Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Page 96

Frjáls verslun - 01.03.2015, Page 96
96 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 fólk E va Magnúsdóttir stofnaði nýlega ráð ­ jafar fyrir tækið PODIUM þar sem hún leggur áherslu á stefnumótun, breyt ­ inga stjórn un, markaðsmál, al­ mannatengsl og samfélags lega ábyrgð fyrirtækja. „Ég nýti í starfinu þá reynslu og þekkingu sem ég hef af vinnu ­ markaði, úr námi og starfi fyrir íþróttahreyfinguna og í stjórnmál­ um. Sérstaðan er kannski breidd­ in sem ég get sett í ráðgjöfina. Fyrirtækið er ekki ein göngu al mannatengslafyrirtæki eða ein göngu markaðsstofa heldur er það byggt á þessum tveimur sérsviðum þar sem ég nýti einn­ ig aðferðir stefnumótunar og breytingastjórnunar eingöngu eða með annarri ráðgjöf. Ég hef t.d. farið með starfsmönnum fyrirtækja í gegnum heildarstefnu­ mótun og fylgt eftir innleiðingu með aðferðum breytingastjórn­ unar. Ég legg alltaf mikla áherslu á að innleiðing sé vel skipulögð.“ Eva segir að hún geti auk þess tekið að sér flest þau störf sem almannatengslafyrirtæki sinna svo sem áfallastjórnun, samskipti við fjölmiðla, útgáfu fréttabréfa og textavinnslu á vefsvæði auk þess að sjá um aðalfundi, árs­ hátíðir og ráðstefnur. „Ég er að taka fyrstu skrefin í að aðstoða fyrirtæki við að vera samfélagslega ábyrg og sat nýlega námskeið á vegum Festu þar sem ég lærði að innleiða alþjóðlegan staðal GRI um sam félagsábyrgð. Ég hef mikinn áhuga á því málefni. Stjórnendur fyrir tækja eru æ meira að opna augun fyrir því hvaða hlutverki fyrirtækin gegna í samfélaginu.“ Eva tók þátt í stofnun Mílu þar sem hún var leiðandi í stefnu ­ mótun fyrirtækisins, stýrði deild­ um og sat í framkvæmdastjórn fyrirtækisins í sjö ár. Þar á undan vann hún hjá Símanum þar sem hún gegndi stöðu forstöðumanns almannatengsla auk þess að vera talsmaður fyrirtækisins. Þar áður hafði hún verið ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækinu KOM auk þess að hafa starfað sem blaðamaður um árabil. Hannar föt Eva er með BS­próf í þjóðhátta­ fræði, leikhús­ og kvikmynda­ fræðum, diplómu í hagnýtri fjölmiðlun og MBA­gráðu í við ­ skiptafræði og stjórnun. Hún er gift Finni Sigurðssyni, rekstrarfræðingi hjá LS Retail, og eiga þau tvær dætur; Ísabellu Ýr, 19 ára, og Grétu Rós, 17 ára. Báðar stunda þær nám við Verslunarskóla Íslands. „Gæðastundir með fjölskyld­ unni eru mikilvægar og tengjast helstu áhugamálin hreyfingu með eða án fjölskyldunnar; hlaupum, fjallgöngum og líkams­ rækt, auk þess sem ég lyfti lóðum næstum alla daga. Auk þess hafa stjórnmál og starf fyrir íþróttahreyfinguna tekið tíma í gegnum tíðina. Þegar ég er ekki með of marga bolta á lofti í einu hef ég hannað föt og hanna ég aðallega fyrir mig og dætur mínar en ég hef líka aðeins verið að selja og þá eru engar tvær flíkur eins.“ Enn er vetur en hvert á að fara í sumarfríinu? „Á sumrin reynum við að ferðast á íslensk fjöll eins mikið og við getum og er ég í tveimur gönguhópum sem fara iðulega í miserfiðar gönguferð­ ir. Hugsanlega verður farið í borgar ferð í vor eða haust.“ Nafn: Eva Magnúsdóttir. Starf: Framkvæmdastjóri PODIUM ehf. Fæðingarstaður: Reykjavík, 8. apríl 1964. Foreldrar: Magnús Ólafsson og Anna Gréta Þorbergsdóttir. Maki: Finnur Sigurðsson. Börn: Ísabella Ýr, 19 ára, og Gréta Rós, 17 ára, Finnsdætur. Menntun: BS-próf í þjóðhátta- fræði, leikhús- og kvikmynda- fræðum frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, diplóma í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands og MBA-gráða í viðskiptafræði og stjórnun frá Háskóla Íslands. „Gæðastundir með fjölskyld unni eru mikilvægar og tengjast helstu áhugamálin hreyfingu með eða án fjölskyldunnar; hlaupum, fjallgöngum og líkamsrækt, auk þess sem ég lyfti lóðum næstum alla daga. “ Eva MagNúSdÓttiR – eigandi og framkvæmdastjóri Podium texti: svava jónsdóttir / mynd: Geir ólafsson Eva Magnúsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Podium. frjals_verslun_augl_titt_utlit.indd 1 11.3.2013 15:06:02

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.