Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2009, Síða 27

Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2009, Síða 27
VISINDI A VORDOGUM FYLGIRIT 60 V-51 Áhrif TNFa á sérhæfingu T stýrifrumna Laufey Geirsdóttir1-2, Inga Skaftadóttir2, Brynja Gunnlaugsdóttir1-3, Björn R. Lúðvíksson1-2 'HÍ, læknadeild, 2Landspítala ónæmisfræðideild, 3Landspítala rannsóknardeild gigtarsjúkdóma lagl@hi.is Inngangur: CD4+CD25+ T stýrifrumur (Tregs) spila hlutverk í sjálfsþoli og fyrirbyggingu sjálfsofnæmissjúkdóma. Umrit- unarþátturinn FoxP3 er notaður til aðgreiningar þessara fruma og er nauðsynlegur bæði til sérhæfingar og bæligetu. TNFa er breiðvirk frumuboðefni sem getur haft margvísleg áhrif á frumur ónæmiskerfisins og stuðlar m.a. að frumusérhæfingu og fjölgun þeirra. TNFa hindrar eru algengir í meðferð iktsýki þótt að hlutverk TNFa í sjúkdómsgerð hennar er enn óljós. Markmið: Rannsaka áhrif TNFa á sérhæfingu og fjölgun T stýrifrumna. Aðferðir: CD4+CD25- T frumur voru einangraðar úr blóði heilbrigða einstaklinga og ræktaðar í 96 holu bökkum í sermislausu æti. Frumumar voru ræstar um T frumuviðtakann (anti-CD3 mAb og anti-CD28) auk +/- TGFfSl, TNFa, IL-lþ og TNFa hindra (infliximab) og ræktaðar í 3 eða 7 daga. Treg sérhæfing var metin með tjáningu á CD4, CD25, CD127, TGFbRII and Foxp3 með flæðifrumusjágreiningu. Frumuskiptingar voru skoðaðar með CFSE flúrljómun. Niðurstöður: TNFa stuðlaði ekki að sérhæfingu Treg, hvorki með né án TGFfSl. Aftur á móti jók meðferð TNFa hindra marktækt hlutfall Treg eftir langtímaræktun en hlutfall þeirra var ekki aukið eftir skammtímaræktun. Einnig er ljóst að IL-fil hindrar tjáningu FoxP3 og þar með sérhæfingu Tregs í návist TGFfil eftir langtímaræktun. Að auki hindrar TGFfil frumufjölgun CD4+ T- cells en virðist aftur á móti stuðla að frumufjölgun CD4+FoxP3 jákvæðra fruma. Ályktun: Þessar niðurstöður benda til þess að TNFa hindrar auki heildarmagn Treg og stuðli að hlutfallslegri aukningu þeirra. Ertn er óljóst hvort að TNFa hindrar auki einnig á bæligetu Treg. Aðrir hafa einnig sýnt fram á að TNFa hindrar geti bælt IL-lþ framleiðslu frá neutrophilum og þannig stuðlað óbeint að aukinni sérhæfingu Treg. V-52 Etanól útdrættir birkibarkar (Betula pubescens) hafa áhrif á ræsingu angafruma í mönnum in vitro Marinó Bóas Sigurpálsson1-2'3, Sesselja S. Ómarsdóttir3, Ingibjörg Harðardóttir4, Arnór Víkingsson1, Elín S. Ólafsdóttir3, Jóna Freysdóttir1'2 ’Rannsóknastofu í gigtsjúkdómum, 2ónæmisfræðideild Landspítala, 3lyfjafræðideild, 4 * * * * *læknadeild HÍ marinos@hi.is Inngangur: Birkibörkur hefur verið notaður í alþýðulækningum í aldaraðir gegn ýmsum sjúkdómum, s.s. gigt. Margar sameindir hafa verið einangraðar úr berkinum en aðeins nokkrar þeirra hafa verið rannsakaðar m.t.t. áhrifa á ónæmiskerfið. Angafrumur spila stórt hlutverk í stjórnun ónæmisviðbragða með því að stýra sérhæfingu T fruma. Markmið: Að kanna hvort útdrættir birkibarkar hafi áhrif á ræsingu angafruma manna in vitro. Aðferðir: Etanól var notað til að draga út efni úr