Þjóðlíf - 01.12.1990, Side 74

Þjóðlíf - 01.12.1990, Side 74
HLJOMPLOTUR Hljómsveitin Islandica flytur rammíslenskt þjóðlagarokk og gerir það vel. Bless: Gums Nær og nær yfirborðinu Neðanjarðarsveitin „Bless“ er sífellt að færast nær og nær yfirborðinu, en án þess að glata sínum sérkennum. Á nýjustu plötu sinni, og þeirri annarri í röðinni, „Gums“ ber- ast okkur hráir tónar úr laga- smiðju hljómsveitarinnar en greinilegt er að fágunin hefur aðeins náð inn á borð til þeirra. Gunnar Hjálmarsson, söngv- ari og gítarleikari heldur hér áfram að þróa sínn persónu- lega söng og gítarstíl, Ari El- don (bassi) og Birgir Baldurs- son trommuleikari skapa gott ryþmapar. Þá hefur bæst í hljómsveitina gítarleikarinn Pétur Þórðarson (fyrrverandi meðlimur hljómsveitanna „Óþekkt andlit“ og „Dýrið gengur laust“). Upptökustjóri plötunnar, sem er ætluð fyrir erlendan markað,var sykurmolinn Þór Eldon og heyrist mér samstarf hans og Bless hafa gengið prýðilega upp. Gums er fersk og hrá rokkplata en bestu lögin að mínu mati eru; „World Collapse“ (þar sem Björk syk- urmoli kemur við sögu), „ You are my Radiator“, „Yondet“ og „Darling Danglingf‘. 0 Islandica: Rammíslensk Á þjóðlegu nótunum Hljómsveitina „Islandica“ skipa þau Herdís Hallvarðs- dóttir (bassi), Gísli Helgason (flautur), Ingi Gunnar Jó- hannsson (gítar) og Guð- mundur Benediktsson (gítar). Þessi hópur hefur í gegn um árin spilað íslensk þjóðlög og alþýðuperlur fyrir erlenda ferðamenn og hefur hann starfað undir nafninu Island- ica síðan 1987. Hljómsveitin hefur einnig lagt land undir fót og spilað í Evrópu. Þau hafa m.a. sótt Norðurlöndin heim og í fyrra fékk Islandica styrk frá Nomus menningarsamtök- unum til þess að kynna ís- lenska dægurtónlist í Svíþjóð og Noregi. Fleiri utanlands- ferðir eru í deiglunni. Og nú hafa þau sent frá sér sína fyrstu plötu og á henni er að frnna flest þekktustu þjóð- lög okkar Islendinga, s.s. „Krummi krunkar úti“, „ís- land (farsælda frónj‘ (vel sungið af þeim Guðmundi og Inga Gunnari), „Sofðu unga ástin mín“ (sem Herdís syngur mjög fallega), „Á Sprengi- sandt" (þar sem Gísli fer ham- förum á flautunum) og „KrummavísuG (byrjunarlag plötunnar í skemmtilegum reggí-takti). Svo er „Maístjarnan“ þarna líka, og „Rímur og kvæðalögf1, sem Gísli kveður. Á plötunni er einnig þjóðsöngurinn í mjög fallegri blásturshljóðfæraút- setningu en mér finnst það mistök frá hendi hljómsveitar- innar að bæta laginu „Kvöld- siglingu“ við á eftir þjóðsöngn- um því að mínu mati hefði það verið mjög viðeigandi að enda plötuna á þessu ægifagra lagi sem þjóðsöngurinn okkar er. Eitt laga plötunnar, „TröllaþvaðuG, er eftir Her- dísi og er það hin ágætasta lagasmíð, með mörgum takt- skiptingum, og rokkað yfir- bragð lagsins og söngur Guð- mundar ljá því kraft. I heildina er platan Ramm- íslensk mjög vel spiluð og sungin og greinilega gerð af metnaði. Menn hafa reynt að halda sig nokkurn veginn við upprunalegar útsetningar lag- anna og er það af hinu góða. Rammíslensk er hið besta mál og ætti að gera sitt til þess að vekja athygli á þjóðlagatónlist okkar. Gunnar Hjálmarsson úr hljómsveitinni Bless. 74 ÞJÓÐLÍF
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.