Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 60
60 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
Það sem stendur upp úr af fréttum ársins á sviði geðlækninga eru niðurstöður rann
sókna á áhrifum svæfingalyfsins
ketamíns á þunglyndi. Virknin
kemur miklu fyrr en með þeim
þunglyndislyfjum sem nú eru
not uð og, það sem meira er,
verkar eftir allt öðrum leiðum
en þau. Ketamínið sjálft er þó
ekki heppilegt lyf til almennrar
notkunar vegna slæmra auka
verkana og hættu á misnotkun.
En þessar niðurstöður hafa opn
að nýjar víddir í skilningi okkar
á þunglyndi og möguleikum á
þróun nýrra og árangursríkari
lyfja til að takast á við þann erf
iða sjúkdóm sem þunglyndið er.
Stóra fréttin, sem snýr að lífi
mínu sem stjórnendaþjálfari,
hefur reyndar ekki birst enn. Sú
frétt mun fjalla um það hvernig
stjórnendur Seðlabankans,
ríkisstjórn og Alþingi Íslend
inga, stjórnarmeirihlutinn og
stjórnarandstaðan, munu snúa
bök um saman og skilgreina
skýr markmið um hvernig við
mun um bregðast við og leysa
„snjóhengjuógnina“, það er
að tryggja í eitt skipti fyrir öll
að erlendir vogunarsjóðir nái
ekki ráðandi stöðu í íslensku
efnahagslífi, beint eða óbeint, í
næstu framtíð.
Það hefur sjaldan og kannski
aldrei gerst í sögu lýðveldisins
að ofangreindir aðilar hafi sýnt
fullkomna samstöðu. Í þessu
máli skiptir liðsheildin öllu. Það
væri því ekki með öllu galin
hugmynd að fá Guðmund Guð
mundsson, fyrrverandi lands
liðsþjálfara, og Ólaf Stefánsson
til að fara með hópinn í þjálfunar
búðir. Eitthvað nýtt þarf til.
Ef þessi óskhyggja mín birtist
sem alvörufrétt fyrir áramót þá
er ég viss um að áhrifin yrðu
eins og af ketamíngjöf í æð og
að deyfð, doða, neikvæðni og
reiðinni í þjóðarsálinni myndi
létta snarlega.“
Gleðilegt ár!
Eitthvað nýtt þarf til
HöGnI óSKARSSon
– geðlæknir og stjórnendaþjálfari
SKIpULAGIÐ Í
VINNUNNI
Þegar nýtt ár gengur í garð mun Marillyn nokkur Hewson taka við forstjórakeflinu hjá banda ríska
fyrirtækinu Lockheed Martin. Hún
verður um leið „MetMarillyn“ því
aldrei áður hafa jafnmargar konur
stýrt banda rísk um stór fyrir tækjum.
Af fimm hundruð stærstu banda
rísku fyrir tækjunum er … tuttugu
og einu stýrt af konu. 4,2%, hvorki
meira né minna. Þeg ar horft er á
fyrir tæki sem eru í sæti 5011000
er einnig tuttugu og ein kona þar
við stjórnvölinn.
„Sigur“ þessa árs felst í því að
í upphafi ársins voru átján kon ur
við stjórnvölinn á meðal fimm
hundruð stærstu fyrirtækjanna,
þeim fjölgaði sem sagt um þrjár.
Með sama áframhaldi gætu konur
orðið þriðjungur af stjórnendum
árið 2060. Annað met féll einnig.
Andrea Jung, sem hafði setið
lengst kvenna í forstjórastóli hjá
bandarísku stórfyrirtæki, hætti
eða neyddist til að hætta. Það
kemur í hlut Sheri McCoy að
reyna að koma Avon Products út
úr þeim rekstrarlegu ógöngum
sem fyrirtækið hefur ratað í.
Ef eitthvert fyrirtæki getur var
pað skugga á Apple þá er það
risinn í SuðurKóreu, Samsung,
en forstjóri fyrirtækisins er Oh
Hyun Kwon. Fyrirtækið hefur
náð sterkri stöðu á mörgum
svið um. Á árinu fór Samsung
fram úr Nokia sem stærsti selj
andi farsíma en Nokia hafði haft
for ystuna í fjórtán ár. Fyrirtækið
er jafnframt í fararbroddi á
heims vísu í sjónvarpstækjum
og lita prenturum. Viðskiptasvið
Sam sungsamsteypunnar skipta
tugum og dag hvern koma um
þrjátíu þúsund starfsmenn, flestir
verk og tæknifræðingar, hönn
uðir eða markaðsmenn, til vinnu
í „Samsungbænum“, Samsung
Digital City. Flestir á hjóli eða
með einhverjum af hundruðum
strætisvagna á vegum fyrirtækis
ins. Reksturinn hefur gengið vel
undanfarin ár. Þær raddir heyrast
þó að starfsemi og uppbygging
fyrirtækisins sé í anda hinna
flóknu suðurkóresku samsteypna
– chaebol – sem riðuðu til falls á
sínum tíma þegar hin svokallaða
Asíukreppa reið yfir.
Á nálægum bæ, þ.e. í Japan,
var annað upp á teningnum hjá
mörgum þekktum tæknifyrir
tækj um og stappar nærri að árið
hafi verið „annus horribilis“ fyrir
stjórnendur þeirra. Velta fyrir
tækj anna hefur farið minnkandi
undanfarin ár, m.a. vegna hins
sterka jens, og tap verið á rekstri.
Það er ekki seinna vænna að
sólin fari að rísa aftur hjá fyrir tækj
unum.
Ef giska ætti svo á hvaða
stjórn anda brá mest á árinu
væri Antonio Brufau í hópi þeirra
sigur stranglegustu en hann
stýrir spænska olíufyrirtækinu
Repsol. Hápunkturinn í rekstri
fyrir tækisins var þegar argentísk
yfirvöld ákváðu að þjóðnýta
um fangsmikla starfsemi Repsol
í Argentínu. Gárungarnir gætu
e.t.v. sagt að hinir spænsku
land vinningamenn fyrri alda –
Conquist adores – hefðu fallið á
eigin bragði.“
Met, metorð og magurt ár
loFTuR ólAFSSon
– sérfræðingur hjá Íslandssjóðum
ERLENDI
FORSTJÓRINN
skoðun
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
8
2
9
2013
Lífæð samskipta
Hvort sem þau voru um kopar eða ljósleiðara og hvort sem þau enduðu í tölvu,
síma, sjónvarpi eða kannski í hátt stilltum hátölurum með uppáhaldstónlistinni
þinni – viljum við þakka þér fyrir samskiptin á árinu 2012 með ósk um að
sambandið verði jafnvel enn traustara á komandi ári!
Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi. Míla sér fjarskipta-, síma- og afþreyingar fyrirtækjum fyrir aðstöðu og dreifileiðum um net
ljósleiðara og kopar strengja sem tengja byggðir landsins við umheiminn. Míla er mikilvægur hlekkur í öryggisfjarskiptum landsins á sjó, landi og lofti.
www.mila.is