Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 66
66 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
hæfi sem yrði síðar nýtanlegt.
Það er greini lega ekki mikið lagt
upp úr því að kynna fyrir nemen
dum hvað verk og tækni nám er
mikilvægt. Kennarar og um leið
nemendur einblína of mikið á
eina línu; að fara úr grunnskóla,
yfir í menntaskóla og þaðan í
bóklegt nám í háskóla.
Ungt fólk hættir síðan í starfi
sínu eða í háskóla og fer þá í
verknám. Þá eru þessi ungmenni
jafnvel búin að eyða mörgum
árum í nám sem kannski nýtist
þeim ekki þegar þau eru komin
inn á starfsvettvang sem þau
hafa valið sér til framtíðar.“
„Höfum misst af stóru
tækifæri“
Árni sagði að Íslendingar hefðu
misst af mjög stóru tækifæri í
hruninu og eftir það við að endur
skoða menntakerfið. Ákveða
hvar áherslur ættu að liggja og
hvert við ættum að beina kröftum
okkar og nýta þá varðandi fram
tíðarsýn í menntun og menntun
arstigi þjóðarinnar.
„Helsti veikleiki okkar Íslend
inga er að við erum oft ekki með
skýra sýn; það virðist vera mjög
veik stefnumótun hjá fyrirtækj
um og stofnunum. Það vantar
langtíma stefnumótun, eins og
hvernig við ættum að nýta auð
lindir okkar eða varðveita þær.
Stefnumótun okkar í þeim efnum
er veik. Það er eins og við eigum
erfitt með að nýta hlutina sem
best til lengri tíma. Við förum yfir
leitt alltaf í verkáætlun án stefnu
mótunar. Við þurfum að breyta
þessu og horfa til lengri tíma.
Við náum ekki stöðugleika
nema vera með góða stefnu mót
un. Við þurfum að einbeita okkur
að því að þróa stefnumótun
okkar, gera langtímaáætlanir.
Það verða allir – stjórnarmenn,
fyrir tæki og þeir sem eru virkir
þátttakendur í samfélaginu – að
gera. Mér finnst oft og tíðum eins
og við séum að reyna að finna
upp hjólið. Það sýnir sig að við
erum með mjög litla reynslu í
stjórnun og markaðsfræðum. Við
erum ekki með mikla alþjóðlega
þekkingu á þeim sviðum. Við
eigum þess vegna að reyna að
fá þessa þekkingu að utan og
nýta hana, frekar en að reyna að
finna upp hjólið sem hefur verið
á ferðinni erlendis í langan tíma.
Sækja þekkingu út
Við höfum tekið þá stefnu hjá
Vífilfelli að sækja þekkingu að
utan. Eigendurnir eru erlendir,
reka stór fyrirtæki í útlöndum í
sömu greinum og við og hafa
gert það af miklum myndarskap
í marga áratugi. Við fáum þekk
inguna frá þeim og færum hana
yfir til okkar. Sú þekking hefur
nýst okkur geysilega vel og mun
gera í ókominni framtíð. Við erum
ekki að segja þeim hvað þeir
ættu að gera – erum ekkert að
finna upp neitt hjól í þeim efnum.
Fyrirtæki í okkar atvinnugrein
um ættu að vera ófeimin við að
sækja sér þá miklu þekkingu
sem má finna úti í hinum stóra
heimi.“
Samspil fyrirtækja og
háskóla
Árni segir að það vanti meira
samspil fyrirtækja og háskóla.
