Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 55

Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 55
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 55 Fimmtu tímamótin eru núna Við Íslendingar höfum oft staðið á tímamótum í efnahagsmálum. Þau stærstu voru í upphafi tuttugustu aldar þegar einn mesti hagvöxtur Íslandssögunnar átti sér stað með tilkomu mótorbáta, símatengingu við útlönd, reglu ­ bundnum siglingum og öflugri verslun. Önnur tímamót urðu í seinna stríðinu þegar gríðarleg­ ir fjármunir komu til landsins með erlendum herliðum. Þriðju tímamótin voru þegar viðreisn­ arstjórnin kom á frjálsum milli­ ríkjaviðskiptum, virkjunarfram ­ kvæmdum, áliðju og EFTA. Fjórðu tímamótin urðu þegar EES ­samningurinn opnaði landið og við tók tímaskeið framfara og stöð ugleika. Við stöndum nú á fimmtu stóru tímamótunum. Eftir hrakfar ir hrunsins, óstöðugleika í hag­ kerfi nu, hrun gjaldmiðilsins og gjaldeyrishöft lifum við nú við ofurvexti, mikla verðbólgu og hátt atvinnuleysisstig. Stærsta verk­ efnið núna er að ná stöðugleika í hagkerfinu, lækka vexti, ná tök um á verðbólguskrímslinu og finna framtíðarleið í gjaldmiðils­ málum þjóðarinnar. Síðast en ekki síst þurfum við að ákveða hvaða leið verður valin varðandi samskipti okkar við okkar helstu viðskiptalönd. Í því sambandi er mikilvægt að halda öllum leiðum og valkostum opnum og leiða samningana við Evrópusam­ bandið til lykta. Samtímis stöndum við á þeim tímamótum að fjölgun starfa í landinu verður líklega ekki leng­ ur í hefðbundnum framleiðslu­ greinum heldur á sviði hinna skapandi greina, afþreyingar, menningar og lista, hönnunar og kvikmyndagerðar, upplý s­ ingatækni og veflausna en þessi iðnaður er þegar orðinn stærsti atvinnuvegur Bandaríkjanna. Stjórnmálamenn verða að bjóða raunhæfar lausnir á þess­ um sviðum í þeirri kosninga bar­ áttu sem er framundan. Annars er hætta á að það gerist sem Göran Persson, fyrrverandi for sætisráðherra Svía, sagði í nýlegri heimsókn til Íslands: „Þið verðið að taka á vandanum, ann­ ars neyðist einhver annar til þess að leysa hann fyrir ykkur.““ THomAS mölleR – framkvæmdastjóri Rýmis STJÓRNUN Fyrirtækjarekstur á Íslandi er ekki spennandi í dag og skattastefna stjórn ­valda fær slæma dóma og er ekki líkleg til að örva at ­ vinnu lífið. Frekar að allir sem geta setji peninga í eitthvað eins og mál verk, ferðalög, bíla og þess háttar. Alls ekki nýjan atvinnu­ rekstur. Það sem stendur upp úr hjá Oxymap á árinu, að sögn Árna Þórs, er að vísindalegur árangur er á góðri leið þar sem sérstakir fundir um súrefnismæl­ ingar voru haldnir á fjórum virtum augnlæknaþingum á árinu. „Þetta hafði ekki verið gert áður og sýnir að við erum á réttri leið. Við höfum þegar náð að selja tæki í Asíu, Ástralíu, Evrópu og Bandaríkjunum. Eftirlitsiðnaðurinn blæs út eins og blaðra og er orðinn veruleg ur kostnaðarliður. Stundum finnst mér að almenn skynsemi sé á undan­ haldi og dýrkun á pappírsguðinum í öndvegi. Einn ágætur læknir orð­ aði það þannig að það væri meiri áhugi á því hvort pappírar væru rétt fylltir út með undirskriftum en björgun mannslífa.“ Margret Flóvenz bend ir á að rúm fjög ur ár eru liðin frá efna hagshruni og að frá þeim tíma hafi mörg heimili og fyrirtæki búið við mikla óvisu. Hún segir að það gildi um endur skoð unarfyrirtæki eins og önnur fyrir tæki. „Það ríkir óvissa vegna gjald ­ eyris haftanna, óvissa vegna deilumála við erlendar þjóðir, óvissa vegna stöðu okkar innan Evrópu, óvissa um fram ­ tíðargjaldmiðil og óvissa vegna málaferla sem eru fyrir dóms ­ tólum og geta haft veruleg áhrif á stöðu og framtíð fyrirtækja og einstaklinga. Það ríkir óvissa um orkunýtingar stefnu, fisk ­ veiði stjórnun og jafnvel um sjálfa stjórnarskrána. Sumt af þessu er órjúfanleg afleiðing þess að hér varð hrun og við getum ekkert litið fram hjá þeirri staðreynd. Úrlausn mála eftir slíka holskeflu tekur auðvitað tíma og sumu verður ekkert hrað að, hversu mikið sem við reynum.“ Á hinn bóginn getum við ekki komið okkur saman um þau grund vallaratriði sem við viljum byggja samfélagið á því það hafi ekki bara verið efnahags lífið sem hrundi heldur traust okkar á milli. „Það er þessi trúnaðarbrestur sem leiðir til þess að allt er talið tortryggilegt. Þetta birtist auðvit að í almennri umræðu og ekkert síður í pólitíkinni og þar sýnist mér svo sem flestir undir sömu sök seldir. Stóra verkefnið núna er að ná sáttum og hætta að deila deilnanna vegna. Íslenskt samfélag þarf­ nast þess að við komum okkur saman um grundvallarreglur sem eru stöðugar og eiga að gilda til lengri tíma. Aðeins á slíkum stöðugleika geta nýjar hug myndir gerjast og dafnað, nýmæli litið dagsins ljós og atvinnulífið og samfélagið allt farið að blómstra aftur. Við þurf­ um að ná saman um þennan grunn.“ Vísindalegur árangur á góðri leið ÁRnI ÞóR ÁRnASon – stjórnarformaður oxymap ehf. mARGReT Flóvenz – stjórnarformaður KPmGEndurskoðun FYRIRTÆKJA- REKSTUR Að ná sáttum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.