Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Page 95

Frjáls verslun - 01.03.2015, Page 95
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 95 sjónvarpsseríum, lék meðal annars titilhlutverkið í Emily Owens MD. Streep leikur rokkarann Ricki Randazzo sem lét sig nánast hverfa að heiman fyrir tuttugu árum til að láta draum sinn ræt ­ ast og verða rokksöngkona og stofna hljómsveit. Gengið hefur á ýmsu hjá henni og hún er ekkert í alltof góðum málum þeg ar hún ákveður að snúa heim eftir að hafa frétt að dóttir hennar sé í miklum vandræðum. En er fjöl ­ skyldan til í að taka á móti henni eins og ekkert hafi ískorist? Því fer fjarri. Mamie Gummer leikur dóttur hennar og Kevin Kline eiginmanninn. Eins og hennar var von og vísa æfði Meryl Streep sig á gítar í sex mánuði til að vera nógu vel undirbúin fyrir hlutverk­ ið. Ekki er svo slæmt að hafa sem leikstjóra Jonathan Demme, en meðal kvikmynda sem hann hefur leikstýrt eru The Silence of the Lambs, Philadelphia og The Manchurian Candidate. Handritið skrifaði Diablo Cody sem fékk óskarsverðlaunin fyrir handrit sitt að Juno. Aðalhlutverkin í Suffragette, sem frumsýnd verður í október, leika Helena Bonham Carter og Carey Mulligan, tvær ungar konur sem hrífast af kvenréttindabaráttunni og taka þátt í mótmælum með þeim afleiðingum að þær verða að fara í felur. Var það talsvert í fréttum í fyrra þegar tökur fóru fram að Suffragette er fyrsta leikna kvikmyndin sem kvikmynduð er innan breska þinghússins. Í burðarliðnum er svo enn ein raunveruleg persóna sem Meryl Streep mun takast á við í sinni næstu kvikmynd. Leikur hún titilhlutverkið í Florence Foster Jennings, en Florence var New York­búi og erfingi mikilla auð æfa. Hana dreymdi um að verða óperusöngkona og eyddi mörg um milljónum í kennara en gall inn var sá að hún var nánast laglaus. Hafa margir eflaust heyrt upptökur með henni og haft gaman af. Streep leikur rokkarann Ricki Randazzo sem lét sig nánast hverfa að heiman fyrir tuttugu árum til að láta draum sinn ræt ast og verða rokksöngkona og stofna hljómsveit. Meryl Streep ásamt eiginmanni sínum, myndlistarmanninum Don Gummer.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.