berkinum. Eftir inngufun voru útdrættirnir hlutaðir í 5 fraktionir með metanól og díklórómetan skautunarstigli. CD14+ mónócýtar úr mönnum voru ræktaðir í 7 daga með IL-4 og GM-CSF til að fá angafrumur. Angafrumurnar voru ræktaðar með IL-lþ, TNF-a og LPS í 2 daga með eða án birkiútdráttar í styrkjum á bilinu 0,01 til 100 pg/mL. Seyting boðefna var mæld með ELISA aðferð og tjáning yfirborðssameinda var mæld í flæðifrumusjá. Niðurstöður: Angafrumur sem voru ræktaðar með birkiútdrætti seyttu minna af IL-6, IL-10 og IL-12p40 en angafrumur ræktaðar án útdráttar. Meðal angafrumna sem voru ræktaðar með birkiútdrætti, eða með fraktion IV sem fékkst með 3:1 hlutfalli af metanókdíklórometan, voru hlutfallslega færri sem tjáðu CD86, CCR7 og DC-SIGN en meðal þeirra sem voru ræktaðar án útdráttar eða fraktinoar IV. Ályktun: Útdráttur birkibarkar inniheldur efni sem virðist draga úr ræsingu angafrumna. Efni með slík áhrif geta verið gagnleg í meðferð ýmissa sjálfsofnæmissjúkdóma. Verið er að kanna hvort innihaldsefni birkibarkar hafi áhrif á hæfni angafruma til stjórnunar á sérhæfingu T fruma. V-53 Áhrif 2ja vikna meðferðar í Bláa lóninu á psoriasis; forrannsókn Jenna Huld Eysleinsdóttir12-3'5, Jón Hjaltalín Ólafsson1-4-5, Björn Rúnar Lúðvíksson2'5, Ása Brynjólfsdóttir3, Steingrímur Davíðsson3'4, Bárður Sigurgeirsson4 Húð- og kynsjúkdómadeild1, ónæmisfræðideild Landspítala2, Bláa lóninu lækningalind3, Húðlæknastöðinni4, HÍ5 jenna@landspitali.is Inngangur: Rannsóknir gerðar á árunum 1992-1995 sýndu fram á að böðun í Bláa lóninu í 3-4 vikur ein og sér og með UVB ljósum, hafi góð áhrif á skellupsoriasis, og e.t.v. betri áhrif en UVB ljósameðferð ein sér. Markmið þessarar forrannsóknar er: A) Athuga hvort 2ja vikna meðferð í Bláa lóninu nægi sem meðferð ásamt 12 vikna heimameðferð með Bláa lóns kremum; B) Athuga hvort aukaverkanir komi fram við húðsýnatöku frá þátttakendum sem fara reglulega í bað í Bláa lóninu. Efni og aðferðir: Þátttakendur fengu 2ja vikna psoriasismeðferð í Bláa lóninu sem samanstendur af böðum í lóninu tvisvar á dag, UVB ljósameðferð daglega og smurningu Bláa lóns krema kvölds og morgna. Eftir útskrift báru þeir Bláa lóns krem á líkamann tvisvar á dag heima fyrir. 6 sjúklingar með langvinnan skellupsoriasis tóku þátt í rannsókninni, 1 karl og 5 konur. Árangur meðferðarinnar var metinn með líkamsskoðunum, PASI-skori, ljósmyndun, blóð- og húðsýnatöku fyrir meðferð og eftir 1,3 og 8 vikur. Niðurstöður: PASI-skor lækkaði að meðaltali niður í 33,7% af upphaflegu gildi eftir 3ja vikna meðferð. Við 8 vikur hafði PASI-skorið hækkað hjá öllum að meðaltali í 43,7%, en tveir luku rannsókninni og fjórir hættu vegna versnunar. Enginn þátttakenda kvartaði undan aukaverkunum af meðferðinni og tveir þátttakendur kvörtuðu undan vægum eymslum og roða eftir að húðsýni var tekið. Engir alvarlegir fylgikvillar, eins og t.d. sýkingar, komu eftir húðsýnatöku. Ályktun: Tveggja vikna meðferð í Bláa lóninu ásamt UVB ljósum, LÆKNAblaðið 2009/95 27

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.