Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 38
38 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
sjóðsins í fyrirtækinu var lokið, en við
töldum rétt að áfangaskipta sölunni til
að ekki myndaðist offramboð á bréfum í
félaginu. Í öllum tilvikum réð Fram taks
sjóðurinn miðlara og kom ekki að út hlutun
seldra hluta. Hluthafar jafnt sem aðrir
fjárfestar tóku sjálfstæða ákvörðun um
fjárfestingu. Við höfðum og höfum mikla
trú á því sem stjórn og stjórnendur Ice
land air Group eru að gera og þar með á
framtíð félagsins. Við erum ánægð með
þá ávöxtun sem við fengum og teljum að
við höfum fengið sanngjarnt verð fyrir
hlut okkar. Það er svo ánægjulegt hversu
vel hefur gengið í rekstri félagsins og við
erum mjög sátt við það að þeir sem keyptu
okkar bréf í félaginu hafi haldið áfram að
hagnast á þeirri fjárfestingu. Við náðum
þeim markmiðum sem við stefndum að
með fjárfestingunni og því annarra að taka
við keflinu.
9.
Árið 2010 var rætt um að skrá eina
helstu eign félagsins, Icelandic Group, á
markað fljótlega. Ekkert hefur orðið úr
því. Hver er ástæðan?
Icelandic Group er öflugt og spennandi
félag en um leið er rekstur þess afar
krefjandi. Velta félagsins er mikil, en
fram legð er lág. Það hefur tekið lengri
tíma en við gerðum ráð fyrir í upphafi
að koma félaginu á þann stað að það sé
hæft til skráningar á markað. Stöðugleiki
í rekstri er ein forsenda slíkrar skráningar.
Markmið okkar með félagið eru skýr. Við
viljum koma rekstrinum á þann stað að
félagið sé áhugaverður fjárfestingakostur
og skili eigendum okkar sem mestri
arðsemi.
10 .
Miklar umræður urðu um söluna á
starfsemi Icelandic í NorðurAmeríku til
kanadíska félagsins High Liner Foods
fyrir fjórum arum. Tekið var fram að eitt
helsta vörumerki Íslendinga, Icelandic
Seafood, yrði áfram í eigu Icelandic
en að kaupandinn, High Liner Foods,
hefði yfirráð yfir vörumerkinu í sjö ár og
gæti selt fisk annarra landa undir þessu
vörumerki. Var tímabundið framsal á
vörumerkinu mistök?
Þegar Framtakssjóðurinn kom að Icelandic
Group var fjárhagsstaða félagsins afar
þröng og lítið mátti út af bregða hjá því.
Salan í Bandaríkjunum, Þýskalandi og
Frakklandi styrkti fjárhagsstöðu félags ins
og eyddi þar með óvissu um langtíma
rekstrarhæfi þess og er félagið í dag mjög
fjárhagslega burðugt. Hluti afraksturs
sölunnar er í höndum Framtakssjóðsins
í sjóði, IEI, sem á erlendar eignir sem
voru metnar á um 12 milljarða króna um
síðustu áramót. Við söluna á verksmiðju
fé lagsins í Bandaríkjunum var afnotaréttur
vörumerkisins, Icelandic Seafood, leigður
með ströngum skilyrðum til ársins 2018
til High Liner Foods. Samstarf Icelandic
Group við High Liner Foods hefur verið
afar gott frá upphafi og hefur salan á
íslenskum sjávarafurðum í Bandaríkjunum
undir merkjum Icelandic Seafood síður en
forsíðuViðtal
Herdís dröfn
fjeldsted
Herdís Dröfn Fjeldsted, framkvæmdastjóri
Framtakssjóðs Íslands, er alin upp suður
með sjó, í Sandgerði. Hún er viðskiptafræð
ingur að mennt og með framhaldsnám í
fjármálum fyrirtækja, auk þess sem hún lauk
námi í verð bréfaviðskiptum frá Háskólanum
í Reykjavík.
Hún varð framkvæmdastjóri Framtaks sjóðs
ins í apríl 2014 en hóf störf hjá sjóðnum sem
fjár festingarstjóri í september 2010. Áður
starfaði hún hjá Thule Investments. Hún
situr í stjórn Icelandic Group sem stjórnar
formaður og í IEI II (Promens). Um góð ráð í
stjórnun segir hún að góðir stjórnendur séu
þeir sem hafa lag á því að raða í kringum
sig hæfu fólki og laða fram bestu eiginleika
þess. Þá skipti skýr og opin samskipti á
vinnustöðum miklu máli þar sem ríki andrúm
hvatningar, metnaðar og gleði.
Þegar Framtakssjóðurinn
kom að Icelandic Group
var fjárhagsstaða félagsins
afar þröng og lítið mátti út
af bregða hjá því. Salan í
Bandaríkjunum, Þýskalandi
og Frakklandi styrkti
fjárhagsstöðu félags ins.