Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 141
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 141
TexTi: HilMAr KArlsson
metra í land, löngu búinn að sjá
á eftir félögum sínum í djúpið,
gekk berfættur langa leið eftir
hvössum brúnum hraunsins í átt
til byggðar. Baltasar Kormákur
kýs að nota lífsreynslu
Guðlaugs sem sterka undir
stöðu í mynd sína, en breytir
m.a. nafni bátsins. Hann vefur
síðan atburðinn um forsögu
og eftir slysið, lífið fyrir hina
örlagaríku sjóferð, sorgina hjá
þeim sem misstu aðstandend
ur og frægasta atburð í sögu
Vestmann eyja; eldgosið 1973.
Þegar allar hinar utanaðkom
andi hindranir eru hafðar í huga
við gerð Djúpsins, ekki síst að
kvikmynda sjávaratriðin, er
aðdáunarvert hversu vel hefur
tekist til og sýnir okkur svo ekki
verður um villst hversu öflugur
leikstjóri Baltasar Kormákur
er. Hinar miklu tilfinningar sem
fylgdu atburðinum komast vel til
skila, bæði í landi og um borð
í bátnum, sem og áhrifamiklar
tökur í köldum sjónum. Gæði
myndarinnar felast síðan ekki
síst í leik Ólafs Darra Ólafsson
ar, sem hefur allt til að bera í
hlutverkið, frábær leikari með
líkamsvöxt sem passar við
perónuna.
Svartur á leik fjallar um harð
svíraða glæpamenn, sem eru
uppfullir af dópi, lemja alla sem
ekki eru í náðinni og geta ekki
skemmt sér nema kynlífsorgía
fylgi með. Ekki vantar hraðann
og átökin og ekki hef ég tölu á
þeim atriðum þar sem verið er
að sjúga upp í nefið. Hver skyldi
svo söguþráðurinn vera? Jú,
miskunnarlaus barátta um yfir
ráðin á dópsölunni í Reykjavík.
Myndin er gerð eftir skáldsögu
Stefáns Mána, sem byggir sögu
sína á raunverulegum atburðum
og er ekkert verið að fela þá
atburði í myndinni, samanber
bílveltuna í Hvalfirði, ránið í
Bún aðarbankanum og hvarf
dóp istans í Breiðholti. Ekki gefa
þessi atriði beint sögunni púst
en gaman er að velta þeim fyrir
sér í samhengi við atburðarásina.
Aðalpersónan er Stebbi síkó,
sem fær viðurnefnið frá forn vini
sínum Tóta eftir að hafa nán
ast drepið andstæðing með
barsmíðum. Það er síðan Stebbi
sem fylgt er í gegnum myndina,
upphefð hans og fall, nokkuð
sem við höfum margoft séð í
bandarískum mafíumyndum.
Leikstjórinn Óskar Þór Axelsson
veit hvaða leið hann á að fara
til ná til áhorfenda og nær upp
ágætri uppbyggingu þar sem
hraðinn er mikill og barsmíðar
áhrifamiklar.
Frost er spennumynd með
hryll ingsívafi sem gerist í kulda
legri náttúru á hálendi Íslands,
mynd sem gerir út á að óhugn
anleg atriði haldi áhorfandanum
við efnið en er veikburða þegar
á heildina er litið, ruglingsleg og
heldur ekki dampi hvað varðar
söguþráðinn. Ekki er þar með
sagt að Frost hafi ekki eitthvað
við sig. Myndin er að mestu
fagmannlega gerð, en klipp
ing in nær ekki tilgangi sínum
að sjokkera áhorfendur með
því að láta þeim bregða þegar
hápunkti er náð í óhugnanleg
ustu atriðunum. Ekkert nýtt þar,
heldur sömu brellur og búið
er að gera óteljandi sinnum í
jafn mörgum kvikmyndum. Hvað
varðar söguna og handritið þá
skil ég vel að farið var af stað,
hugmyndin er ágæt og það
leyn ist ýmislegt í sögunni sem
betri úrvinnsla hefði skilað á
áhrifa meiri hátt. Reynir Lyngdal
getur gert betur.
