Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 86
86 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
Þorir þú að taka upp nýjar
stjórnunaraðferðir?
stjórnun
HerdíS pála
MBa, fyrirlesari, markþjálfi og
eigandi www.herdispala.is
þar sem hægt er að skrá sig
fyrir ýmsu ókeypis og
hvetjandi lesefni
Ég vona að enginn móðgist þótt ég haldi því fram að margt sé líkt með barnauppeldi
og því að hafa mannaforráð.
Þ að sem mér hefur þótt mest gefandi og skemmti legt við að hafa mannaforráð á
undan förnum árum er einmitt
að hjálpa mínu fólki að takast
á við áskoranir; eflast í starfi
og ná árangri – sama og með
börnin mín. Við uppeldi barna
þarf meðal annars að leiðbeina,
styðja, byggja upp traust í sam
skiptum, hlusta, sýna heilbrigðan
aga, vera samkvæmur sjálfum
sér, setja skýr mörk, þora að
segja já, þora að segja nei,
hvetja, hrósa, fagna og halda
upp á áfanga, þora að sleppa
tökunum, treysta og samgleðj ast
– ekki ósvipað því sem stjórnend
ur þurfa að gera með sitt fólk.
Í miklu álagi, áreiti og dagsins
önn hjá verkum hlöðnum stjórn
endum er hins vegar því miður
of algengt að starfsfólk viti ekki
til hvers er ætlast af því, það fái
ekki uppbyggjandi endurgjöf,
hvatningu, hrós eða fagnaðar
stundir þegar áföngum er náð.
Því miður fær fólk oft fyrr að
vita af því ef það er eitthvað sem
betur má fara en þegar ástæða
er til að hrósa.
Það er þó öllu verra þegar fólk
fær heldur ekki að vita af því
sem betur má fara og fær aldrei
tækifæri til að verða betra í sínu
starfi, jafnvel í góðri trú um að
það standi sig vel.
Æskilegt er að stjórnendur líti
reglulega í spegilinn, bóki sér
jafnvel fasta tíma í hverri viku þar
sem þeir fara í gegnum eftirfar
andi vangaveltur.
hvernig stjórnandi vil ég
vera?
Hvað vil ég að mitt fólk læri
af mér? Hvað geri ég til að
hjálpa mínu fólki að vaxa
og eflast í starfi, að verða
öflugra en þegar ég fékk það
undir mína ábyrgð? Hvaða
ákvarðanir þarf ég að taka?
Hvaða áföngum ætla ég að
ná með mitt fólk á hverjum
ársfjórðungi þessa árs?
Hvaða áföngum eða sigrum
er orðið tímabært að fagna?