Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2009, Side 3
Vísindi á vordögum 2009
Vísindi á vordögum hafa sannarlega fest sig í sessi sem uppskeruhátíð vísindastarfs á háskóla-
sjúkrahúsinu Landspítala. Hátíðin í fyrra var sérlega glæsileg. Veggspjöld voru þá yfir 100 annað
árið í röð og kannski læddist að manni sá ótti að svona frammistaða gæti ekki haldið áfram í því
fjárhagslega aðhaldi sem spítalinn hefur verið í á árinu 2008 með vaxandi sérhæfingu í þjónustu
við sjúklinga og þar með vaxandi kröfur á starfsfólk spítalans.
Uppgjör ársins fyrir árið 2008 er því einkar ánægjulegt. Fjöldi útgefinna greina á íslenskum
og erlendum vettvangi sem og bókakafiar heldur áfram að vaxa um 5-6% eins og verið hefur
undanfarin ár. Fjöldi doktors- og meistaranema, sem á einn eða annan hátt tengjast spítalanum
vex einnig hröðum skrefum, þeir vinna undir handleiðslu starfsmanna hans og sækja efnivið til
spítalans. Þetta hvort tveggja rennir styrkum stoðum undir þá staðreynd að þriðja árið í röð eru
veggspjöld á uppskeruhátíðinni yfir 100 (108) með 350 höfundum úr 14 starfsstéttum.
í þeirri fjárhagsstöðu sem þjóðin finnur sig í um þessar mundir og kröfum um hagræðingu og
sparnað á spítalanum, er sérstaklega ánægjulegt til þess að vita, að sú meðvitaða ákvörðun hefur
verið tekin samhljóða af stjórnendum spítalans, forstjóra og framkvæmdastjóm, að hlúa skuli að
háskólahlutverkinu og það verndað.
Þetta andrými hefur verið notað til að undirbúa og skapa betri aðstöðu á spítalanum fyrir
háskólastarfið, kennslu, nám og vísindarannsóknir. Þessa sér einkum merki á allra síðustu vikum
og mánuðum. Þannig er spítalinn, í samvinnu við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Islands, tilbúinn
til að fara fram og opna nú klínískt rannsóknasetur (Clinical Research Center). Þar verða styrktir
innviðir ýmiss konar þjónustu við vísindamenn en auk þess lögð sérstök áhersla á að markaðssetja
spítalann sem lyfjarannsóknafyrirtæki sem og fyrirtæki sem getur þróað og prófað hin ýmsu tól
og tæki sem framleidd eru t.d. í samvinnu við sérfræðinga í heilbrigðistækni og verkfræði. Að
auki verður lögð aukin áhersla á það hvernig rannsóknaniðurstöður verða hagnýttar, þ.e.a.s. að
efla nýsköpun og stuðla að stofnun sprotafyrirtækja.
Heilbrigðisrannsóknir á íslandi standa nú styrkum stoðum og Landspítali er í forystu hvað
varðar birtingu ISI greina með um 30 til 35% hlutdeild af öllum þeim ritrýndu greinum sem birtast
frá landinu. í vinnu starfshóps þriggja ráðuneyta, sem hefur verið að skoða nýsköpun innan
heilbrigðisgeirans kemur berlega í ljós, að okkar vísindafólk, eins og raunar víðast hvar annars
staðar í heilbrigðisvísindum, hefur lagt aðaláherslu á vísindin vísindanna vegna, en tiltölulega
fáir verið reknir áfram af þeirri sýn að koma sinni afurð á markað eða til hagnýtra nota. Þó hefur
á íslandi verið stórt fyrirtæki með þessa sýn og í samvinnu íslenskra heilbrigðisstarfmanna við
íslenska erfðagreiningu hefur þessari hugsun að sjálfsögðu vaxið ásmegin.
I téðri vinnu er dregin fram algjör sérstaða Landspítalans sem rannsóknarstofnunar og þá
kemur fram að tvær stofnanir á Islandi skera sig algjörlega úr er varðar rannsóknaráherslur og
fjárveitingar til þeirra, þar sem eru Hafrannsóknastofnunin og Landspítalinn.
Þessi mikla virkni er borin uppi af gæfuríku og nánu samstarfi spítalans og Háskóla íslands.
Það samstarf, sem m.a. byggist á sameiginlegum starfsmönnum, hefur farið vaxandi á síðustu
árum og á örugglega sinn þátt í þeim vexti sem átt hefur sér stað á undanfömum ámm.
Eg sé það fyrir mér að opinberir aðilar munu leggja vaxandi áherslu á að greiða fyrir nýsköpun
og styrkja innviði þeirra stofnana og fyrirtækja sem til greina koma að taka þátt í slíkri þróun.
Stofnun Lífvísindaseturs í Læknagarði hefur þjappað rannsakendum þar saman, skapað samstarf
og samnýtingu, sem er undirstaða góðra og metnaðarfullra rannsókna. Það er trú okkar í stjóm
spítalans að klínískt rannsóknasetur muni gegna sama hlutverki með sama árangri. Þriðja setrið
sem þegar er farið af stað og snertir bæði þessi setur mundi vera lýðheilsu- og faraldsfræðisetur
en þær greinar eru í örum vexti innan Háskóla íslands og tengjast mjög afgerandi Landspítala og
heilbrigðisvísindasviði Háskóla Islands.
Á þessum grunni þurfum við að byggja frekara samstarf við aðra íslenska háskóla sem og
mikilvægar erlendar vísindastofnanir, en þarna blasa við mikil tækifæri til þróunar sem brýnt er
að vinna að.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Simar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@iis.is
Upplag
400
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi.
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
Forsíðumynd
Inger H. Bóasson ijósmyndarí
Landspítalans.
Kristján Erlendsson læknir
framkvæmdastj. kennslu, vísinda og þróunar á Landspítala
varadeildarforseti læknadeildar Háskóla íslands
ISSN: 0254-1394
LÆKNAblaðið 2009/95 3