Þjóðlíf - 01.12.1990, Blaðsíða 80
Frá athöfn í Borgarleikhúsinu á útgáfudegi bókarinnar. I heiðursskyni festi Örlygur Hálfdanarson heiðursmerki, hraundranga úr silfri, í barm
þeirra sem komu helst við sögu vinnslunnar.
FYRSTA ÍSLENSKA
ALFRÆÐIORÐABÓKIN
Út er komin bók sem næsta víst er að
margir hafa beðið eftir með óþreyju um
áratugi. A Islandi hefur ekki fyrr en nú
verið gefin út alfræðibók sem spannar öll
þekkingarsvið.
ð Islensku alfræðiorðabókinni hefur
verið unnið í rúm þrjú ár og talsvert á
annað hundrað manna lögðu þar hönd á
plóg. Þar af voru fimmtán manns sem
störfuðu í ritstjórn í hartnær þrjú ár og auk
þess lögðu yflr hundrað sérfræðingar til
sérþekkingu sína, hver á sínu sviði. Rit-
stjórar verksins eru Dóra Hafsteinsdóttir
og Sigríður Harðardóttir.
íslenska alfræðiorðabókin er í þremur
bindum, alls tæpar 1900 blaðsíður og ríku-
lega myndskreytt. Alls eru í bókinni um
37000 uppflettiorð og erlend lykilorð, en
þeim er ætlað að vísa veg að íslensku upp-
flettiorði. Bókin er prýdd um 4500 ljós-
myndum, skýringarmyndum og töflum,
og voru sumar þeirra gerðar sérstaklega
fyrir þetta verk. Heildarverkið kostar
tæplega 40 þúsundir kr. í bókaverslunum.
í íslensku alfræðiorðabókinni er að
finna gamlan og nýjan fróðleik á flestum
sviðum þekkingar. Þar má nefna vísindi,
tækni, listir, landafræði og þjóðfélagsmál.
Um þriðjungur hennar fjallar um íslenska
menn og málefni og þar koma meðal ann-
ars fram upplýsingar sem hvergi annars
staðar eru aðgengilegar á prenti.
Oll bókin er prentuð í lit og er talið að
þetta ritverk sé eitt hið dýrasta sem
hér hefur verið unnið. Heildarkostnaður
við útgáfuna nálgast 200 milljónir.
0
GRÆÐUM ÍSLAND
Landgræðsla ríkisins hefur sent frá sér
þriðju árbók sína er ber heitið Græðum
Island, — og er þessi bók eins og hinar
fyrri fagurlega myndskreytt og mjög
fjölbreytt.
Markmiðið með útgáfunni er að miðla
fræðslu um gróðurvernd og rétta land-
nýtingu. í bókinni er aðgengilegt efni í
alls 21 grein. Greinarnar eru prýddar
ljósmyndum og eru margar þeirra í lit. í
bókinni er meðal annars fjallað um gróð-
urvernd í öðrum löndum, ferðamál og
gróðurvernd, sögu Hekluhrauna, leið-
beiningar um landgræðslu og rannsókn-
ir sem fram fara fyrir tilstilli land-
græðslu- og landverndaráætlunar 1987-
91. Ritstjóri bókarinnar er Andrés Arn-
alds.
0
80 ÞJÓÐLÍF