Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 71
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 71
össur
eru hrein sóun. Aukin gæði nást
með straumlínustjórnun þar sem
ferlar eru staðlaðir. Stöðugt flæði
er viðkvæmara fyrir mistökum og
gallar uppgötvast fyrr í ferlinu.
Einnig er mikilvægt að gera
hlutina rétt alveg frá byrjun svo
ekki þurfi að endurtaka vinnuna.
Með því er verið að tryggja gæði
og halda utan um framleiðslu
kostnað.
Gæði skipta Össur gríðarlega
miklu máli sem og að vörurnar
okkar fari fram úr væntingum
viðskiptavina og uppfylli þarfir
þeirra til að auka lífsgæði þeirra.
Það er oft sagt að inngangurinn
að þessu öllu sé kortlagning
virðisstrauma, sem er gott sjón
rænt verkfæri. Virðiskortið hjálpar
til við að finna sóun, á því tungu
máli sem allir skilja, og sýnir á
einfaldan hátt hvernig upplýsing
ar og efni flæða í framleiðslunni
og fæst þá betri skilningur á
framleiðsluferlinu með sýnilegum
hætti. Virðisgreiningarkort (VSM)
er eitt af umbótatólum sem við
notum þar sem við teiknum upp
allt ferlið og skilgreinum hvað
er virðisskapandi fyrir viðskipta
vininn og hvað er hrein sóun.
Þetta er gott tól og þar sést svart
á hvítu hvar virðið liggur í ferlinu.
Með þessu náum við að eyða út
sóun í ferlinu og koma vörunni
fyrr á markað.“
Vel þjálfað starfsfólk og
jafningjafræðsla
Hvernig virkið þið starfsmenn og
í hverju er þjálfun þeirra helst
fólgin?
„Til þess að fyrirtækið okkar geti
vaxið, þroskast og haldið sam
keppnisstöðu sinni í krefjandi
alþjóðlegu umhverfi er mikilvægt
að starfsfólkið fái tækifæri til að
auka við þekkingu sína og færni.
Við bjóðum upp á fræðsludag
skrá allt árið um kring og þar
er bæði starfstengd þjálfun og
þjálfun til að auka persónu
lega færni. Inn í þetta fléttast að
sjálf sögðu fræðsla tengd Lean,
öryggis og gæðamálum.
Við viljum að starfsfólk sé vel
þjálfað og meðvitað um nýjungar
í sinni starfsgrein. Þessu fylgir að
við gefum því tíma og kost á að
sækja fræðslu sem hjálpar til við
að ná þessum markmiðum. Einn
ig teljum við mikilvægt að nýta
þá hæfileika sem búa í fólkinu
okkar á þann hátt að það fræði
samstarfsfólk sitt á þeim sviðum
þar sem það skarar fram úr.
Þannig er jafningjafræðsla mjög
stór og mikilvægur liður í okkar
þjálfunarframboði.“
Virkjun umbótavinnu
Hvað er Leanskólinn?
„Til að virkja sem flesta starfs
menn í umbótavinnu var Lean
bronsskóli settur upp haustið
2012 sem gengur vel og færri
sem komast að en vilja í hvert
skipti. Hóparnir eru ekki stórir og
deildum blandað saman, sem
virkar mjög vel. Þá er meiri fjöl
breytni í hópnum og starfsmenn
læra og deila reynslu.
Leanbronsskólinn stendur yfir
í þrjá mánuði og förum við yfir
aðferðafræðina Lean og þau tól
sem Össur notar úr verkfæra
kistunni. Bókin Andy And Me eftir
Pascal Dennis er lesin og horft
á nokkur kennslumyndbönd.
Með Leanbronsskólanum fáum
við starfsmenn til að hugsa um
umbætur og til að spyrja sig af
hverju við gerum hlutina svona.
Þótt við höfum alltaf unnið vinn
una með þessum hætti er það
ekki endilega rétta leiðin í dag.
Við getum alltaf gert betur,
hugsað út í hvað er virðisskap
andi fyrir viðskiptavininn. Hver
okkar innri og ytri viðskiptavinur
er og þekkja kröfur þeirra, því oft
á tíðum eru þær ekki eins og við
héldum.“
Umbótahugmyndir
Hvernig virkar tillögukerfið ykkar
sem sett var upp árið 2012?
„Þegar starfsmaður fær umbóta
hugmynd skráir viðkomandi
hugmyndina á tillögublað sem er
aðgengilegt í öllum framleiðslu
deildum. Því næst þarf verkstjóri
að fara yfir hugmynd ina og
meta hvort við ætlum að innleiða
hana. Þegar verkstjóri hefur
sam þykkt hugmyndina er hún
sett inn í tillögukerfið og þar
er valinn réttur ábyrgðaraðili
eftir hugmyndinni. Það er mjög
mikil vægt að starfsmenn skilji að
allar hugmyndir eru hugmynd ir
og séu óhræddir við að koma
sínum á framfæri. Í dag höf um
við innleitt alls um 2.600 hug
myndir frá starfsmönnum frá
sept ember 2012. Í dag erum við
með um 300 óinnleiddar tillögur
í kerfinu okkar. Því má segja að
starfsmennirnir séu aldeilis ekki
hugmyndalausir hvað varðar um
bætur, sem er lykill í vel gengni í
Lean; að fá alla starfsmenn til að
hugsa um stöðugar umbætur.
Öryggisatriði fyrir starfsmenn
skipta miklu máli og er tillögu
kerfi ð einnig notað í að leggja
til umbætur á öryggisþáttum í
um hverfi okkar.
Össur er með það að markmiði
að hver starfsmaður komi með
og innleiði sex hugmyndir fyrir
2015. Við erum á góðri siglingu
þar og höfum innleitt um 400
hugmyndir fyrstu þrjá mánuði
ársins. Hver einasta hugmynd er
umbót og skilar árangri og ekki
má gleyma því að það er mikil
vægt fyrir starfsmenn að geta haft
skoðanir og aðgang að því að
koma með tillögur að breytingum.
Það er fólkið á gólfinu sem þekkir
framleiðsluferl ana best og eru því
sérfræð ingarnir.“
„Leanaðferðafræðin
byggist á að skilgreina
hvað er virðisskapandi
fyrir vöruna og hvað ekki.
Hvaða aðgerðir í ferlinu
viðskiptavinurinn er
tilbúinn að borga fyrir og
hvaða aðgerðir eru hrein
sóun.“
Hlutverk Össurar er að gera fólki kleift að njóta sín til fulls með bestu stoð og stuðningstækjum sem völ er á.