Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 54
54 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
mismunandi. Ég get orðað það
svo að hjá Félagi atvinnurek
enda voru menn í um 90% tilfella
sammála um helstu atriði. Hér
reynir meira á þetta. Svo dæmi
sé tekið vilja nánast allir innan
samtakanna afnema fjármagns
höftin en þegar það er krufið
betur til mergjar er mismunandi
hversu aðkallandi mönnum finnst
það vera.
Alþjóðlegu fyrirtækin og þau
sem eru í útflutningi kalla mjög
sterkt eftir afnámi þeirra meðan
þeir sem eru einungis í innlendri
starfsemi eru rólegri í tíðinni og
telja sig finna minna fyrir skað
legum áhrifum. Í starfi okkar
er því mikilvægt að einblína á
þarfir ákveðinna hópa um leið og
unnið er að stóru sameiginlegu
málunum, sem eru býsna mörg.“
Almar leggur áherslu á að
menntamál séu einn af stóru
málaflokkunum innan iðnaðarins.
„Það er skýr þörf á því að fjölga
fólki með iðn, verk og tækni
menntun og einnig að fjölga
einstaklingum með raungreina
og tæknimenntun á háskólastigi.
Um þessar áherslur geta allir
sameinast. Sama á við um þörf
ina fyrir aukna framleiðni.“
Almar segir samtökin eiga í
miklum beinum samskiptum við
félagsmenn. „Nærtækt dæmi þar
um eru breytingar á byggingar
reglugerð sem við höfum verið
að vinna í. Hluti af henni snýr að
því að byggingaraðilar taki upp
gæðakerfi og vinni skipulegar
en verið hefur. Við höfum tekið
því viðfangsefni fagnandi og
aðstoðað menn við að taka fyrstu
skrefin á því sviði. Við getum þá
veitt ákveðna ráðgjöf og vísað
þeim áfram. Hinn hluti málsins
er síðan unninn í samvinnu við
stjórnvöld og opinbera aðila,
þ.e.a.s. að vinna áfram að ein
földun byggingarreglugerðar
þannig að kröfur séu ekki að
hleypa byggingarkostnaði of hátt
upp. Á því sviði er raunar ennþá
mikið verk að vinna.“
Almar segir að þrjú meginsvið
séu innan Samtaka iðnaðarins.
„Fyrst er að telja byggingar og
mannvirkjageirann. Þá framleiðslu
og matvælafyrirtæki en þar má
nefna fyrirtæki í matvæla iðnaði,
orkutengdum iðnaði, prentiðnaði,
endurvinnslu, mál miðnaði og
húsgagnaiðnaði. Í þriðja lagi er
það sem við köllum hugverk og
þjónusta, þ.e. upplýsingatækni,
heilbrigðis tækni, líftækni og fleira
þess háttar. Innan þessa sviðs
eru að auki ýmsar þjónustu
greinar. Þessi fyrirtæki leggja
al mennt meiri áherslu á vöxt og
sam keppnishæfni Íslands – og
viðmiðin í þeim efnum eru oft
meira sótt til annarra landa.
Viðskipti á milli ólíkra fyrirtækja
á þessum þremur meginsviðum
eru svo auðvitað talsverð.
Innan okkar raða eru líka fyrir
tæki sem flokkast með skap andi
greinum, eins og kvik mynda
fram leiðendur. Þegar rætt er um
skapandi greinar finnst mörgum
sem vísað sé í menn ingarflötinn
fremur en rekstrarþátt inn. En það
eru viðskipti í listinni og þarna eru
að verða til mörg athyglisverð
fyrirtæki.“
Heilbrigður skoðana-
munur í víðfeðmum
samtökum
Almar segir almennt mikla
grósku vera innan iðnaðarins.
„Við sjáum til dæmis mikinn
kraft í nýsköpun, þ.e. í fram
leiðslu á vörum sem hafa verið
á rann sóknar og þróunarstigi
um langt skeið. Mætti nefna Orf
Líftækni sem dæmi en fyrirtækið
framleiðir núna snyrtivörur í
nokkru magni. Þá mætti nefna
byggingargeirann. Þar er margt
í gangi. Sérstaklega í kringum
framkvæmdir tengdar ferðaþjón
ustunni eins og hótelbyggingar.
Gagnaverin eru kannski ekki
stóriðja en spila mjög vel með
þeim styrkleikum sem Ísland hef
ur – grænni orku á samkeppnis
hæfu verði. Þá er mikill kraftur
í ýmiss konar hugverka og
iðnaður
Nýja iðnbyltingin var mál málanna á nýaf
stöðnu Iðnþingi. Hún gengur út á að bæta
framleiðni, menntun og nýsköpun í íslenskum
iðnaði sem og íslensku atvinnulífi.