Þjóðlíf - 01.12.1990, Blaðsíða 34
ERLENT
Fegrunaraðgerðir
á börnum
Á síðustu fimm árum hafa fegrunaraðgerðir á bandarískum
börnum og unglingum tvöfaidast að sögn sérfræðinga. Fjórtán
ára gömul börn láta fjarlægja fitulag af mjöðmum, draga úr
útstæðum eyrum, minnka nef og hækka kinnbein, jafnvel
stækka brjóst með silikoni. Millistéttarforeldrar virðast reiðu-
búnir til að greiða háar upphæðir fyrir þessar fegrunaraðgerðir.
Að mati skurðlæknisins Peralmans Hicks standa óskir foreldra
um hið fullkomna barn að baki þessum aðgerðum. Hann hefur
það eftir unglingunum að foreldrar hafi gagnrýnt útlit þeirra.
Unglingar af asískum uppruna og svertingjar láta líka gera
breytingar á sér til að uppræta séreinkenni og falla inn í meintar
fegurðarhugmyndir hinna hvítu. En sérfræðingarnir segja að
oft byrji vandamálin fyrst eftir aðgerðirnar, þegar unglingarnir
uppgötva að erfiðleikarnir í lífinu hverfi ekki með hinu marghat-
aða nefi eða útstæðum eyrum...
Barbara og George Bush forsetahjón í Bandaríkjunum hafa helgað
vísindunum líkama sína þegar þar að kemur. Frú Barbara gekk skrefí
lengra og undirritaði „hinsta vilja“sinn um að það xtti að aðstoða hana
við að deyja ef svo bæri undir. „Ég hef látið svæfa uppáhalds hundinn
minn afþví ég vildi ekki að dýrið þyrfti að þjást lengur. Ég vona að mér
verði sýnd hliðstxð miskunn“...
Hinn 52 ára gamli falsari Konrad Kujau, sem er m.a. þekktur fyrir
falsanir sfnar á dagbókum Hitlers, er stöðugt á höttunum eftir góðum
bísniss. Hann hefur nú þróað rússneska hermannabúninga fyrir vestur-
landastúlkur. 1 sjónvarpsútsendingu þar sem hann kynnti þetta nýja
sköpunarverk sitt, kvað hann Gorbatsjof þurfa peninga. ..Gorbatsjof
ætti að selja rússneska einkennisbúninga og fá vestrænan gjaldeyri í
staðinn".
Óvæntur árangur
öfgamanns
Einn af fyrrverandi forystu-
mönnum Ku-Klux-Klan hreyf-
ingarinnar í Bandaríkjunum
olli miklum ótta í öldungar-
deildarkosningunum með því
að fá 44% atkvæðanna í Lou-
isiana, þar sem hann bauð
sig fram sem óháður. Hann
fékk tvöfalt fleiri atkvæði en
skoðanakannanastofnanir
höfðu spáð honum. Fram-
bjóðandinn, sem hefur út-
breitt nasistabókmenntir og
heldur því fram að þátttaka
Bandaríkjanna í stríðinu gegn
Hitler hafi verið mistök, fékk
meira að segja um 60%
stuðning meðal hvítra kjós-
enda. Bennett Johnson mót-
frambjóðandi hans og þing-
maður demókrata náði
naumum sigri einungis vegna
þess að hörundsdökkir kjós-
endur, sem eru fjórðungur
kjósenda í Louisiana, greiddu
einróma atkvæði gegn Ku-
Klux-Klan manninum fyrrver-
andi. Duke er talinn hafa náð
svo góðum árangri meðal
millistéttarkana, sem óttast
efnahagssamdráttinn. Nú
hyggst Duke safna saman
þeim 20% erkiíhaldssamra
kjósenda sem sérfræðingar
telja að séu í Bandaríkjunum.
Ef hann færi í forsetaframboð
1992 gæti hann náð atkvæð-
um fyrst og fremst frá George
Bush á hægri væng
Repúblikanaflokksins...
Duke.
34 ÞJÓÐLÍF