Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 56
56 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
iðnaðurinn
TexTi: Jón G. HaukSSon
Myndir: Geir ólafSSon
Össur og Marel hafa í áraraðir verið við toppinn í árlegri könnun Frjálsrar verslunar á vinsælustu
fyrirtækjunum. Í síðustu könnun í upphafi árs lentu þau í þriðja og fjórða sæti. Mjólkursamsalan,
CCP, Góa og Vífilfell hafa sömuleiðis verið á listanum.
V insælasta iðnfyrirtæki landsins, samkvæmt árlegri könnun Frjálsrar verslunar,
hefur um nokkurt skeið verið stoð
tækja fyrirtækið Össur. Fjögur ár í
röð, eða frá 2010 til 2013, trónaði
það á toppi listans. Annað iðn
fyrirtæki, Marel, hefur sömu leiðis
vermt eitt af efstu sætunum um
árabil. Bæði þessi iðnfyrirtæki
eiga það sameiginlegt að hafa
byrjað smátt á heimamarkaði á
Íslandi en vaxið til útlanda og
teljast bæði alþjóðleg fyrirtæki
með stærsta hluta tekna sinna
erlendis.
Þau hafa bæði skorað hátt í
kauphöllinni Nasdaq Iceland og
er Össur raunar bæði skráður
í kauphöllinni hér á landi og í
Danmörku. Eigendur hans eru
Danir að stærstum hluta.
Af öðrum iðnfyrirtækjum sem
hafa skorað á listanum má nefna
Mjólkursamsöluna, NóaSíríus,
Góu, Vífilfell, Ölgerðina og tölvu
leikjafyrirtækið CCP. Í síðustu
össur og marel
langVinsælust
Vinsælustu iðnfyrirtækin, samkvæmt
könnun Frjálsrar verslunar:
Hluthafar í Össuri hafa ávaxtað sitt pund vel.
Össur hefur vaxið og dafnað undanfarin ár og er nú með starfsemi í 18 löndum.
Árangur fyrirtækisins byggir á atorkusömu starfsfólki sem leitar á hverjum degi nýrra leiða
til að bæta hreyfanleika fólks.
Össur mun halda áfram að þróa vörur sem gera fólki á Íslandi, og um heim allan,
kleift að yfirstíga líkamlegar hindranir, njóta sín til fulls og öðlast betra líf.
ÖSSUR ÓSKAR LANDSMÖNNUM ÁRS OG
FRIÐAR OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI