Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 83

Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 83
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 83 „Við erum ákaflega stolt af þessu sjálf­ sprottna forvarn­ ar framtaki okkar fólks,“ segir Sigrún Ragna fjöl breyttu innra starfi til að efla forvarnir á vinnustaðnum en einnig utan hans. Þar má nefna gangbrautarvörslu við skóla sem starfsmenn skipulögðu fyrir skemmstu og skiptu með sér marga myrka morgna bæði í Reykjavík og úti á landi. Um leið og rætt var við börnin um nauðsyn þess að vera vel sýni- legur í skammdeginu fengu þau sem þurftu endurskins- merki. „Við erum ákaflega stolt af þessu sjálfsprottna forvarnar- framtaki okkar fólks,“ segir Sigrún Ragna og bætir við að þetta hafi fallið mjög vel að átaki fyrirtækisins í haust þar sem fjölda húfa með endurskini hafi verið dreift til viðskiptavina með F plús-tryggingu. „Miðað við upplagið lætur nærri að þriðja hvert barn og unglingur á aldrinum 4-16 ára skarti þess- ari höfuðprýði.“ verðlaunaður vinnustaður Í starfsmannastefnu VÍS er lögð rík áhersla á starfsánægju og góðan aðbúnað starfs- manna, jafnrétti, fræðslu og starfsþróun. Í framkvæmda- stjórn eru þrjár konur og fjórir karlar og í stjórn fyrirtækisins sitja þrír karlar og tvær konur. „Við leggjum upp úr að starfs- menn fái viðeigandi fræðslu og endurmenntun hverju sinni. Nokkur fjöldi sækir trygg- inga skólann ár hvert sem og nám skeið hjá Dale Carnegie. Í því sambandi má nefna að við fengum í haust „Dale Carnegie Leadership Award“- viðurkenn inguna sem veitt er fyrirtækjum sem skara fram úr í starfsþróun. Allt þetta skilar sínu því undanfarin ár hefur starfsánægja mælst gríðarlega mikil í starfsmannakönnunum sem Capacent framkvæmir fyrir VÍS. Það er áskorun að viðhalda því og gera enn betur. Innan VÍS starfar Græni herinn og stuðlar að umhverfisvernd með margvíslegum hætti. Til að mynda flokka starfsmenn rækilega allt sorp í þar til gerð ílát og markvisst er dregið úr notkun pappírs. En það má alltaf gera betur og nú vinna starfsmenn að gerð siðareglna sem innleiddar verða í byrjun næsta árs.“ viðskiptavinir í öndvegi VÍS státar af þéttriðnu þjón- ustu neti með yfir fjörutíu þjón ustuskrifstofum vítt og breitt um landið. Jafnframt vex rafræn þjónusta með ári hverju. Nýverið var netspjall tekið í gagnið þar sem viðskiptavinur spjallar við þjónustufulltrúa í gegnum tölvu. Á Mínum síðum á vef VÍS eru allar upplýsingar um tryggingar viðkomandi aðgengilegar á einum stað. „VÍS er traust fyrirtæki sem stendur á góðum grunni með mikinn fjárhagslegan styrk og markaðshlutdeild um 35%. Við höfum byggt upp farsælt langtímasamband við viðskipta- vini sem við leggjum rækt við að halda, til að mynda með því að starfa í samræmi við sex metnaðarfull þjónustuloforð sem við höfum sett okkur. Við einblínum nú á kjarnastarfsem- ina enda tel ég að það fari best á því að hver og einn einbeiti sér að því sem hann er færastur í. Þannig liggur leiðin upp á við fyrir land og þjóð.“ Framkvæmdastjórn VÍS. Agnar Óskarsson, Auður Björk Guðmundsdóttir, Þorvaldur Jacobsen, Anna Rós Ívarsdóttir, Friðrik Bragason, Guðmar Guðmundsson og Sigrún Ragna Ólafsdóttir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.