Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Side 93

Frjáls verslun - 01.10.2012, Side 93
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 93 því­fylgir­óöryggi­og­ óþægindatilfinning.­ Það­er­þetta­óþekkta­ sem margir geta ekki hugsað­sér.­Ef­þú­þekk­ ir­samstarfsfólk­þitt­vel­ þá að sjálfsögðu velur þú starfsmann sem þú veist að mun klára og skila verkefninu á fullnægjandi hátt. •­ Þetta­er­meiri­vinna,­til­ að byrja með – en um leið­og­sá­sem­tók­við­ verkefninu er búinn að ná tökum á því hefur þú meiri tíma í mikilvægari verkefni og hver vill það ekki? Hér er leið sem þú getur farið til að verða betri í að deila út verkefnum. Best er að byrja á einhverju einföldu á meðan þú venst tilhugsuninni þangað til þú treystir þér til að útdeila flóknari verkefnum. 1­–­ Einföld­vinna­og­ verkefni Þetta er einfaldast að fela öðrum, hrein og klár vinna sem ekki endilega krefst mikillar sérfræðiþekkingar. Þetta krefst þess að manneskjan sem þú færð til að taka við verkefnunum hafi getu og tíma til að ná utan um og klára tiltekna vinnu á réttum tíma. Oftast er þetta lítið mál. Í byrjun kann að vera að þú þurfir að fara með þeim í gegnum hlutina, en ef þú hefur valið vel og fundið réttu mann­ eskjuna í þetta mun hún ná þessu á augabragði. 2­–­­ óreglulegu­og­ ­ óvæntu­hlutirnir Þetta eru litlu hlutirnir sem reglulega koma upp og trufla daglegt skipulag eða flæði verkefna hjá þér og sem væri heppilegt að fá aðra til að leysa úr. Flestir ef ekki allir ráða við svona uppákomur og vanalega þarftu ekki að hjálpa viðkom­ andi við að leysa úr þeim (nema kannski í fyrsta skipti). 3 – Óreglulegu en viðbúnu verkefnin Þetta eru reglulegir og áætl­ aðir viðburðir, verkefni og aukaúrlausnarefni sem búast má við, en krefjast þess að starfsmaðurinn sem þú velur verkefnin fari úr sínu hefð­ bundna starfsumhverfi. Þetta gætu verið kynningar, mánaðar­ legar eða ársfjórðungslegar skýrslur eða fundir. Þetta er sennilega nokkuð ógnvekjandi svæði fyrir þig og þú kannt að hafa áhyggjur af því að sá sem tók við verkefnunum klúðri þeim (og þú munir þá líta illa út) eða hreinlega gleymi þeim. 4­–­ óvæntar­ ­ uppákomur Nú reynir á þig og nú mun koma í ljós hvernig þú höndlar málin og hversu vel þú treystir. Þú kannt að hafa áhyggjur af því að starfsmaðurinn sem þú fólst verkefnið ráði ekki við þessi tilvik sem koma upp alltaf af og til. Þetta geta verið mistök gerð af viðskiptavinum, ófyrir­ séðar aðstæður eða einfaldlega eitthvert hikst í hefðbundnum ferlum sem tengjast einhverj­ um mjög mikilvægum atriðum eða málum. Svona uppákomur krefjast þess að þú stígir inn og hjálpir til við að leysa úr málum, en bara í nokkur skipti á meðan starfsmaðurinn er að læra hvernig best er að bera sig að og öðlast sjálfstraust til að leysa úr fleiri svona málum. Einnig á meðan þú skilgreinir hversu langt starfsmaðurinn má ganga í að taka sjálfur ákvarðanir þegar svona uppákomur verða. 5­–­ Mál­sem­ ­ tengjast­þér Hérna reynir virkilega á þig. Hér ertu örugglega hræddastur við að setja frá þér verkefni eða skyldur af því að „bara þú“ getur átt við fólkið sem tengist verkefninu, viðskiptavininum, reikningnum eða hvað það er sem um ræðir. Þér kann að finn ast þú hafa eytt svo miklum tíma í málin og þekkja svo vel öll smáatriði varðandi fólkið sem tengist þeim eða hafa byggt upp svo gott orðspor gagnvart því að það geti enginn gert þetta nema þú. Þetta er því oft óttinn við að missa stjórn og einnig óttinn við að eitthvað gæti gerst sem gæti haft áhrif á eigið sjálfsmat. Hvað myndi gerast ef starfsmaðurinn sem þú velur til að taka við verk efni frá þér leysir það betur en þú? Ef hann leysir óvæntar uppákomur hraðar og skilvirkar en þú? Ef honum kemur kannski betur saman við viðskiptavini og samstarfsfólk en þér? Snýst þetta um þína hagsmuni eða hagsmuni fyrirtækisins? Oftast erum við hrædd um að starfsmaðurinn sem tekur við verkefnum hjá okkur klúðri málum og láti okkur líta illa út (eða það sem verra er, tapi jafnvel fyrir okkur viðskipt­ um). Það skondna er að flest af þessu má laga með því að fylgj­ ast með og stíga inn þegar á þarf að halda. En hin raunveru­ lega hindrun við að útdeila verkefnum er hið andlega áfall fyrir sjálfsmat okkar, sjálfstraust og okkar eigin afköst eða fram­ lag. Við viljum ekki líta illa út eða líta út fyrir að vera óskilvirk eða ómissandi. Það að setja frá sér verkefni er eins og að hoppa út í kalda sundlaug – það er erfitt að fá sig til þess en svo þegar þú hopp­ ar út í er það bara kalt í örfáar sekúndur og svo venstu því. Kíktu nú á verkefnalistann þinn og búðu til annan dálk við hliðina og færðu þangað öll þau verkefni sem aðrir ættu að gera eða geta gert jafn vel og þú og skapaðu þér þannig tíma til að vinna í mikilvægu málunum sem eru án tímamarka, þessum sem þig dreymir alltaf um að hafa meiri tíma í en kemst aldrei í af því að það er svo mikið að gera. Skilaboðin eru: Ef þú nærð ekki að breyta hugsun þinni og hegðun og útdeilir aldrei verk efnum muntu aldrei ná að þróast í starfi, bæta þig eða takast á hendur meira ögrandi og áhugaverðari ábyrgð. Ef þér tekst ekki á eigin spýtur að verða betri í að deilda út verk efnum skora ég á þig að fá þér bandamann, einhvern sem ýtir við þér og minnir þig á, til dæmis samstarfsmann sem þú treystir eða markþjálfa. „Það að setja frá sér verkefni er eins og að hoppa út í kalda sundlaug – það er erfitt að fá sig til þess en svo þegar þú hopp ar út í er það bara kalt í örfáar sekúndur og svo venstu því.“ En hin raunveru­ lega hindrun við að út deila verkefnum er hið andlega áfall fyrir sjálfsmat okk­ ar, sjálfstraust og okkar eigin afköst eða framlag.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.