Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 53
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 53
iðnbyltingin
Framleiðni, menntun
og nýsköpun:
Nýja iðnbyltingin gengur út á að auka framleiðni, menntun og nýsköpun í
íslensk um iðnaði. Mikil þörf er á að fjölga fólki með iðn-, verk- og tæknimennt-
un. Aukin framleiðni eykur samkeppnishæfnina og er undirstaða bættra kjara
almennings. Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
segir hér frá brýn ustu málunum innan iðnaðarins.
ný ja
TexTi: BJörn viGnir SiGurpálSSon
Myndir: Geir ólafSSon
N
ýja iðnbyltingin var
mál málanna á ný af
stöðnu Iðnþingi. Hún
gengur út á að bæta
framleiðni, menntun og nýsköpun
í íslenskum iðnaði sem og ís
lensku atvinnulífi. Þetta er í raun
þrenns konar bylting. Aukin fram
leiðni er það sem mestu skiptir
og Samtök iðnaðarins leggja
höfuðáherslu á – en bæði mennt
un og tækniframfarir eru meðal
annars leiðin að því markmiði.
Almar Guðmundsson, fram
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar
ins, fer í gegnum þessi mál
með okkur. Hann tók við sem
fram kvæmdastjóri Samtaka iðn
að arins í september á síðasta
ári. Fimm ár þar á undan gegndi
hann starfi framkvæmdastjóra
Félags atvinnurekenda og er því
með drjúga reynslu af stjórnun
hagsmunasamtaka. En skyldi eitt
hvað hafa komið honum á óvart í
starfsemi samtakanna hingað til?
„Ég þekkti reyndar samtökin
fyrir í gegnum fyrri störf mín en
það kom mér samt á óvart hversu
víðfeðm starfsemin er og marg
brotin,“ segir Almar.
„Samök iðnaðarins eru bæði
með mun fleiri félagsmenn og
starfsmenn. Hér eru átján starfs
menn þegar allt er talið miðað við
fjóra til fimm á hinum staðnum.
Vegna þess hversu breið sam
tökin eru þá er hópur inn eðlilega
mislitari og áherslur jafnvel