Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 26
26 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 S igurður B. Stefánsson segir að sagt sé á Wall Street að örugg leið til að auðgast sé að eignast hlutabréf í fyrirtæki á hlutfallslega lágu verði sem þó fer hækkandi og hefur farið hækk andi umfram önnur hluta­ bréf. Það þarf þó jafnan að gæta að aðstæðum. „Senn taka við sex mánuðirnir maí til október sem að meðaltali skiluðu næstum engri hækkun mælt aftur til 1950 svo dæmi sé nefnt. Annað dæmi um sér að ­ stæður má rekja aftur til fyrstu vikna 2012. Frá þeim tíma hefur verð á hlutabréfum í fyrirtækjum á sviði tækni og vísinda hækkað og hækkað en hlutabréf og vísitölur sem tengjast því sem af jörðu kemur – olíu, gulli, kopar og öðrim hrávörum – hafa lækk­ að og lækkað. Nasdaq­vísitala hlutabréfa um 3.100 tæknifyrirtækja hefur hækkað um 52% til miðs apríl 2015 frá ársbyrjun 2012. Þau eitt hundrað stærstu þeirra hækkuðu um 85% á sama tíma (20,5% árshraði). Líftæknifyrirtæki á Nasdaq hækkuðu mest eða um 230% (3,3­földun í verði) sem svarar til 44% ársávöxtunar þessi þrjú ár og fimmtán vikur. Þetta er það sem vísindin og þekking manna hafa leitt af sér. Hrávörur sem eru úr jörðu komn ar hafa lækkað um 43% til miðs apríl 2015 frá hágildi 2011. Frá janúar 2012 lækkaði verð á kopar um 37% og gullverð um 35%. Olíuverð er 60% lægra en í upphafi árs 2012 en öll sú lækkun er frá miðju ári 2013. Við túlkun þessara talna ber að hafa í huga að meðalgengi dollara í apríl 2015 er 20% hærra en í upphafi árs 2012 og sú hækkun er að mestu frá miðju ári 2014. Líftæknifyrirtæki á Nasdaq hækkuðu mest nasdaq síðustu tólf mánuðina T homas Möller segir að sú breyting sé hafin hjá stjórnendum um heim allan að þeir eru hættir að gorta af löngum vinnu degi. Hann segir að Google í Dublin hafi sagt starfsfólki sínu að skilja tölvurnar eftir þegar það fer heim úr vinnunni. „Daiml er lætur eyða tölvupósti sem kemur til starfsfólks sem er í fríi. Mörg fyrirtæki hafa áttað sig á mikil­ vægi þess að fríið sé notað til að vera í fríi, til að hlaða batterí­ in og koma fersk til baka. Þeir sem fara heim úr vinnunni á réttum tíma eru ekki lengur álitnir latir eða verkfælnir heldur vel skipulagðir og afkastamiklir. Í bestu fyrirtækjunum verður lokatími settur í auknum mæli á verkefnin en samkvæmt Parkin­ son­lögmálinu taka verkefni yfirleitt þann tíma sem þeim er gefinn.“ Thomas segir að aukin fram­ leiðni náist með því að einfalda vinnuferla, auka sjálfvirkni og sjálfsafgreiðslu gegnum netið, fækka og stytta fundi til dæmis með því að halda eingöngu standandi fundi og fækka minnis blöð um og stytta þau. Einn ig má fækka glærum í kynningum, stytta starfsmanna­ samtölin og forðast alla óþarfa skriffinnsku og skrifstofupólitík. „Þetta hefst líka með því að minnka áreiti í vinn unni, fækka ruslpóstum, auka sjálfvirkni og deila verkefnum innan fyrirtækisins til þeirra sem eru hæfastir til þess og í sumum tilfellum til viðskiptavinanna sjálfra eins og bankarnir, ben­ sín stöðvarnar og flugfélög in eru að gera. Með þessu eykst fram­ leiðni starfsfólks og stjórnenda.“ Thomas hvetur stjórnendur til þess að hætta að monta sig af löngum vinnudegi. Þess í stað eiga þeir að vera hreyknir af því að vera alltaf komnir heim úr vinnunni á réttum tíma, segja frá því hvað þeir áttu afslappað og ótruflað frí og gorta sig af þeim námskeiðum sem þeir hafa sótt til að skerpa á þekkingunni.“ tHomaS mÖLLer framkvæmdastjóri Rýmis STJÓRNUN Hættu að vinna svona lengi! Sigurður b. StefánSSon hagfræðingur ERLEND HLUTABRÉF álitsgjafar Mörg fyrirtæki hafa áttað sig á mikilvægi þess að fríið sé notað til að vera í fríi, til að hlaða batterí in og koma fersk til baka. Með öflugu dreifikerfi Póstsins kemur þú þínum vörum hratt og örugglega, hvert á land sem er. Hvort sem um ræðir stakar vörur eða bílfarma, þá hefur Pósturinn lausnina. Eitt símtal og við erum að dansa. STÓRAR SENDINGAR – VIÐ FÖRUM LÉTT MEÐ ÞAÐ www.postur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.