Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 96

Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 96
96 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 É g vel bókina Starfs­ mannaval eftir dr. Ástu Bjarnadóttur sem bók ársins. Að mínu mati ættu allir sem koma að ráðningum og vali á starfsmönnum með einum eða öðrum hætti að lesa þessa bók. Bókaárið 2012 í Frjálsri versl un hefur að vanda verið fjölbreytt og bækurnar sem ég hef fjallað um tekið á rekstri, stjórnun og leiðtogaþróun á breiðu sviði. Það er ánægjulegt hve margar íslenskar bækur eru á bókalista ársins en mikil gróska hefur verið í útgáfu íslenskra handbóka fyrir stjórnendur. starfsmannaval Eitt af hlutverkum leiðtoga er oft á tíðum val starfsmanna. Í bókinni Starfsmannaval fjallar dr. Ásta Bjarnadóttir um þessa hlið leiðtogahlutverksins af miklu innsæi og dýpt. Bókin er endurbætt útgáfa samnefndrar bókar höfundar sem út kom árið 1996. Óhætt er að segja að hér sé á ferðinni skyldulesn­ ing allra þeirra sem þurfa að ráða starfsmenn, hvort sem er í stærri fyrirtækjum eða minni. Þau stærri styðja stjórnendur gjarnan í gegnum ráðningar­ ferlið en engu að síður er afar mikilvægt fyrir stjórnendur að þekkja vel hvaða hættur leynast í ferlinu, hvað ber að varast og hvaða vinnubrögð eru vænleg­ ust til að skila árangri. Bókin tekur á öllum þeim þáttum sem skipta máli og er skyldulesning allra stjórnenda. Með því að fylgja því vinnulagi sem höf­ undur setur fram í bókinni má staðhæfa að líkurnar á því að rétti maðurinn sé ráðinn aukist og þannig fækki kostnaðarsöm­ um mistökum við ráðningar. Bókin er ein af þessum bókum sem hafa mikið hagnýtt gildi og hún er öflug verkfæra kista fyrir stjórnandann. Henni fylgja gátlistar og eyðublöð sem auð­ velda stjórnendum ráðningu starfsmanna til mikilla muna. Ekki láta þessa framhjá þér fara! allur sannleikurinn um leiðtogann Árið hófst á yfirgripsmiklu yfirliti um leiðtogann í bók Sigurðar Ragnarssonar Forysta og sam skipti. Í bókinni er að finna vand aða umfjöllun um leið toga ­ hlutverkið. Sá skilningur sem við leggjum í þetta títt nefnda hugtak er oft á tíðum mjög misjafn og byggður á mis munandi reynslu og þekkingu. Leiðtogahlutverkið er einnig brennipunktur fjöl­ margra stjórn unar kenninga þar sem árangursrík stjórnun tengist gjarn an leiðtogahlutverkinu sterk um böndum. Höfundi tekst með mikilli natni að koma inn á mikinn fjölda kenninga. Það má því segja að einn kosta bókar­ innar sé sá að hún inniheldur yfirgripsmikið og vandað yfirlit yfir helstu stjórnunarkenningar dagsins í dag. Þetta gerir hana að afar góðu uppsláttarriti fyrir þá sem vilja kynna sér helstu kenningar um leiðtogafræði og efla sig í hlutverkinu eða búa sig undir að takast á við það. Einnig kemur höfundur inn á nýlegar rannsóknir sem málinu tengjast og sýnir svo ekki verð­ ur um villst þá sérfræðiþekk ingu sem hann hefur á efninu og þeim fjölmörgu þáttum sem því tengjast en Sigurður er að skipa sér í flokk helstu sérfræðinga landsins í leiðtogafræðum. Samskiptafærni­–­mikilvæg­ asta færni stjórnandans Það er sama hvað leiðtoginn hefur lært af stjórnunarkenn­ ingum og aðferðum við að ná árangri; hann á lítinn möguleika á að ná árangri búi hann ekki yfir færni í samskiptum. Bók þeirra Hauks Inga Jónssonar og Helga Þórs Ingasonar, Samskiptafærni, samskipti, hóp ar og teymisvinna, fjallar um þennan mikilvægasta hæfn­ is þátt stjórnandans. Bókin er ein fjögurra bóka í ritröð þeirra félaga um efni sem tengjast Unnur Valborg Hilmarsdóttir velur hér stjórnunarbók ársins úr hópi þeirra bóka sem hún hefur fjallað um á árinu. Bókin Starfsmannaval eftir dr. Ástu Bjarnadóttur er að hennar mati bók árins 2012. TexTi: unnur VAlBorG HilMArsdóTTir Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórnendaþjálfari hjá Vendum Forysta og samskipti eftir Sigurð Ragnars­ son er afar gott upp sláttarrit fyrir þá sem vilja kynna sér helstu kenningar um leiðtogafræði og efla sig í hlutverk inu eða búa sig und ir að takast á við það. Einnig kemur höf ­ undur inn á gagn ­ legar nýlegar rann ­ sóknir. bók ársins Starfsmannaval er bók ársins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.