Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 24
24 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
GRæJUR PáLL StefánSSon
ljósmyndari
T
IPAverðlaunin (The
Technical Image Press
Association) 2015, þar
sem það nýjasta og
besta í ljósmyndabransanum er
verðlaunað, voru kynnt nú um
daginn. Það verður þó ekki fyrr
en á kvennadaginn, 19. júní,
sem verðlaunin verða afhent,
í Tókýó, höfuðborg Japans.
Helstu verðlaunin voru þessi:
Canon fékk verðlaun fyrir bestu
aðdráttar linsuna fyrir atvinnu
menn, Canon EF 1124 mm f/4L,
og Zeiss fyrir Loxiaseríuna af
föst um linsum. Leica Tmynda
vélin fékk hönnunarverðlaunin
sem best hannaði gripurinn
meðan Manfrotto fékk verðlaun
fyrir besta þrífótinn; BeFreekol
efnis þrífótinn. Nikon fékk stóru
verðlaunin; fyrir D810, atvinnu
mannavél ársins, og Pentax fékk
verðlaun fyrir bestu MFvélina,
Pentax 645Z. Hið sænska
Profoto fékk verðlaun fyrir bestu
ljósin, en það var B2serían sem
vann þann flokk. Að lokum vann
Sony með A7S, sem var valin
heimsins besta myndbanda og
ljósmyndavél.
En þetta ár verður mjög sér
stakt. Canon kynnti nú um dag
inn nýja fimmu með 50 milljón
megapixla FFmyndflögu.
Gallinn er bara sá að það eru
bara nýjustu og bestu linsurnar
frá Canon sem geta
nýtt sér þessa ofur
flögu. En Canon,
sem er langstærsti
myndavélafram
leiðandinn, verður
ekki lengi einn
í paradís.
Mjög fljót
lega er
búist við
að Sony og
jafnvel Nikon
muni kynna myndavélar sem
keppa við nýju fimmuna, með
plús 50 milljón pixla FFflögum.
Gallinn er að ljósmyndarar
verða þá að fjárfesta í enn stærri
og öflugri tölvum; mynd fællinn
er orðinn svo stór að allar venju
legar tölvur leggj ast á hliðina
þegar svona stórar myndir eru
teknar til vinnslu.
álitsgjafar
S
taðan á fasteignamark
aðinum er sérkennileg
þessa dagana vegna
þess að lögfræðing
ar sýslumannsembættisins á
höfuðborgarsvæðinu hafa verið í
verkfalli frá því strax eftir páska.
Þar af leiðandi hefur engum
skjöl um verið þinglýst eftir 1.
apríl. Eftir því sem verkfallið
dregst á langinn hefur þetta
meiri áhrif á markaðinn.“
Ingibjörg Þórðardóttir segir
að fasteignaviðskipti á þessu
ári hafi farið mjög vel af stað og
staðan sé ennþá slík en nú sé
farið að gæta óvissu hjá fólki
um hvað verði og kunni það að
hafa áhrif á fasteignamarkaðinn
ef verkfallið dregst á langinn.
Fasteignaviðskipti hafa verið
eðlileg enn sem komið er og fjöl
margir kaupsamningar gerðir.
„Það hefur verið stígandi í
fasteignaverði og markaðurinn á
jafnri og góðri siglingu. Spáð er
verulegri hækkun fasteignaverðs
á komandi misserum og gera má
ráð fyrir töluverðri veltuaukningu
á árinu.
Fasteignasalar gera þó ekki
ráð fyrir að hækkanir verði meiri
en verið hefur síðustu misseri.
Bygg ingamarkaðurinn hefur
verið að eflast mikið og gera
má ráð fyrir að nýjar eignir víðs
vegar um landið fari að koma
í sölu og mun það væntan
lega hleypa enn frekara lífi í
fasteignamarkaðinn.“
Sérkennileg staða
ingibjÖrg ÞÓrðardÓttir
formaður Félags fasteignasala
FASTEIGNAMARKAÐURINN
Leggjast á hliðina
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Nikon fékk stóru verðlaun
in; fyrir D810, atvinnu
mannavél ársins.
„Það hefur verið stígandi
í fast eignaverði og mark
aðurinn á jafnri og góðri
siglingu.“