Þjóðlíf - 01.12.1990, Blaðsíða 68
Christine Carr íhlutverki Sissu ímynd Lárusar Ýmis Óskarssonar, RYÐ.
daginn en á kvöldin heitasti og vinsælasti
plötusnúðurinn á bylgjulengdunum. Eng-
inn veit hver hann er því hann rekur út-
varpsstöðina einn og sendir út á sjóræn-
ingjalengdinni. Fljótt öðlast Mark, sem
kallar sig „Harði Harry“ í útsendingum,
vinsældir hjá jafnaldra hlustendum sínum
og verður tákn ungu kynslóðarinnar í bar-
áttu hennar fyrir viðurkenningu og virð-
ingu frá foreldrum og stjórnvöldum. í
myndinni er mikið af tónlist eins og vera
ber og hnittnar pælingar „Harða Harry“
þykja skemmtilegar og skondnar.
ólamynd Stjörnubíós er „Flatliners“
leikstýrð af Joel Schumacher sem
þekktur er fyrir myndir eins og „Lost
Boys“og „Sf. Elmo’s Fire“. Hér leikstýrir
hann enn einum hópi ungra leikara í mynd
sem fjallar um dauðann og lífið. Það er
stórkostlega stúlkan Julia Roberts, ungi
byssubófinn Kiefer Sutherland, öldung-
urinn Kevin Bacon, litli bróðir Alec hann
William Baldwin og nýliðinn Oliver Platt
sem bera hitann og þungann í myndinni.
Þau leika fimm læknanema sem gera ólög-
legar tilraunir á sjálfum sér til að upplifa
dauðann. Schumacher notast mikið við
liti og ljós til áhrifa í senunum þar sem
hver og einn nemanna upplifir dauðann á
mismunandi hátt. Leikarahópurinn hefur
fengið lof gagnrýnanda og er myndin talin
vera algjör hjartastoppari.
íóhöllin og Bíóborgin verða með syk-
ursæt fjölskyldujól og sýna fjórar
myndir sem höfða allar til fjölskyldunar.
„Three men and a little lady“er ein þess-
ara mynda, hún er framhald sögunnar um
piparsveinana þrjá í „Three men and a
baby“ sem tóku að sér, nauðugir viljugir,
lítið barn og lentu svo í bófa hasar og hvers
kyns uppákomum. Það eru sömu naglarn-
ir sem leika piparsveinana í þessari mynd
og þeirri fyrri, Ted Danson (Staupa-
steinn), Steve Guttenberg (Police Acade-
my) og Tom Selleck (An Innocent Man).
Það er hins vegar annar leikstjóri. í stað
Leonard Nimoy (Dr. Spock í Star Trek)
er kominn Emile Ardolino sem þekktast-
ur er fyrir að hafa leikstýrt „Dirty
Dancing“. Önnur framhalds mynd stend-
ur til boða hjá Bíóhöllinni og Bíóborginni,
sú heitir „A never ending story //“(viðeig-
andi heiti) og er ævintýramynd af bestu
gerð. Bíógestir mega búast við tæknibrell-
um á heimsmælikvarða ef dæma má af
fyrri myndinni. „Litla Hafmeyjan“{„The
little Mermaid") er teiknimynd af gamla
skólanum, klassísk og frá Walt Disney
fyrirtækinu. Hún er byggð á sögu H.C.
Andersen um litlu hafmeyjuna og
draumaprins hennar. Hún var gífurlega
vinsæl vestan hafs og þykir marka tíma-
mót í sögu teiknimynda. Ég hvet alla sem
vettlingi geta valdið að sjá þessa mynd og
upplifa þann draumaheim sem teikni-
myndir frá Disney skapa.
Síðasta jólamynd Bíóhallarinnar og Bíó-
borgarinnar í þessari upptalningu er
„Prancer“, lítil hugljúf mynd um stúlku
sem sér um að annast slasað hreindýr.
Mynd sem fær flóðgáttir tárakirtlana til að
bresta.
egnboginn mun sýna milli jóla og
nýárs íslensku kvikmyndina
„RYГ. Leikstjóri er Lárus Ýmir Ósk-
arsson og framleiðandi Sigurjón Sig-
hvatsson. Myndin er framleidd af Verk-
stæðinu h.f. í samvinnu við Stöð 2,
Sænsku kvikmyndastofnunina og Conn-
exion Film. Myndin er byggð á leikriti
Ólafs Hauks Símonarsonar „Bílaverk-
stæði Badda“ og samdi Ólafur einnig
kvikmyndahandritið. Það eru Egill Ólafs-
son, Bessi Bjarnason, Sigurður Sigur-
jónsson, Christine Carr og Stefán Jóns-
son sem fara með aðalhlutverkin í kvik-
myndinni RYÐ. ()
68 ÞJÓÐLÍF