Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 62
62 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
framleiðsluferlinu í álverunum og
breyta honum í hráefni. „Sú vinna
er raunar þegar langt á veg kom in
og nægir í því sambandi að nefna
að hjá AlcoaFjarðaáli eru 99,7%
allra aukaafurða frá starf seminni
endurunnin,“ segir Pétur.
Þjóðhagslegt mikilvægi
áliðnaðar
Í máli Péturs kemur fram að
áliðnaðurinn sé þjóðhagslega
mikilvægur fyrir Íslendinga
og tala þar tölurnar sínu máli.
„Út flutningsverðmæti íslenskrar
álframleiðslu nam í fyrra 227
milljörðum og af því verða hátt
í 100 milljarðar eftir á Íslandi í
formi kaupa á raforku, vörum og
þjónustu og síðan launa og opin
berra gjalda. Þetta eru það háar
fjárhæðir að erfitt er að setja þær í
samhengi sem fólk áttar sig á, en
ég bendi þó á að Land spítalinn er
stærsti liðurinn á fjárlögum þessa
árs hjá ríkinu og námu framlög til
hans rúmum 40 milljörðum.“
Í úttekt Hagfræðistofnunar á
beinu og óbeinu framlagi áliðn
aðar til landsframleiðslu sem
kynnt var í febrúar 2012 kom
fram að framlag álframleiðslu
nam um 6,8% af landsfram
leiðsl unni, en þar kemst
stofn unin að þeirri niðurstöðu
að orkuáliðnaður sé einn af
grunn atvinnuvegum þjóðarinn
ar. Um 2.000 manns vinna á
álverssvæðunum á hverjum tíma,
en samkvæmt skýrslunni má
gera ráð fyrir að störfin séu um
5.000 þegar horft er til beinna og
óbeinna starfa og er þá ekki horft
til eftirspurnaráhrifa.
Góð áhrif á uppbygg-
ingu byggðarlaga
„Það er mikilvægt að gleyma ekki
þeim þætti sem lýtur að mikil vægi
áliðnaðarins sem grunns fyrir
nýsköpun og þróun í atvinnu
lífinu,“ segir Pétur. „Ég get nefnt
dæmi úr nýlegri fjalla skíðaferð
sem ég fór í til Eskifjarðar. Við
ferðuðumst saman góður hópur
og gistum á Mjóeyri hjá hjónun
um Sævari Guðjónssyni og Berg
lindi Steinu Ingvars dóttur, sem
hafa byggt þar upp metnaðar
fulla ferðaþjónustu – með gistingu,
veitingastað og skíðaferðum í
fjöllunum í kring.
Þau sögðu mér að það hefði
hjálpað þeim í uppbyggingar
starfi nu á sínum tíma að
AlcoaFjarðaál, sem einnig er í
Fjarðabyggð, leigði af þeim gisti
aðstöðu yfir vetrartímann. Það
færði stoðir undir reksturinn og
kom þeim yfir erfiðasta hjallann,
ásamt auðvitað þeirra frumkvæði
og dugnaði.“
Pétur segir þetta ekki eina
dæmið úr ferðinni sem sýndi
hversu mikilvægt væri að stoðir
atvinnulífsins væru fjölbreyttar.
„Ég heimsótti einnig útgerðina
Eskju hf. á Eskifirði og hafði
áður komið í Síldarvinnsluna í
Neskaup stað. Það er hreint ótrú
legt að koma inn í þessi fyrirtæki
og sjá þá miklu tækni byltingu
og hagræðingu sem þar hefur
átt sér stað. Það slær mann
strax hversu mikil sjálfvirknin
er orðin. Bæði þessi rótgrónu
fyrirtæki gegndu áður þeirri sam
félagsábyrgð að sjá fólki í byggð
iðnaður
vErðlaunagriPur úr áldósum!
Garðar Eyjólfsson, lektor við vöruhönnunardeild Listaháskóla
Íslands, hannaði verðlaunagripinn fyrir Söngkeppni framhaldsskól
anna 2015. Garðar fór á milli menntaskólanna á höfuðborgarsvæðinu
og safnaði áldósum. Hann fór með þær í Málmsteypuna Hellu í
Hafnarfirði og þar var verðlaunagripurinn smíðaður – úr endurunnum
áldósum sem framhaldsskólanemar höfðu handleikið og drukkið úr.
„Ál má endurvinna nær endalaust, enda eru um 75% af öllu áli sem
framleitt hefur verið í heiminum enn í notkun og hátt í 90% af öllum
drykkjardósum úr áli á Íslandi eru endurunnin,“ segir Pétur. „Það
segir sína sögu að um sextíu dagar geta liðið frá því drykkjardós úr
áli er skilað til endurvinnslu þar til hún ratar aftur í búðarhillurnar.“
PönnukökuPönnur
Pétur Blöndal segist hafa átt ánægjulega heimsókn á dögunum í
Málmsteypuna Hellu í Hafnarfirði, sem er rótgróið fjölskyldufyrirtæki
og framleiðir að mestu úr áli. „Hella hóf starfsemi sína árið 1949 í
hlöðu í Reykjavík og varð að afla allra tækja og hráefnis hér á landi
vegna haftanna og var ál að mestu sótt í gömul flugvélarflök sem sótt
voru á fjöll. Enn þann dag í dag er álið að miklu leyti endurunnið, en
einnig er það keypt frá Norðuráli. Framleiðslan er fjölbreytt, allt frá
pönnukökupönnum og samlokugrilli til vegvísa og tækja og tóla fyrir
áliðnað og sjávarútveg.“
„Það sést vel á því að árið 2012 keyptu ís
lensku álverin vörur og þjónustu frá 700 inn
lendum fyrirtækjum fyrir 40 milljarða og eru
þá raforkukaup undanskil in.“
Samál var stofnað 7. júlí árið 2010 af Rio Tinto Alcan í Straumsvík, Norðuráli á Grundar tanga og
AlcoaFjarðaáli á Reyðarfirði.