sést til dæmis
vel á hugtakinu ganbei sem not
að er yfir skál á kínversku, sem
þýðir í raun tómt glas – skál í
botn. Þetta reynist mörgum erfið
prófraun, því gestgjafar geta
móðgast illilega og jafnvel neit
að viðskiptum ef ekki er drukkið
almennilega. Gættu þín vel og
notaðu klókindi til að komast
hjá því að missa fótanna undir
þannig kringumstæðum, til
dæm is með því að drekka vatn í
stað áfengis.
FÖTInSkAPAMAnnInn
Hér kemur að stórum þætti í
þeirri ímynd sem þú vilt varpa
fram. Klassískur jakkafatastíll
hentar yfirleitt best, en gott er
að hafa rými til fjölbreytni og
haga seglum eftir vindi. Sé
þetta ferðaþjónustusýning og
þú að selja bændagistingu á
Íslandi væri tilvalið að skera sig
úr fjöldanum og vera í fallegri
lopapeysu eða með einhverjum
hætti aðgreina þig frá öðrum. Of
áberandi fatnaður getur dregið
athyglina frá þér og þeim skila
boðum sem þú hefur fram að
færa. Konur ættu til dæmis að
gæta að því að vera ekki í of
flegnu vegna sömu ástæðna –
skoran á ekki að vera athyglis
segull.
FræGðArFÖr
Skynjun fólks á hver þú ert
og hvað þú hefur að segja
stjórnast að miklu leyti af því
sjálfstrausti sem þú berð með
þér. Til að styrkja það skaltu
leita fyrir þér á netinu um
við skiptasiði í því landi sem
þú ert að fara til. Notaðu þó
hyggju vitið til að greina góðar
upp lýsingar frá vondum þar.
Hafir þú haldgóðar upplýsingar
um hvað tíðkast og er vel liðið á
þeim stöðum sem þú heimsækir
getur það gert þig betur til
þess fallinn til að ná árangri,
þó ekki væri nema vegna þess
að sjálfstraustið hefur aukist.
Fagmannleg framkoma er vísir
að góðri kynningu og getur leitt
til arðbærra tengsla. Þannig
eykurðu verðgildi skilaboðanna
sem þú hefur fram að færa,
býrð til sölur og stofnar jafnvel
til tryggðamála sem seint
gleymast. Það tekur meðal
manninn um fimmtán sekúndur
að mynda sér álit á þér við
upp haf kynna. Á fagsýningum
er mikilvægt að þær sekúndur
séu notaðar rétt og allt þitt fas
endur spegli hlutverk þitt sem
fulltrúi fyrirtækisins.
„Það tekur meðal
manninn um fimm
tán sekúndur að
mynda sér álit á þér
við upphaf kynna.
Á fagsýningum er
mikilvægt að þær
sekúndur séu not
aðar rétt og allt
þitt fas endurspegli
hlut verk þitt sem
fulltrúi fyrirtækis
ins.“
„Fagsýningar snúast
ekki bara um að
ganga milli bása
eða taka á móti
gest um. Oftast eru
viðburðir haldn ir
utan sýningarsal
arins, svo sem
kvöldverðir, kokteil
boð eða jafnvel stutt
ferðalög. Stundum
eru þeir haldnir
áður en sýningin er
formlega opnuð.“