Framundan árið 2013
Þegar litið er yfir listann yfir
leiknar kvikmyndir sem áætlað
er að frumsýna árið 2013 er
ekki laust við að brúnin léttist
á kvikmyndaaðdáendum, en
hafa verður í huga að ekki
stand ast allar áætlanir og
besta nýlega dæmið um slíkt
er Þetta reddast, sem átti að
frumsýna í fyrra en verður ekki
tekin til sýningar fyrr en á þessu
ári og kannski verða örlög
einhverra af neðangreindum
kvikmyndum að þær verða
settar í bið fram til ársins
2014.
Þetta reddast er mynd um
ungan blaðamann sem er
kom inn á síðasta séns, bæði
í vinnunni og í sambandinu,
vegna óhóflegrar drykkju.
Með aðalhlutverkin fara Björn
Thors, Ingvar E. Sigurðsson
og Edda Björgvinsdóttir. Leik
stjóri er Börkur Gunnarsson.
Hross um oss. Sveita
rómantík um hið mennska í
hrossinu og hrossið í mann
inum. Ást, kynlíf, hross og
dauði fléttast saman með
skelfilegum afleiðingum.
Örlagasögur af fólki í sveit
frá sjónarhóli hestsins. Leik
stjóri er Benedikt Erlingsson
og með helstu hlutverk fara
Ingvar E. Sigurðsson, Char
lotte Bøving, Kristbjörg Kjeld,
Steinn Ármann Magnússon,
Helgi Björnsson og Kjartan
Ragnarsson.
Málmhaus í leikstjórn
Ragnars Bragasonar fjallar
um Heru Karlsdóttur sem er
áhyggjulaus í sveitinni þar
til harmleikur dyn ur yfir. Eldri
bróðir hennar deyr af slys
förum og Hera kenn ir sjálfri
sér um dauða hans. Í sorg inni
finnur hún sáluhjálp í þunga
rokki og dreymir um að verða
rokkstjarna. Í aðalhlutverkum
eru Þorbjörg Helga Dýrfjörð,
Ingvar E. Sigurðsson, Halldóra
Geirharðsdóttir og Jörundur
Ragnarsson.
Ófeigur gengur aftur. Ágúst
Guðmundsson er einn reynd
asti kvikmyndaleikstjóri okkar
og á að baki rúmlega þrjátíu
ára starfsferil. Síðasta kvik
mynd hans var Stuðmanna
myndin í Takt við tímann
(2004) og var því kominn tími
á nýja kvik mynd frá honum.
Ófeigur geng ur aftur fjallar
um Ófeig, nýlátinn föður Önnu
Sólar, sem eins og nafn kvik
myndarinnar bendir til gengur
aftur og fer að hlutast til um
líf hennar og kærasta. Með
aðalhlutverkin fara Gísli Örn
Garðarsson, Ilmur Kristjáns
dóttir, Laddi, Halldóra Geir
harðsdóttir, Elva Ósk Ólafs
dóttir, Vignir Rafn Valþórsson,
Sigurður Sigurjónsson og Nína
Dögg Filippusdóttir.
XL í leikstjórn Marteins
Þórs sonar fjallar um þing
mann, flagara og fyrrverandi
fjölskyldu mann sem skikkaður
er í meðferð – sem að hans
mati er hin fullkomna afsökun
fyrir að halda óstjórnlega gott
partí. Ólafur Darri Ólafsson
leikur aðalhlutverkið en
meðleikendur hans eru María
Birta Bjarnadóttir, Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Nanna Kristín
Magnúsdóttir, Þorsteinn Bach
mann og Helgi Björnsson. Ein þeirra kvikmynda sem áætlað er að sýna 2013 er Ófeigur
geng ur aftur í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar. Á myndinni eru
Ilmur Kristjánsdóttir og Gísli Örn Garðarsson í hlutverkum sínum.
Erlendur Sveinsson sýndi
á árinu síðustu hlutana í
heimildamyndaflokknum
Draumurinn um veginn þar
sem Thor Vilhjálmssyni var
fylgt eftir í pílagrímsför
sinni á Spáni.