„Það er t.d. ekki oft sem við fáum
óskir frá til dæmis prófessorum,
eða þeim sem vinna í háskóla
samfélaginu, um verkefni. Ef
þær koma, þá koma þær frá
nemendunum sjálfum. Það þarf
að vera miklu virkari samvinna í
sam bandi við ýmsar rannsóknar
s kyldur innan háskólasamfélags
ins – að gera ýmsar rannsóknir
í samvinnu við fyrirtæki. Það
verður að koma samskiptum
skólakerfisins við fyrirtæki á
annað stig þannig að atvinnu rek
endur fái betur að njóta þekk
ingar úr háskólasamfélaginu og
reynslan úr atvinnugreinunum
gæti jafnframt gagnast í háskóla
samfélaginu á margan hátt,“
sagði Árni Stefánsson, stjórnar
maður hjá Vífilfelli.
iðnaður
skólPhrEinsistöð á stuðlahálsi
„Við erum afar stoltir af skólphreinsistöð okkar, enda er stöðin merki
legt fyrirbæri og margir hefðu gott af því að kynna sér hana. Hún er
sú eina sinnar tegundar á Íslandi og hreinsar allt skólp og úrgang frá
verksmiðjunni. Við skilum út í skólpkerfi Reykjavíkurborgar nánast
hreinu vatni. Þetta er lífrænt ferli hjá okkur, sem brýtur niður skólpið
og býr til metangas. Við nýtum það núna til að hita upp vatn,“ sagði
Árni Stefánsson þegar hann sagði okkur frá skólphreinsistöðinni sem
kostaði tæplega fimm hundruð milljónir króna. Stöðin, sem var byrjað
að byggja árið 2011 og var tekin í notkun 2012, stendur á lóð Vífilfells
við Stuðlaháls.
„Þetta er dæmi um þekkingu sem hefur ekki verið fyrir hendi á
Íslandi, að stjórna svona verksmiðju og sjá hvaða tækifæri gefast
og geta komið út úr henni. Sum sveitarfélög og bæjarfélög á Íslandi
uppfylla ekki staðla ESB varðandi losun úrgangs. Það er ánægjulegt
að við hjá Vífilfelli séum að byggja upp þekkingu í þessum efnum.
Með skólphreinsistöðinni erum við að svara kröfu frá The CocaCola
Company. Allar verksmiðjur sem framleiða gosdrykki frá fyrirtækinu
verða að vera með þannig hreinsistöð. Ef stöðin er ekki til staðar fá
verksmiðjur ekki að framleiða vörur fyrirtækisins.“
Starfið í kringum stöðina, sem er sjálfvirk, er vel skipulagt. Það eru
starfsmenn á sérstakri rannsóknarstofu sem bera ábyrgð á stöðinni.
„Við erum með starfsfólk sem hefur byggt upp mjög góða þekkingu á
hlutum sem aðrir hérlendis hafa litla reynslu af.“
Árni segir að Vífilfell sé mjög framarlega í umhverfismálum. „Draum
urinn hjá okkur er að draga úr allri mengun, til dæmis frá bílunum
sem við nýtum til að dreifa vörunum. Metangasið sem búið er til í
hreinsistöðinni gæti nýst í því sambandi.“
öryggi
Árni Stefánsson segir að Vífilfell leggi mikla áherslu á öryggi neytenda
og starfsfólks. „Við erum með öryggisfulltrúa sem hefur yfirumsjón
með öllu öryggi og sér um þjálfun og eftirlit.
Öryggismál eru lengst komin á Íslandi innan álfyrirtækjanna, en
við höfum tekið vel á þeim málum í samræmi við öryggisstefnu
fyrirtækisins.“
• gæði: Árni segir að gæðastefna Vífilfells sé í samræmi við The
CocaCola Company og að henni sé fylgt fast eftir.
• Þjálfun starfsmanna: Allir starfsmenn Vífilfells hljóta þá þjálfun
sem nauðsynleg er til að tryggja gæði vörunnar, markaðsstarfs
og þjónustu.
• Plast: Plastflöskurnar eru langvinsælustu umbúðirnar hjá Vífil
felli. Verksmiðj an framleiðir allar plastflöskur sem fyllt er á. Flutt
eru inn lítil plasthylki, sem blástursvélar blása upp. Aftur á móti
eru dósir og gler flutt inn. Þess má geta að endurnýtingarhlut
fall plastumbúðanna er yfir 90% og fara umbúðirnar í gegnum
Endurvinnsluna.
árni sagði að Íslendingar hefðu misst af mjög stóru tækifæri í hrun
inu og eftir það við að endur skoða menntakerfið.