Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 70
70 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
össur
Össur er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og
stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks. Fyrirtækið er leiðandi afl
á heimsvísu, þar starfa um 2.300 starfsmenn í 18 löndum.
Virðissköpun fyrir viðskiptavininn
TexTi: Hrund HaukSdóTTir / Myndir: Úr einkaSafni
Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir, ferilseigandi Lean.
Hugmyndafræðin straum línustjórnun (Lean) er aðferða og hug myndafræði sem
leiðir skipulagsheildir að mark
miðum sínum með því að útrýma
sóun, setja upp stöðluð vinnu
brögð og leysa vandamál með
kerfis bundnum hætti – sem svo
skilar sér beint til viðskiptavina
og skipulagsheildarinnar sjálfrar.
Innleiðing straumlínu-
stjórnunar
Með hvað hætti hefur Össur
innleitt þessa hugmyndafræði í
fyrirtækið?
Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir,
ferilseigandi Lean, situr fyrir
svörum: „Össur hefur verið
með Leanboðbera á flest
um starfsstöðvum til að leiða
innleiðinguna og halda utan um
heildarmyndina. Þeir hafa séð
um að þjálfa starfsmenn í Lean
og dreifa boðskapnum áfram.“
Hversu miklum árangri getur
straumlínustjórnun skilað í
rekstri?
„Skipulagsheildir á öllum svið um
geta innleitt Lean óháð stærð.
Stór hluti af innleiðingu straum
línustjórnunar er að þjálfa starfs
fólk og breyta viðhorfum þess til
umbótavinnu. Það tekur tíma að
innleiða straumlínustjórnun, því
eins og oft hefur verið sagt var
Róm ekki byggð á einum degi.
Samkvæmt fræðunum er
iðulega minni hluta af vinnutíma
starfsmanna varið í virðisaukandi
hluti sem viðskiptavinurinn vill í
raun borga fyrir. Við fyrstu sýn
kann þetta að virðast fráleitt en
þegar farið er að greina hlutina
kemur oftast á óvart hve mikil
tækifæri felast í að draga úr eða
jafnvel hætta alveg vinnu sem í
raun er ekki virðisskapandi fyrir
viðskiptavininn. Framleiðslusvið
Össurar er með það markmið að
lækka framleiðslukostnað árlega
um 4% og hefur það tekist mörg
undanfarin ár, m.a. vegna Lean.“
Lean-aðferðafræðin
Hvenær hófst innleiðing Lean hjá
Össuri og í hverju er hún einna
helst fólgin?
„Leanaðferðafræðin byggist
á að skilgreina hvað er virðis
skapandi fyrir vöruna og hvað
ekki. Hvaða aðgerðir í ferlinu
viðskiptavinurinn er tilbúinn að
borga fyrir og hvaða aðgerðir