Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 67
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 67
Hjá Odda starfa um 250 manns í dag og fyrirtækið framleiðir árlega um 36 þúsund verkefni fyrir 3.500
viðskiptavini. Umsvifin hafa aukist undanfarin ár eftir samruna Odda við Kassagerðina og Plastprent og
velta fyrirtækisins er nú um 5,5 milljarðar króna.
Prentun fyrir Facebook
og umbúðir í frystitogara
TexTi: Hrund HaukSdóTTir / Myndir: Úr einkaSafni
Prentverk er um þriðjungur starfsemi Odda en önnur verkefni felast í framleiðslu fjölbreyttra
umbúða úr pappír, kartoni og
plasti. Verkefni fyrir sjávarútveg
inn eru um þriðjungur umsvifa
fyrirtækisins, en aðrir stórir
viðskiptavinir eru t.d. framleið
endur matvæla og fyrirtæki í út
gáfu, iðnaði, verslun og þjón ustu.
Alþjóðlegt gæðastarf er mikilvægt
í starfsemi Odda en fyrirtækið
hefur norræna umhverfismerkið
Svaninn, ISO 9001öryggisvottun
og BRCmatvælavottun.
Viðbragðsflýtir í þjónustu
„Nálægð okkar við íslenska
viðskiptavini er augljóslega
mikil og við getum brugðist
hratt við óskum þeirra. Sá
viðbragðsflýtir og sérþekking á
íslensku atvinnu lífi gefur okkur
afgerandi forskot í samkeppni,“
segir Baldur Þorgeirsson, fram
kvæmda stjóri hjá Odda.
Baldur kveður Odda vera
stærsta innlenda framleiðandann
á umbúðamarkaði og fáir aðrir
um hituna hér á landi. Oddi sé
því fyrst og fremst að keppa við
innfluttar vörur. „Við bjóðum þar
mikil gæði og hátt þjónustustig
og teljum hvort tveggja á hag
stæðu verði,“ segir Baldur.
Ný tækni í plast-
umbúðum
Í kjölfar sameiningarinnar við
Plastprent hefur Oddi fjár fest
í nýjum tækjabúnaði, m.a. í
svokölluðum coextrusion bún
aði. Hann gerir fyrirtækinu kleift
að framleiða plastumbúðir úr
þremur mismunandi lögum
hráefna.
„Framleiðsla á þriggja laga
umbúðum er nýjung á Íslandi.
Með þeim er mögulegt að nýta
sérhæfða eiginleika ólíkra hrá
efna með eitt hráefni í miðju og
önnur í innsta og ysta lagi. Það
verður spennandi að kynna þessa
byltingu fyrir viðskiptavinum.“
Frá Facebook til Nike
Að sögn Baldurs koma um 15
prósent af veltu Odda í dag
frá erlendum viðskiptavinum,
annars vegar sjávarútvegsfyrir
tækjum við Atlantshaf sem
kaupa umbúðir og hins vegar frá
út gefendum bóka og tímarita í
Bandaríkjunum.
„Oddi hefur starfrækt söluskrif
stofu í New York í aldarfjórðung
og við erum nokkuð vel þekkt
vörumerki þar um slóðir þegar
kemur að vandaðri prentgrip
um. Meðal viðskiptavina Odda
í Bandaríkjunum eru Adidas,
Facebook, Nike, Smithsonian
og Guggenheim. Þessi hópur
viðskiptavina veitir starfsem
inni alþjóðlegan blæ og skapar
skemmtilegar andstæður gagn
vart íslenskum matvælafram leið
endum og sjávarútvegi,“ segir
Baldur Þorgeirsson að lokum.
„Meðal viðskiptavina
Odda eru Adidas, Face
book, Nike, Smithsonian
og Guggenheim. Þessi
hópur skapar skemmti
legar andstæður gagnvart
íslenskum matvælafram
leiðendum og sjávarút
vegi.“
oddi
Baldur Þorgeirsson er framkvæmdastjóri Odda.